Fagnaðarboði - 01.01.1948, Blaðsíða 3
FAGNAÐARBOÐI
3
Orð lífsins
Það Orð er salt, og i alla staði þess vert,
að við því sé tekið, að Kristur Jesús kom
i lieiminn til að frelsa synduga menn, og er
ég þeirra fremstur. 1. Tim. 1, 15.
Átt þú fyrirgefningu svndanna og eilíft líf
fyrir blóð Krists?
Þetta er mál sem kemur öllum við, það flvt-
ur öllum annaðhvort líf eða dóm.
Allir eru að leitast við að gjöra framtið
sína örugga, hér i tímanlegum efnum, þótt
þeir viti, að þeir eiga ekki ráð á morgundeg-
inum.
Guðs Orð segir: Heimskingi, á þessari nóttu
verður sál þín af þér heimtuð, og hver fær þá
það, sem þú hefir aflað? Svo fer þeim, er
safnar sér fé og er ekki ríkur hjá Guði.
Lúk. 12, 20.—21.
Ekki er hægt að hafa neitt með sér, af
þvi, sem heiminum heyrir til.
Jesús segir: Eitt er nauðsjmlegt.
Það cr að velja góða hlutann.
Það er nauðsvnlegt að eignasl fullvissuna,
um fyrirgefningu syndanna, fyrir blóð Krists
úthelt á krossinum.
Eullvissan fæsl með þvi, að játa syndirnar
og biðja um fyrirgefningu og trúa Orði Drott-
ins er segir: Engann þann sem til mín kemur
niun ég burtu reka.
Sjáum ræningjann á krossinum, i dauðans
angist og skelfingu. Hrópið frá hans brest-
andi hjarla var: Jesú minnst þú mín, þegar
þú kemur i konungsdýrð þinnil Lúk. 23, 42.
Það stóð ckki á svarinu hjá Jesú. Sannlega
segi ég þér: í dag skaltu vera með mér í Para-
dis. Lúk. 23, 43.
Eða tollheimtumaðurinn, hann hrópaði:
Guð, vertu mér syndugum liknsamur! Lúk.
18, 13. Hann fór réttlættur heim til sin.
Hrópa þú til Drottins og Hann mun bæn-
heyra þig, því Hann hefur sjálfur sagt biðjið
og yður mun gefast; leitið, og þér munuð
finna; knýjið á, og fyrir yður mun upplok-
ið verða; því að hver sá öðlast sem biður,
og sá finnur, er leitar, og fyrir þeim mun upp-
lokið, sem á knýr. Lúk. 11, 9—10.
Þetta er fagnaðarboðskapurinn. Orð eilífa
lífsins, sem óhætt er að treysta og veita oss
þekkingu á hinum eina sanna Guði og þeiin
sem Hann sendi Jesúm Kristi.
Lofað sé Drottins heilaga Nafn.
Grasið fölnar, blómin blikna.
Brátt til jarðar falla hljótt.
Eins mun holdið hreikna kikna,
hallar degi kemur nótt.
Teigum bikar blóðsins mikla,
blessun veitir líf og þrótt.
Ilallelúja Hann er fyrstur,
Herrans lýður fagna má.
Gangið út nú kallar Kristur
komið skoðið laun að fá.
Réltlætis í skrúða skykkju
skal Ilans brúðir sigri ná.
Gangið inn og eignist ríkið,
eilifð frá, sem búið er.
Ástvinir míns Föðurs, flýtið
friðar kveðjan, lieyrið þér!
Mér til hægri handar setjisl.
Hæðstum Drottni vegsemd ber.
. Halldóra Einarsdóitir.
------------------------------------------7
FAGNAÐARBOÐI
er gefinn út af Sjálfseignarstofnuninni
Austurgötu 6, Hafnarfirði.
Heimili til boðunar Fagnuðurerindis i
náð Drottins Jesú Krists.
Tilgangurinn er, að blaðið flgtji hinn
heilnæma fagnaðarboðskap, umnáðarog
kærleiksverk Guðs, í Drottni Jesú Kristi
Frelsara vorum. Sem kom í heiminn til
að frelsa synduga menn, með þvi að
líða þjáningar og pislardauða, og gefa
sitt saklausa sáttmálablóð á krossinum
í lausnargjald og friðþægingarfórn okk-
ar vegna.
I -___—----
-4