Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.09.2009, Qupperneq 16

Víkurfréttir - 24.09.2009, Qupperneq 16
8 BLÓMSTRANDI MANNLÍF VÍKURFRÉTTIR 9VÍKURFRÉTTIR BLÓMSTRANDI MANNLÍF íþrótta- og ungmennafélag 80 ÁRA SAGA Saga Keflavíkur íþrótta- og ungmenna- félags er rækilega samofin sögu, mannlífi og menningu bæjarins okkar. Í afmælisriti Keflavíkur er stiklað á stóru í sögu þeirra félaga sem gengu í íþrótta- og ungmennafélagið Keflavík 30. júní 1994 og mynda nú Keflavík íþrótta- og ungmennafélag. Þau eru: Ungmennafélag Keflavíkur (UMFK) stofnað 29. september 1929, Knattspyrnufélag Keflavíkur (KFK) stofnað 12. júní 1950, Fimleikafélag Keflavíkur (FK) stofnað 12. september 1985, Sundfélagið Suðurnes (SFS) stofnað 1. ágúst 1989, Íþróttafélag Keflavíkur (ÍK) stofnað 30. september 1967 og Skotfélag Keflavíkur endurvakið veturinn 1981. Öll þessi félög voru stofnuð af áhugasömu hugsjónafólki. Markmiðið var að gefa ungu fólki tækifæri til að vinna að ýmsum málefnum sem horfðu til eflingar menningarlífs og almennra heilla fyrir byggðarlagið. Með breyttum tímum aðstæðum hefur starfsemi félagsins í æ ríkari mæli færst inn á svið íþróttanna. Á því sviði hefur mikill fjöldi manna lagt á sig ómælda vinnu og fórnir í því skyni að byggja upp öflugt félag sem gæti náð fjölþættum árangri og eignast afreksfólk í mörgum greinum íþrótta. Íþróttafólkið á hér sjálft stærstan hlut að máli með atorku sinni, einbeitni og vilja, en máttur hreyfingarinnar hefur ekki síst falist í dugnaði og fórnfýsi þeirra sem í áttatíu ár hafa helgað félaginu krafta sína og verið íþróttalífi bæjarins einstæður bakhjarl. Inngangur Einar Haraldsson Stjórn Keflavíkur íþrótta- og ungmennfélags 2009. Efri röð frá vinstri: Guðjón Axelsson, Sigurvin Guðfinnsson, Þórður M. Kjartansson, Birgir Ingibergsson. Fremri röð frá vinstri: Sveinn Adólfsson, Einar Haraldsson, Kári Gunnlaugsson og Bjarney S. Snævarsdóttir. Þórey Þorsteinsdóttir, einn af stofnendum UMFK, var einn helsti hvatamaður að byggingu Sundhallarinnar í Keflavík og síðar að byggingu myndarlegs íþróttahúss í bænum. Hún veitti íþróttastarfinu í Keflavík öflugan stuðning með fjársöfnun, eigin fjárframlögum og hvatningargreinum í blöð á Suðurnesjum. Þórey var gerð að heiðursfélaga UMFK við vígslu íþróttahússins við Sunnubraut 1980. Skráðar heimildir um leiksýningar í Keflavík fram að 1929 eru ekki miklar né merkilegar en leikstarf mun þó hafa staðið með nokkrum blóma í Keflavík frá því nokkru fyrir aldamótin 1900 og gera má ráð fyrir að leikið hafi verið flest ár. Fyrr á tímum voru leikrit færð upp í pakkhúsum kaupmanna sem voru stærstu byggingar hvers þorps og engin hús jafn rúmgóð að þeirra tíma hætti. Fyrstu heimildir um leiklist í Keflavík eru frá árinu 1891 en þá neitaði Jón Gunnarsson, þáverandi verslunarstjóri Duus-verslunar í Keflavík, að lána stúkunni Voninni pakkhús til að leika í. Sætir það nokkra furðu þar sem fyrir hendi var Góðtemplarahúsið sem stúkan reisti rétt eftir stofnun sína 1885. Góðtemplarareglan í Keflavík byggði annað samkomuhús 1905 við Kirkjuveg. Árið 1914 var stofnað hlutafélagið Skjöldur um rekstur samkomuhússins og stóð svo þangað til Ungmennafélag Keflavíkur var stofnað 1929 og tók að sér húsið. UMFK varð strax öflugur frumkvöðull í félags- og menningarlífi byggðarlagsins og segja má að allt til ársins 1959 hafi félagið haldið uppi leikstarfsemi í húsakynnum sínum. Leikritið „Karlinn í kassanum“ var sýnt í Ungó við góða aðsókn árið 1950. Frá vinstri: Guðni Magnússon, Emelía Jónasdóttir og Þórður Jónsson. Víkurfréttir birta hér á næstu átta blaðsíðum brotabrot úr 80 ára sögu Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags. Við stiklum aðeins á því stærsta að okkar mati úr mjög skemmtilegri og fróðlegri afmælisbók sem Keflavík er að gefa út í tilefni afmælisins. Ritstjóri hennar er Eðvarð T. Jónsson, Stapaprent í Keflavík sá um umbrot hennar og prentun fór fram í Odda. VF fékk leyfi til að taka efni úr henni til að minnast þessara stóru tímamóta hjá félaginu. „FÉLAGIÐ ÞARF AÐ LEIKA GÓÐ LEIKRIT“

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.