Víkurfréttir - 20.08.2009, Qupperneq 12
12 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 33. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR
Nú þegar skólar fara að hefjast mun umferð
a u k a s t t i l
muna, bæði
a k a n d i o g
gangandi veg-
farenda. Þar
á meðal eru
börn sem eru
að hefja skóla-
göngu og óvön mikilli um-
ferð og því ber að huga sér-
staklega að þeim en sumir
eru alls óvanir að vera í
kringum farartæki.
Umhverfis- og skipulagssvið
vinnur nú að árlegu umferðar-
átaki á götum bæjarins. Átak
þetta er unnið í góðu samstarfi
við Lögregluna á Suðurnesjum
og munum við hjá Umhverfis-
og skipulagssviði ásamt lög-
reglu vera áberandi á götum
bæjarins þegar skólar hefjast.
Sérstök áhersla verður nú sem
endranær í skólahverfum en
auk þess að setja upp merk-
ingar mun lögreglan vera með
hraðamælingar á þeim götum
sem liggja næst skólum.
Rétt er að minna ökumenn á
að hámarkshraði í öllum hús-
götum í Reykjanesbæ er 30
km sem og við grunnskóla.
Gatnakerfið er skipulagt
þannig að stofngötur hafa 50
km hámarkshraða en safn-
götur og húsagötur 30 km.
Við hjá Umhverfis- og skipu-
lagssviði Reykjanesbæjar
vinnum nú að umferðarörygg-
isáætlun í samstarfi við Um-
ferðarstofu þar sem kortlagðir
verða allir þeir staðir sem
valdið hafa umferðaróhappi,
eða hafa fengið ábendingu
um hættu. Með þessari vinnu
er gerð tilraun til að útrýma
hættum í okkar ágæta gatna-
kerfi. En það verður þó aldrei
gert án aðstoðar frá vegfar-
endum og þeim ökumönnum
sem um göturnar aka.
Oft og tíðum virðast ökumenn
ekki taka nokkurt mark á
merkingum og hraðatakmark-
andi hindrunum og virðist þá
engu skipta aðstæður og um-
hverfi. Þessir ökumenn keyra
langt yfir löglegum hámarks-
hraða og virða að vettugi að-
stæður. Fyrir þessa ökumenn
er svipting eina úrræðið og
munum við vonandi ná að
stöðva sem flesta á næstunni
áður en þeir verða sjálfum sér
eða sem verra er öðrum að
fjörtjóni.
Allar ábendingar um úrbætur
má senda á usk@reykjanes-
baer.is.
Guðlaugur H. Sigurjónsson
framkvæmdastjóri
Umhverfis- og skipulags-
sviðs Reykjanesbæjar
Vogar eru rólegur, vina-legur og fjölskylduvænn
bær með rúmlega 1.200 íbúa.
Þar af eru um 400 börn og
ungmenni undir 18 ára aldri
og eru þau mikið á ferðinni
um bæinn, bæði hjólandi og
gangandi. Það hefur verið
stefna sveitar-
félagsins um
árabil að hlúa
sem best að
fjölskyldunni
og börnum í
samfélaginu.
Bæjarstjórn
Sveitarfélagsins Voga hefur
tekið enn eitt skrefið í þá átt
með því að lækka umferðar-
hraða í þéttbýlinu í Vogum í
30 km frá og með 21. ágúst
næstkomandi.
Ákvörðunin er tekin í kjölfar
skýrslu sem Sjóvá Forvarnar-
hús vann fyrir bæinn um um-
ferðaröryggi og merkingar í
Vogum. Breytingin er gerð í
góðu samstarfi við lögregluna
á Suðurnesjum, en frá því í
vor hefur lögreglumaður haft
aðstöðu í íþrótta- og félags-
miðstöðinni og vinnur hann í
nánu samstarfi við frístunda-
og menningarfulltrúa að for-
varnarmálum í bænum. Jafn-
framt hefur reglubundnum
eftirlitsferðum lögreglu um
bæinn fjölgað.
Hámarkshraði á f lestum
götum í Vogum er nú þegar
30 km á klukkstund. Aðeins á
Hafnargötu, hluta Stapavegar
og hluta Vogagerðis er 50 km
hámarkshraði. Breytingin er
því jafnt til einföldunar fyrir
ökumenn og til að bæta um-
ferðaröryggi, en hámarkshraði
verður 30 km/klst í öllu þétt-
býlinu frá gatnamótum Hafn-
argötu og Stapavegar. Ég vil
beina eftirfarandi orðum til
ökumanna í Vogum.
Í Vogum búa mörg börn,
okkur þykir vænt um þau öll.
Vinsamlegast akið varlega.
Róbert Ragnarsson,
bæjarstjóri
Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri í Vogum, skrifar:
Hámarkshraði í Vogum lækk-
aður í 30 km á klukkustund
Hægjum á okkur
Guðlaugur H. Sigurjónsson skrifar: