Fagnaðarboði - 01.01.1948, Page 2

Fagnaðarboði - 01.01.1948, Page 2
2 FAGNAÐARBOÐI Vitnisburður Föðurins um sinn Eingetin Son. Og engillinn sagði við hana: Vertu óhrædd, María, því að þú hefir fundið náð hjá Guði. Og sjá, þú munt þunguð verða og fæða Son; og þú skalt láta Iiann heita Jesúm. Hann mun verða mikill og verða kallaður Sonur hins Hæsta; Heilagur Andi mun koma yfir þig og kraftur hins Ilæsta mun yfirskyggja þig', fvr- ir því mun og það sem fæðist, verða kallað heilagt, Sonur Guðs. Lúk. 1, 30. 32, 35. Allt frá því að Gúð sagði: Verði ljós! Þegar Hann hafði skapað heiminn, og til komu Drottins, við opinberun nýrrar sköpunar í Jesú Krisli, talar Guð um og boðar komu hins sanna Ijóss í heiminn. Guð greindi ljósið frá myrkrinu, og gjörði sjálfan sig kunnan mönnunum, með því að gefa þeim hoðorð sín og lögmál, svo þeir mættu verða Honum likir að vizku, speki, þekkingu, fegurð og dýrð, mætti, valdi og krafti Guðs Anda. Verða uppfræddir af Orði Sannleikans og vera fullkomlega frjálsir, svo vanþekkingarmyrkrið hyrfi úr hugum ])eirra, þar sem þeir voru Guðs synir. Þannig vildi Guð frá upphafi fræða börnin siu, halda áfram að skapa manninn andlega, auðga og leiða til hinnar æðstu vegsemdar. Þrátt fyrir syndafallið, liætti Guð elcki við það, sem Hann hafði ákveðið, er Hann sagði: „Vér viljum gjöra menn eftir vorri mynd, líka oss“. Með því að láta ljós sinna Heilögu Orða lýsa lil mannanna seint og snemma, lieldur • Ilann sínu sköpunarverki áfram, enn i dag í nýrri sköpun. Hann talaði við Nóa þegar allt hold hafði spilt vegum sínum á jörðunni, og enginn sinnti framar boðorðum Guðs. Hann fyrirbjó hin- um réttlátu fullkomið frelsi og hélt miskun- arverki sínu áfram, eins og Hann hafði fyrir- heitið, að sæði konunnar skvldi merja högg- ormsins höfuð. Hann gjörði Móse vegu sína kunna, og fól honum að leiða sinn frumget- inn son Israel út af Egyptalandi. Hann talaði til feðranna Abrahams, ísaks og Jakobs og allra spámannanna. Hann gaf sinni útvöldu þjóð hin mikilvægustu fyrirheit, allt þar til að hið sanna ljós kom í heimim^Jjl að upp- lýsa hvern mann um kærleika Föðurins á himnum, svo að þeir sem sitja i skugga dauð- ans og húa í landi náttmyrkranna, mættu sjá mikið Ijós. Nú er hið sanna ljós komið í heiminn, þar sem Guðs Sonur hefir stigið niður af himni, og klæðsl mannlegu hoidi og gjörst mönnum líkur, lil þess að flytja oss hinn mikla Fagn- aðarboðskap frá Guði, á mannlegu máli, svo að oss þurfi ekki að vera ökunnugt mn náð Guðs og dásemdarverk, er Hann hefur fvrir- búið sinum börnum. Hann kom sem hinn fyrirheitni Immannel, til þess að ganga með oss mannanna hörnum, og gjöra oss kunnan Guðs veg til hjálpræðis. Þar sem við vorum holdlegir menn og áttum svo erfitt með að heyra og skilja það, sem Andans er, og vorum því svo fjarlægir Guði, því Guð er Andi, en í Jesú Kristi hefir Hann birst í holdi, og þannig auðsýnt oss elsku sína og vægðarsemi. Þar sem Ilann talar nú ekki framar til vor í ráðgátum og líkingum. Held- ur gerir oss kunnan allan sannleikann, sem opinberar oss, hina fnlkonmu náð Guðs í Jesú Kristi. Allir hinir heilögu vitna um Soninn, sem Guð hefir setl erfingja allra hluta, og Hann líka hefir gjört heimana fyrir. Við fæðingu Hans, vitnuðu liersveitir himn- anna um Hann og vegsömuðu Guð fyrir Ilann. Spámennirnir tala um Soninn og vitna um Hans dýrð, náð og fórn. Öll verk Sonarins vitna um Hann, þar sem Hann gekk um kring, gjörði gott og græddi alla, sem af djöflinum voru undirokaðir. „Blindir fá sýn og haltir ganga, líkþráir hreinsast og daufir heyra, og dauðir upprísa og fátækum er boðað Fagnaðarerindi“. Matt. 11, 5. Hver er þá þessi, að bæði vindur og vatn hlýða Honum? Mark. 4. 41. Einar Einarsson. !

x

Fagnaðarboði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fagnaðarboði
https://timarit.is/publication/1103

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.