Þjóðlíf - 01.01.1991, Síða 48

Þjóðlíf - 01.01.1991, Síða 48
MENNING ÍB Í^—ÍMeM Ég hneigist svolítið til að vera ekki að einblína á listrænt gildi þó það verði að vera með líka, en mér finnst það einkenna áratuginn hvað voru margar sterkar „týp- ur“ í tónlistinni. Þetta er fólk sem kemur upp á yfirborðið á sjöunda og áttunda ára- tugnum. Það eru nokkrar af þessum sterku „týpum“ á listunum hjá mér, en mér finnst semsagt að þessar persónur einkenni fyrst og fremst þennan áratug og hin sterku áhrif þeirra. Svo mætti líka nefna fleiri sem komu fram seinna eins og t.d. Madonnu, sagði Andrea Jónsdóttir. Jónatan Garðarsson, útgáfustjóri Steina h/f Innlent: 1. Bubbi Morthens: Kona 2. Sykurmolarnir: Life’s too good 3. Megas: Loftmynd 4. Todmobile: Betra en nokkuð annað 5. Mezzoforte: 4 6. Grafík: Leyndarmál 7. Þursaflokkurinn: Gæti eins verið 8. Valgeir Guðjónsson: Fugl dagsins 9. Risaeðlan: Risaeðlan 10. Bubbi Morthens: Sögur af landi Erlent: 1. Paul Simon: Graceland 2. Sinead O’Connor: The Lion and the Cobra 3. Prince: Purple Rain 4. R.E.M: Murmur 5. Eeek A-Maus: Wa-do-dem 6. U2: Unforgettable Fire 7. Ofra Haza: Yemenite Song 8. King Sunny Ade and his African Brothers: Eri Okan 9. Simple Minds: New Gold Dream 10. Gypsy Kings: Gypsy Kings- í upphafi var það náttúrlega nýbylgjan og pönkið sem blómstruðu hér heima, en erlendis var það bræðingur af nýbylgjunni og öðrum tónlistarstefnum.s.s. reggí, jassi og afrískri tónlist, sem mest bar á. Þegar leið á áratuginn þá fjölgaði góðum at- vinnumannahljómsveitum hér heima, að- allega vegna þess að afrakstur nýbylgjunn- ar voru ferskir og jákvæðir straumar í ís- lenskri tónlist. Hljóðverum fjölgaði og það auðveldaði tónlistarmönnum mjög að koma tónlist sinni á framfæri. Erlendis er það gegnumbrot og síaukn- ar vinsældir heimstónlistarinnar og finnst mér það mjög áhugavert. Og framboð þessarar tónlistar, sem var mjög lítið í fyrstu er alltaf að aukast. Það er einnig mjög athyglisvert hvað „gömlu mennirn- Jónatan Garðarsson. Aratugurínn þar sem tónlistarmenn komu fram sem mjög sterkt afl til að umbreyta hlutum. ir“ hafa staðið sig frábærlega á áratugnum: Van Morrison, „Rolling Stones“, Bob Dylan, Lou Reed, Neil Young svo ein- hverjir séu nefndir. Þetta eru allt saman menn sem maður hefði undir eðlilegum kringumstæðum verið búinn að afskrifa. Það er líka mjög áhugavert hvað konur hafa verið áberandi á þessum áratug og hjá þeim hafa komið fram klassa listamenn á borð við Tracy Chapman og Suzanne Vega. Einnig er mjög athyglisvert hvað tón- listarmenn hafa haft mikið að segja í sam- bandi við mannúðarmál, ég nefni Live Aid, samstarfið við Amnesty Internation- al og Human Rights Now tónleikaferðina. Ekki má gleyma því að Nelson Mandela var að stórum hluta til látinn laus vegna 48 ÞJÓÐLÍF

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.