Þjóðlíf - 01.01.1991, Side 50

Þjóðlíf - 01.01.1991, Side 50
Sagt frá Birni Grímssyni sem m.a. skreytti handrit af mikilli kúnst og varð víðfrœgur af málaralist sinni. Einnig rakin sérkennileg þjóðsaga um Björn málara Hér hefjast „Réttarbætur“, þar sem kóngur er með tvo ráð- gjafa sér við hlið. MENNING ISLENSKUR USTAMAÐUR Á SAUTJÁNDU ÖLD PÁLLSKÚLASON ví er stundum haldið fram að mynd- list sé ung listgrein á íslandi. Það er þó hæpin staðhæfmg. í Laxdælu segir frá eldaskála í Hjarðarholti: „Voruþarmark- aðar ágætligar sögur íþilviðinum og svo á ræfrinu, varþað svo vel smíðað aðþáþótti miklu skrautlegra er eigi voru tjöldin uppi. “ Síðan var brúðkaup í Hjarðarholti og gifti Ólafur þá Þuríði dóttur sína. „Þar var að boði Ulfur Uggason og hafði ort kvæði um Ólaf Höskuldsson og um sögur þær, sem skrifaðar voru á eldhúsinu og færði hann þar að boðinu. Þetta kvæði er kallað Húsdrápa og er vel ort.“ Af því sem varðveitt er af kvæðinu í Snorra-Eddu hafa myndverkin í skálanum verið tengd ásatrú; bálför Baldurs o.fl. Skálaviðirnir frá Hjarðarholti eru ekki varðveittir, en ýmislegt frá liðnum öldum er varðveitt og ber þar hæst Valþjófstaða- hurðina, en útskurður hennar er talinn vera einn hinn merkilegasti frá miðöldum á öllum Norðurlöndunum. í handritum okkar er mikill listrænn auður saman kominn, meðal annars myndverk, en þau hafa lítið verið rannsökuð. Þessi mynd- verk tengjast oftast upphafsstöfum við kaflaskipti en þó eru til heilar síður með myndefni. Þessi listaverk eru flestum með öllu ókunn en þó hafa nokkur handrit verið gefin út með glæsibrag á síðustu ára- tugum. Það er eins með skrifara og skreytinga- meistara handritanna og höfundana sjálfa, að nöfn þeirra eru flest ókunn. Þó eru undantekningar á þessari reglu og lista- maður sá, sem hér verður lítillega sagt frá Björn Grímsson, er einn hinna fáu, sem við getum nafngreint. Björn var fæddur um 1575 og dó um 1635. Menn vita að vísu fátt um ævi hans, en hann var um tíma í þjónustu Gísla lögmanns Hákonarsonar í Bræðratungu og hefur hann að líkindum skrifað fyrir hann eitt eða fleiri handrit og málað og skreytt kirkjuna í Bræðratungu. Þau verk Björns Grímssonar, sem hér verða gerð að umtalsefni, eru tvö Jónsbók- arhandrit, sem merkt eru: Uldall 320, 4° og Gl. kgl. Saml. 327a, 4°, og predikunar- stóll úr Bræðratungukirkju, nú á Þjóð- minjasafninu. Menn vita fyrir víst að Björn hefur skrifað fyrrnefnda handritið, enda stendur á titilsíðu að hann hafi skrif- að það fyrir systur sína árið 1603. Titilsíðan er í endurreisnarstíl (renes- anse) og má vera að einhver útlend fyrir- mynd hafi verið að henni, þótt hún hafi ekki fundist. Til þess bendir m.a. þýskt orðtak neðst á síðunni, Dorhet machet Arbeit. I þessu handriti eru oft skemmti- legir upphafsstafir eins og t.d. stafurinn Þ með fuglinum í upphafi kaflans um vog- rek. m hitt lögbókarhandritið er aftur á móti meira vitað. Fyrsti eigandi handritsins telja menn að hafi verið Þór- unn Jónsdóttir ríka á Galtalæk í Rangár- vallasýslu. Þórunn giftist fyrst árið 1613 eða 1614 Sigurði, syni Odds biskups Ein- arssonar og hafa menn getið sér þess til að það hafi verið skrifað fyrir hana og gefið henni í brúðargjöf. Þórunn giftist aftur 50 ÞJÓÐLÍF

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.