Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.05.2009, Qupperneq 2

Víkurfréttir - 14.05.2009, Qupperneq 2
2 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 20. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR Hall dór Ragn ars son hjá Húsanesi segir að ef ástandið á byggingamarkaði fari ekki að lagast á næstunni „bjóði hann ekki í þetta“ eins og hann orðar það. Húsanes hefur í mörg ár verið með stærri aðilum í byggingar- iðnaði hér á Suðurnesjum. Á uppbyggingartíma síðustu ára var fyrirtækið með um 70 manns í vinnu að staðaldri. Síðan í haust er fyrirtækið búið að segja upp um 50 manns. Um 25 manns starfa hjá fyrirtækinu í dag. „Þessi mannskapur hefur verið kjarninn í fyrirtækinu og við ætlum að reyna halda þessu svona meðan stætt er. Við erum með frágangsverk og ým- islegt annað í gangi út árið en ef ástandið fer ekki að lagast líst manni ekki á þetta,“ sagði Halldór í samtali við VF. Aðspurður um almennt ástand í greininni hér á svæðinu segir Halldór það mjög slæmt. „Það eru ekki neinir peningar Halldór Ragnarsson, eigandi Húsaness: Býð ekki í þetta Kreppan og atvinnulífið í umferð. Bankarnir lána ekki til neinna framkvæmda, það er allt stopp. Ef yfirvöld fara ekki að gera eitthvað fljótlega í því að koma bankakerfinu í gang þá býð ég ekki í þetta. Núna eru upp sagn ir hjá flestum orðnar að veruleika og fyrirtækin verkefnalaus þannig að nú er þessi kreppa að birt- ast í sinni svörtustu mynd, at- vinnuleysi vex stöðugt og við því þarf að bregðast strax,“ sagði Halldór. Vel á annað þúsund manns eru nú atvinnulausir á Suð- ur nesj um og er stór hluti þeirra úr byggingariðnaði. Að- spurður segir Halldór marga hugsa sér til hreyf ings og skoða lönd eins og Kanada, Danmörk og Noreg. Menn hafi allar klær úti til að finna sér lífsviðurværi. „Það eru margir stopp, hafa ekki þrótt til að halda þessu áfram og eru búnir að loka sínum fyrirtækjum. Aðrir eru að reyna að þrauka en gera það auðvitað ekki endalaust. Það er því brýnt að þessi nýja ríkisstjórn fari að koma hreyf- ingu á málin, koma fjármagni í umferð og lækka vexti. Margir hafa misst móðinn einmitt vegna þess að það hefur ekkert verið að gerast til að auka mönnum bjartsýni. Menn gefast upp ef þeir sjá ekk- ert framundan,“ sagði Halldór. Hann seg ist eins og aðr ir binda vonir við að Suðurnesin rísi fyrr upp úr kreppunni því mörg verkefni séu í pípunum t.d. álver og gagnaver. Hins vegar þurfi að koma hlutunum aftur af stað. „Ástandið er mjög alvar- legt, sér í lagi hjá þeim sem voru að byggja og selja. Það er algjört frost á bygginga- markaðnum. Bankarnir eru ekkert að lána og menn fá ekki krónu til að klára það sem þeir voru í,“ segir Lúð- vík Gunnarsson, varafor- maður Meistarafélags bygg- ingamanna á Suðurnesjum aðspurður um stöðu mála á byggingamarkaði. Hann segist í rauninni vera hissa á þrautseigju margra byggingarmanna við þessar kringumstæður. „Flestir virð- ast hafa náð að selja það sem þeir voru með, alla vega minni fyrirtækin. Þau hafa mörg náð að byggja upp fjárhags- legan grunn sem hefur gert þeim keift að lifa án tekna í þrjá til fjóra mánuði. Nú er það uppurið og menn standa ráðalausir,“ sagði Lúðvík. Að hans sögn eru minni verktakar sem sinnt hafa viðhaldsvinnu þeir einu sem eitthvað hafa að gera. Virðisaukaskattur af viðhaldvinnu hafi verið afnum- inn sem ýta ætti undir fram- kvæmdir t.d. hjá húsfélögum að því tilskyldu að peningar Lúðvík Gunnarsson, varaformaður MBS: Sitjum á bullandi tækifærum séu til í sjóði því lán séu ekki boði. Fram hefur komið að margir iðnaðarmenn hugsa sér til hreyfings út fyrir landsteinana og kveðst Lúðvík hafa heyrt af því. Hins vegar sé farið að þrengja að í öðrum löndum eins og hér. „Það sem okkur vantar eru að- gerðir. Hér á Suðurnesjum er mesta atvinnuleysið á landinu og ríkisstjórnin þarf að beita sér í því að koma í gang þeim tækifærum sem eru fyrir hendi. Von in sem menn halda í eru þessi stóru verkefni sem Reykjanesbær hefur stuðlað að undanfarin ár en þau eru öll í frosti vegna hindrana, jafnvel hjá stjórnvöldum. Það á t.d. enn eftir að skrifa undir fjármögnunarsamninginn við kísilmálmverksmiðjuna sem búið er að samþykkja á Alþingi. Össur sagði að þetta þyrfti að skoðast í einhverju heildstæðu mati. Þetta hefur bara tekið allt of langan tíma. Það þarf að flýta þessu ferli og allir þurfa að vinna að því að flýta fyrir framkvæmdum. Þetta brölt sem verið hefur í pólitíkinni hefur bara dýpkað kreppuna,“ sagði Lúðvík. „Við megum ekki vera of svart- sýn. Við verðum að horfa í átt að birtunni og ég tel að hún sé handan við hornið hér hjá okkur á Suðurnesjum. Við sitjum á bull- andi tækifærum en við þurfum að koma þeim í gang,“ Í Innri-Njarðvík hafa framkvæmdir við margar byggingar stöðvast vegna fjárskorts og sölutregðu. -en þurfum að koma þeim í gang -ef ástandið fer ekki að lagast

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.