Víkurfréttir - 07.05.2009, Page 9
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 7. MAÍ 2009 9STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
ÚTKALLSSÍMI VÍKURFRÉTTA
Keppnislið Heiðarskóla í
Skólahreysti 2009 var ræki-
lega hyllt af skólasystkinum
sínum og starfsfólki skólans
á mánudaginn en sem kunn-
ugt er sigraði Heiðarskóli
í keppn inni þeg ar úr slit
hennar fóru fram í Laug-
ardalshöll á fimmtudags-
kvöldið. Keppendur fengu
afhent blóm frá skólanum
að gjöf og viðurkenningar-
skjal frá Reykjanesbæ ásamt
merki bæjarfélagsins.
Tólf keppnislið öttu kappi í
æsispennandi úrslitum sem
réðust ekki fyrr en í síðustu
keppnisgrein. Lið Heiðarskóla
sigraði með 55 stigum auk
þess sem liðið setti tvö ný Ís-
landsmet. Foldaskóli hafnaði
í öðru sæti með 46 stig og í
þriðja sæti varð Háteigsskóli
með 45,5 stig.
María Ása Ásþórsdóttir sló
Ís landsmet þegar hún tók
95 armbeygjur. Soffía Klem-
enzdóttir og Eyþór Ingi Einars-
son slógu Íslandsmetið í hraða-
þraut sem staðið hafði óhreyft
síðan 2007. Þau fóru brautina
á 2,07 mínútum.
Lið Heið ar skóla skip uðu
María Ása Ásþórsdóttir, Soffía
Klemenzdóttir, Eyþór Ingi Ein-
arsson og Guðni Már Grétars-
son. Þjálfari þeirra var Helena
Ósk Jónsdóttir íþróttakennari
í Heiðarskóla.
Sigurlið Heiðarskóla: Soffía, María, Guðni, Eyþór ásamt liðsstjóranum Helenu Ósk.
Sigurgleði í Heiðarskóla
Café Keflavík hefur nýlega bætt léttum vínveitingum við þjón-
ustu sína. Þá hefur Erlingur Jónsson selt sig út úr rekstrinum
og Hjördís Hilmarsdóttir verið ráðin rekstrarstjóri. Kaffi-
húsið verður framvegis opið til kl. 23 fimmtudaga, föstudaga
og laugardaga og til kl. 22 aðra daga. Café Keflavík leggur
áfram áherslu á ljúffengar kaffiveitingar í notalegu og huggu-
legu umhverfi. Að sögn Hjördísar var ákveðið að bjóða upp á
léttar vínveitingar til að mæta ákveðnum hópi viðskiptavina
sem slíkt vilja. Algengt sé að erlendir ferðamenn reki inn
nefið og finnist það skrýtið að geta ekki fengið sér bjór eða
rauðvínsglas.
Breytingar hjá Café Keflavík
Lilja Gunnarsdóttir og Hjördís Hilmarsdóttir á Café Keflavík.