Heima og erlendis - 01.07.1953, Qupperneq 1
Heima og erlendis
Um Island og Islendinga erlendis
6. árg. Júlí 1953 3. tbl.
HUNDRAÐ ÁRA MINNING
FRA DAUÐA JÓNASAR HALLGRÍMSSONAR
Laugardaginn 26. maí árið 1945 voru liðin
hundrað ár frá því, aÖ Jónas Hallgrímsson,
góðskáldiÖ íslenska, lést hér í Kaupmanna-
höfn. AÖ sjálfsögðu minntust Islendingafé-
lag og Félag íslenzkra stúdenta í Kaup-
mannahöfn þessa með sameiginlegri sam-
komu aÖ kvöldi þessa dags.
Laust eftir hádegi eða kl. 14, mættust
stjórnir félaganna viö leiÖi Jónasar Hall-
grímssonar í Assistens kirkjugarðinum á
NorÖurbrú. Hér lögðu stjórnir félaganna
ásamt FræÓafélaginu og SendiráÖi Islands,
krans á leiÖi Jónasar. Fyrir hönd Sendiráös
Islands var viÖstaddur athöfn þessa Tryggvi
Sveinhjörnsson, sendiráðsritari og fyrir Fræða-
félagiö Jón prófessor Helgason. Blómsveig-
arnir voru skreyttir silkiböndum, íslenskum
litum og áletraÖ nafn Jónasar og gefenda.
YiÖ leiðiö ílutti Jón Helgason stutta ræöu
og að henni lokinni lögðu þeir M. Bartels,
J)á formaður lslendingafélags og Tryggvi
Sveinbjörnsson blómsveigana á leiðiÖ. ViÖ-
staddir athöfn þessa voru 14 Islendingar.
Um kvöldiÖ höfÖu félögin sameiginlegan
fund í Haandværkerforeningen, Dr. Tvær-
gade 2 og hófst sá fundur kl. 18. Mót þetta
setti formaÖur Stúdentafélagsins, sem þá var
Guðmundur Arnlaugsson, stud. mag. Eftir
aÖ liann haföi boðið félaga og gesti vel-
komna, flutti Kristján Albertson, þá dósent
í þýskalandi, stutta ræðu fyrir minni Jónasar
Hallgrímssonar. AÖ ræðu hans loknri, las
Jón próf. Helgason upp úr riturn Jónasar,
I?