Þjóðlíf - 01.08.1991, Page 79

Þjóðlíf - 01.08.1991, Page 79
MENNING Jón Sigurðsson og Geirungar Ný bók afslóðum Jóns Sigurðssonar eftir Lúðvík Kristjánsson sagnfrœðing Nýverið kom út ný bók eftir Lúðvík Kristjánsson sagnfræðing; Jón Sigurðs- son og Geirungar, — neistar úr sögu þjóðhátíðaráratugar. Menningarsjóður gaf bókina út á 180 ára afmæli Jóns Sigurðssonar, 17. júní sl. Lúðvík fjallar í bókinni um Geirunga sem drógu nafn sitt af leynifélaginu Atgeirinn sem stofnað var af samherjum Jóns forseta árið 1872. Lúðvík Kristjánsson er þjóðkunnur fræðimaður og rithöfundur sem hefur verið afkastamikill í rannsóknum á sögu íslendinga á 19.öld. Hann hefurm.a. sam- ið Vestlendinga, 3 bindi (1953-60) og Á slóðum Jóns Sigurðssonar (1961). Á árun- um 1980-86 kom frá hans hendi ritverkið íslenzkir sjávarhættir, 5 bindi, einstætt stórvirki um sjávarútvegssögu íslendinga. Fyrir það hlaut hann heiðursdoktorsnafn- bót frá Háskóla íslands. í eftirmála Geirunga segir Lúðvík að þarmeð sé lokið sem bókarefni skrifum hans um Jón Sigurðsson forseta. Hann hefur verið að birta niðurstöður rann- sókna sinna á forsetanum á stangli í fjóra áratugi. Lúðvík Kristjánsson hefur unnið mikið verk við heimildaöflun og rann- sóknir á ýmsum sviðum varðandi ævi Jóns Sigurðssonar sem aðrir fræðimenn hafa ekki sinnt eða komið auga á.„ Störf mín varðandi hann hafa fyrst og fremst verið fólgin í að kanna vissa þætti í ævi hans sem aðrir hafa lítt eða ekki athugað.“ Allir áhugamenn um sagnfræði taka áreiðan- lega fegins hendi við bók Lúðvíks um Geirunga og Jón Sigurðsson, því eins og í bókinni Á slóðum Jóns Sigurðssonar, varpar Lúðvík skýrara ljósi á menn og viðburði á nítjándu öld. Þannig er t.d. í henni að finna merkan þátt í blaðaútgáfu- sögu þjóðarinnar. Er ættfræðiáhugi í ættinni? Allt frá söguöld hefur ættfræðiáhugi fylgt íslendingum. Mismikið að vísu en alltaf hafa einhverjir yljað sér við þennan kima þjóðlegra fræða. En kann að vera að þessi áhugi sé að einhverju leyti bundinn íætt- um? Það gætu menn freistast til álykta þegar þeir líta á tengsl helstu ættfræðinga þjóðarinnar. Bogi Benediktsson fræði- maður, Jón Pétursson háyfirdómari, Hannes Þorsteinsson ritstjóri Þjóðólfs og Pétur Zophaníasson ættfræðingur eru meðalallra þekktustu ættfræðinga þjóðar- innar síðustu 150 árin. Þeir eru allir skyld- ir eða venslaðir með öðrum hætti. Til gamans eru hér tíunduð tengsl þeirra eftir því sem tiltækar heimildir segja til um: Bogi Benediktsson f. 24.sept. 1771, d. 25. mars 1849 var kvæntur Jarþrúði Jóns- dóttur (1776—1858). Bogi bjó á Staðarfelli í Dölum og var stórauðugur. Hann sinnti bókum og íslenskri sögu og ættvísi af kappi. Hann skrifaði m.a. ættfræðirit sem notuð eru að miklu leyti sem undirstöðu- heimild fyrir ættfræðiáhugamenn nútím- ans, „Sýslumannaævir“. Meðal barna þeirra Boga og Jarþrúðar voru Sigríður sem giftist Pétri Péturssyni biskupi og Jóhanna sem giftist Jóni Péturssyni háyf- irdómara, bróður biskupsins. Jón Pétursson háyfirdómari var f. ló.jan 1812, d. ló.jan 1896. Jón var meðal ættfróðustu manna sinna tíðar og sá um margvíslega útgáfu ættfræðirita. Með fyrri konu sinni, Jóhönnu Bogadóttur, átti hann m.a. dæturnar Jarþrúði og Jó- hönnu Soffíu. Jarþrúður átti Hannes Þorsteinsson ritstjóra Þjóðólfs (1860—1935). Hannes var með fádæmum ættfróður þegar á unga aldri. Reyndar varð sú ættvísi til þess að hann hóf nám við Latínuskólann í Reykja- vík. Hann var í heimsókn í Reykjavík haustið 1880, stóð við túnið þar sem skóla- piltar hópuðust að honum og þuldi hann ættir þeirra. Þessi atburður varð til þess að þeir skutu saman handa honum í sjóð til að hefja nám. Hannes var afkastamikill í ætt- fræðirannsóknum og útgáfu en seinni hluta ævi sinnar voru hæg heimatökin þar sem hann var þjóðskjalavörður. Jóhanna Soffía, önnur dóttir Jóns háyf- irdómara, var gift Zophóniasi Halldórs- syni (1845 —1908). Synir þeirra voru Páll alþingismaður og Pétur ættfræðingur. Pétur Zophóníasson (1879 -1946) sá m.a. um útgáfu á Ættum Skagfirðinga og Vík- ingslækjarætt auk margs annars af þeim toga. Hér hafa aðeins nokkrir laukar þessarar ættfræðiáhugaættar verið nefndir en margir fleiri af þessu kyni hafa dundað sér við þennan fróðleik til gagns og ánægju fyrir sjálfa sig og aðra áhugamenn í fræð- unum. 0 ÞJÓÐLÍF 79

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.