Fagnaðarboði - 01.01.1948, Blaðsíða 7
FAGNAÖARBOÐI
7
að verða stöðugir í trú og réttlæti, þeir taka
við vexti af Guðs náð.
Lofaður sé Guð og Faðir Drottins vors Jesú
Krists, sem í himinhæðum hefur fyrir Krist
blessað oss með hverskonar andlegri blessun,
eins og Hann' fyrir grundvöllun heimsins út-
valdi oss í Honum, til þess að vér værum
heilagir og lýtalausir fyrir Honum i kærleika.
Hann ákvað fyrirfram að taka oss fyrir Jesúm
Krist sér að sonum, samkvæmt velþóknun
vijja síns, dýrðlegi-i náð sinni til vegsemdar. Náð
lét Hann oss i té í liinum elskaða, en í Hon-
um eigum við endurlausnina fvrir Hans blóð,
fyrlrgefning afbrotanna. Er það samkvæml
ríkdómi náðar hans. Efesus 1, 3—7.
Við mennirnir erum eins og blóm sem hef-
ur náð vexti sínum, er nú búið að springa úl,
til þess að leggjast til vansæmdar. Letta er
útlit vort, þvi í dag vofir dauðinn yfir oss í
syndinni.
Grasið visnar, blómin fölna, þegar Drott-
inn andar á þau. Sannlega, mennirnir eru
gras: Grasið visnar, blómin fölna, en Orð
Guðs vors stendur stöðugt eiliflega. Jes. 40, 7.
-En i Kristi Jesú er burt tók svndir vorar og
afmáði dauðann, er maðurinn vegsamlegur,
J)vi hann lifir I hlýðni við Krist. Og Hans kröft-
ugi máttur birtist, sem Guð uppvakti Jesú í
frá dauðum, svo vér lifum nú fyrir Guðs
kraft í Krisli. Og hverskonar blessun Krists
ríki með oss i náð og frið Guðs.
Maðurinn í syndinni, sem ekki hefur þegið
endurlausnina, hann hefur ekki ennþá kom-
ið til að þiggja kraft upprisu Krists, því hann
hefur ekki veitt Orði Guðs viðtöku til frels-
unar.
Þegar við svo veitum Guðs náð viðtöku, þá
leggjum við niður vegsemd dauðans sem er
eins og grasið sem stendur í dag en á morg-
un í ofn kastað.
Mundu að Guðs Orð er sannleikur, og frels-
ar þig frá verkum Satans, sem er nógu slung-
inn til að gjöra sitt verk, blekkja þig með
lýginni, að þú munir losna við syndina þegar
þú ert kallaður burtu héðan, eða að verk þín
séu svo góð frammi fyrir Guðs dýrð, að þú
réttlætist af þeim án réttlætingar Jesú Krists.
Ef þú þurkar út réttlæti Jesú Krists þér til
handa þá hafnar þú kærleika Guðs. Hafnaðu
ekki náðinni og sannleikanum, sem kom fyrir
Jesúm. Krist Guðs Eingetinn Son, sem á
krossinum dó til að leysa oss synduga menn
frá syndum vorum.
Dýrð sé hinum réttláta.
Blessað veri Jesú Nafn með öllum er Hans
náð höndla.
Guðrún Jónsdóttir.
Vitnisburður
Veturinn 1937, lá ég sjúkur af taugagigt,
sem ég var þá búinn að ganga vanheill af í
11 ár. Misjafnlega lamáður, en aldrei frísk-
ur, en seinnipart vetrarins við rnjög illa líðan,
notaði stöðugt deyfilyf og komst ekki í svefn
á kvöldin án þeirra. Þar sem ég bjó i sveil
og átti fénað varð konan mín oft að liafa
skepnuhirðinguna þó miklu verki væri að
sinna i bænum, barnahópurinn stór og ég í
rúminu.
En svo lánaði bróðir minn mér son sinn
eflir þvi, sem hann gat, en átti óhægt með Jrað
vegna lasleika og svo var langt á milli okkar.
Um sumarmálin dreif ég mig upp úr rúm-
inu að Jeita mér læknishjálpar. En þá fékk ég
boðun Orðs Drottins, að Jjað væri lifandi
Sannleiksorð, sem á dögum hinna fyrstu posl-
ula. Og einnig var vitnað fvrir mér, af þeim,
sem búnir voru að fá fulla heilsu fyrir kraft
bænarinnar og náð Drottins Jesú, en höfðu
verið dauðanum ofurseldir, fvrir allri mann-
legri aðstoð og lækningu.
En veik var trú min í fyrstu, að ég yrði
þeirrar náðar aðnjótandi, að fá lækningu með
kraftaverki. En Drottin hjálpaði vantrú minni,
ég lcitaði ekki annarar hjálpar og eftir 3
daga gat ég' farið að vinna erfiðisvinnu. Sið-
an höfum við fengið að njóta þeirrar rikulegu
blessunar, að öllunr sjúkleika liefur verið af
okkur Jétt, mér og rninni fjölskyldu, þegar við
höfum snúið okkur til Drottins JesiT og beðið