Fagnaðarboði - 01.01.1948, Síða 5
FAGNAÐARBOÐI
5
cr Guðs vitnisburður mciri, því að þetta er
vitnisburður Guðs, að Hann hefur vitnað um
Son sinn. 1. i)r. Jóh. 5, 9.
i t
Hefir þú þreyfað á?
Jesús Kristur er áþreifanlegur öllum sem
trúa.
Hafa liendur þinar ekki ol't þreifað á misk-
unn Guðs, þegar þú liefir hrópað til Hans af
öllu hjarta þinu?
Hefir þú eklci þreifað á, að þegar hjarta þitt
var óhuggandi af skelfingu og liarmi verald-
arinnar og enginn mannleg hjálp gat veitt þér
nokkra lmggun, því alll var ómögulcgt í lijarta
þinu. Öll ráðin og mörgu orðin dugðu ekki.
Tárin runnu niður kinnar þinar óstöðvandi,
cn þcgar Jesú Orð, lindin frá Honum barst
að lljarta þínu, með elsku kærleikans og hjarta
þitt örþreytt drakk Orð Hans, svo nýtt líf
færðist inn í hjartað með alla mögulcikana.
Ilrvgðar og beiskjutárin breyttust áþreifan-
lcga í friðarsælu öruggleikans. Allt var og er
áunnið í Hans Föður umhyggju, scm aldrei
brugðist getur.
IJá er um að gera að missa ekki af hinni
áþreifanlegu huggun, er Guðs óendanlega
miskunn umvcfur þig.
Jesús Kristur cr i gær og í dag hinn sami
og um aldir. Heb. 13, 8.
Guðrún .lónsdóttir.
Almennar samkomur
boðun F’agnaðarerindisins
A.usturgötu 6, Hafnarfirði.
Sunnudaga .......... kl. 2 og 8 e. h.
Þriðjudaga .......... “ 8
Fimmtudaga .......... “ 8
Laugardaga . .. ..... “ 8
Hann dó svo að ég /rði frjáls
Og Hann steig út í bát og fór yfir um og
kom i sina eigin borg. Og sjá, menn færðu til
Hans lama mann, sem lá i rekkju; og cr
Jesús sá trú þeirra, sagði Ilann við lama
manninn: Vertu hughraustur, harnið mitt,
syndir þínar eru þér fvrirgefnar. Statt upp,
tak rekkju þína og far lieim til þín. Og hann
stóð upp og fór heim til sín. Matt: 9, 1—2. 7.
Það er auðskilið af þessum Orðum Jesú,
að það er syndin sem veldur veikindum. Fyr-
ir Guðs náð er ég glaður vfir að geta vitnað
um, að Jesús læknaði mig, þcgar hann gaf
mér náð til að falla fram á ásjónu mína og
meðganga syndir mínar fyrir mínum himncska
Föður, og biðja Hann að fyrirgefa mér af-
brotin. Þá læknuðust gömlu sárin mín án allr-
ar umhugsunar af minni hendi. Lof sé
Drottni.
Já, satt er það, að Guð vill ekki dauða synd-
ugs manns öllu lieklur að hann snúi sér og
lifi. Einmitt þessi Orð Drottins töluðu til mín,
þegar Heilagi Andinn opnaði hjarta mitt, og
ég sá Jesú Krist píndan og krossfestan fvrir
minar syndir.
Það var nýr boðskapur fyrir mig, að mínar
syndir orsökuðu krossfestingu Krists. Eg var
alltaf vanur að álasa Gyðingum fvrir að hafa
liflátið Guðs Eingetna Soninn, en að það
væri fvrirhugað að Jesús skyldi devja lil að
frelsa heiminn, það vissi ég ekki. Það var
boðun Fagnaðarerindis .Tesús sem bjargaði
mér.
Orð Drottins sannfærði mig um að Jesú
hefði leyst mig undan valdi djöfulsins, og
kcyj)t mig i sátt við sinn himneska Föður.
Þjónar Krists bentu mér á, að Jesú hefði
komið til að leysa mig undan lians valdi. Þökk
sé eilífum Jesús. Hann gaf mér náð til að
trúa sínu blessaða Orði. Heiður sé Kristi á
hæðum, Hann dó svo ég yrði frjáls.
Er eklci líkt ástatt fyrir þér lesari góður,
eða átt þú Jesús?
Kristján Sveinsson,