Heima og erlendis - 01.02.1947, Side 1

Heima og erlendis - 01.02.1947, Side 1
Heima og erlendis Um Island og Islendinga erlendis 1. árg. Febrúar 1947 5. tbl. ÍSLENDINGAR FAGNA í KAUPMANNAHÖFN I. 1. desember 1918. Hátíhahöldin 1. des. 1918 munu hafa verið hin stærstu meðal Islendinga hér síðan þjóð- hátíðina 1874. Hinn þriðji stærsti fagnaður Hafnar-Islendinga var svo 17. júní 1944. Viðburðarins 1. desember 1918, er féll upp á sunnudag, fögnuðu Islendingar hér í Sass Selskabslokaler, Linnégade 25. Rás viðburðanna hafði hagað því svo, að mörgum var allt annað en gleði í huga. Spánska veikin herjaði hér í landi og margir Islendingar höfðu tekiö sótt þessa. Um miðj- an nóvemher mánuð hárust þær fregnir hingað lieiman af íslandi, að um 10,000 manns lægju sjúkir af pest þessari í Reykja- vík og að fólk létist í hrönnum. Mönnum gat því ekki verið svo glatt innanhrjósts sem skyldi. En sjálfstæðis íslendinga skyldi fagnað af löndum þeirra í Danmörku og var fagn- að eftir hezta mætti. Allir sem vetlingi gátu valdið komu á vettfang. Nokkrir voru nýstaðnir upp úr leg- unni, en vildu með engu móti missa af þessum fagnaði þó veður væri kaldranalegt og því gæti verið liætt fyrir þá, að fara út. Fagnaðurinn hófst kl. 7,30. Kristinn Ar- mannsson, nú lektor við Menntaskólann í Reykjavík, setti hátíðina; mun hann hafa verið formaður Islendingafélagsins þá, þótt hvergi fínnist þess getið. Islendingamót 1. des. 1928 á 10 ára sjálfstæðisafmæli íslands. í fyrslu röð f. v.: Sig. Gu&mundsson, skólam., frú Georgia Björns- son, Sveinn Björnsson báv. sendih., M. Bartels, þáv. form. félagsins, frú GuÖríÖur Klerk, Har. SigurÖsson. í annari röð frá v.. Jón Krabbe, Bogi Tli. Melsteð, frú Stefanía Clausen, Pétur Jónsson óperusöngvari. í fjórðu röð frá vinstri: Finnur Jónsson próf. og frú, frú Agústa Thomsen og lengra til hægri Ditlev Thomsen og Oddur Rafnar.

x

Heima og erlendis

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima og erlendis
https://timarit.is/publication/1100

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.