Fagnaðarboði - 01.01.1948, Page 3

Fagnaðarboði - 01.01.1948, Page 3
FAGNAÐARBOÐI 3 Orð lífsins Það Orð er salt, og i alla staði þess vert, að við því sé tekið, að Kristur Jesús kom i lieiminn til að frelsa synduga menn, og er ég þeirra fremstur. 1. Tim. 1, 15. Átt þú fyrirgefningu svndanna og eilíft líf fyrir blóð Krists? Þetta er mál sem kemur öllum við, það flvt- ur öllum annaðhvort líf eða dóm. Allir eru að leitast við að gjöra framtið sína örugga, hér i tímanlegum efnum, þótt þeir viti, að þeir eiga ekki ráð á morgundeg- inum. Guðs Orð segir: Heimskingi, á þessari nóttu verður sál þín af þér heimtuð, og hver fær þá það, sem þú hefir aflað? Svo fer þeim, er safnar sér fé og er ekki ríkur hjá Guði. Lúk. 12, 20.—21. Ekki er hægt að hafa neitt með sér, af þvi, sem heiminum heyrir til. Jesús segir: Eitt er nauðsjmlegt. Það cr að velja góða hlutann. Það er nauðsvnlegt að eignasl fullvissuna, um fyrirgefningu syndanna, fyrir blóð Krists úthelt á krossinum. Eullvissan fæsl með þvi, að játa syndirnar og biðja um fyrirgefningu og trúa Orði Drott- ins er segir: Engann þann sem til mín kemur niun ég burtu reka. Sjáum ræningjann á krossinum, i dauðans angist og skelfingu. Hrópið frá hans brest- andi hjarla var: Jesú minnst þú mín, þegar þú kemur i konungsdýrð þinnil Lúk. 23, 42. Það stóð ckki á svarinu hjá Jesú. Sannlega segi ég þér: í dag skaltu vera með mér í Para- dis. Lúk. 23, 43. Eða tollheimtumaðurinn, hann hrópaði: Guð, vertu mér syndugum liknsamur! Lúk. 18, 13. Hann fór réttlættur heim til sin. Hrópa þú til Drottins og Hann mun bæn- heyra þig, því Hann hefur sjálfur sagt biðjið og yður mun gefast; leitið, og þér munuð finna; knýjið á, og fyrir yður mun upplok- ið verða; því að hver sá öðlast sem biður, og sá finnur, er leitar, og fyrir þeim mun upp- lokið, sem á knýr. Lúk. 11, 9—10. Þetta er fagnaðarboðskapurinn. Orð eilífa lífsins, sem óhætt er að treysta og veita oss þekkingu á hinum eina sanna Guði og þeiin sem Hann sendi Jesúm Kristi. Lofað sé Drottins heilaga Nafn. Grasið fölnar, blómin blikna. Brátt til jarðar falla hljótt. Eins mun holdið hreikna kikna, hallar degi kemur nótt. Teigum bikar blóðsins mikla, blessun veitir líf og þrótt. Ilallelúja Hann er fyrstur, Herrans lýður fagna má. Gangið út nú kallar Kristur komið skoðið laun að fá. Réltlætis í skrúða skykkju skal Ilans brúðir sigri ná. Gangið inn og eignist ríkið, eilifð frá, sem búið er. Ástvinir míns Föðurs, flýtið friðar kveðjan, lieyrið þér! Mér til hægri handar setjisl. Hæðstum Drottni vegsemd ber. . Halldóra Einarsdóitir. ------------------------------------------7 FAGNAÐARBOÐI er gefinn út af Sjálfseignarstofnuninni Austurgötu 6, Hafnarfirði. Heimili til boðunar Fagnuðurerindis i náð Drottins Jesú Krists. Tilgangurinn er, að blaðið flgtji hinn heilnæma fagnaðarboðskap, umnáðarog kærleiksverk Guðs, í Drottni Jesú Kristi Frelsara vorum. Sem kom í heiminn til að frelsa synduga menn, með þvi að líða þjáningar og pislardauða, og gefa sitt saklausa sáttmálablóð á krossinum í lausnargjald og friðþægingarfórn okk- ar vegna. I -___—---- -4

x

Fagnaðarboði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fagnaðarboði
https://timarit.is/publication/1103

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.