Fagnaðarboði - 01.04.1952, Síða 5
FAGNAÐARBOÐI
5
Margit Anclersen:
Helgaðir miimingasteiiiar.
(Hrífandi vitnisburður um opinberun Drottins,
lœkningu og peningahjálp).
Þegar ég skrifa þetta niður, er tilgangurinn
ekki að hrósa sjálfri mér, heldur vil ég heiðra
Drottin minn og gera sem flestum kunnugt, hve
mikla hluti Jesús hefur fyrir mig gert.
„Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami og
um aldir.“ — Hebr. 13, 8.
,,Og Jósúa sagði við þá: „Farið fyrir örk Drott-
ins Guðs yðar, út í Jórdan miðja, og taki hver yð-
ar einn stein sér á herðar, eftir tölu ættkvísla
Israelsmanna. Skal þetta vera tákn meðal yðar.
Þegar synir yðar spyrja á síðan og segja: Hvað
eiga steinar þessir að jarteina? Þá skuluð þér
segja við þá: Það, að vatnið í Jórdan stöðvaðist
fyrir sáttmálsörk Drottins, þá er hún fór yfir
Jórdan. Vatnið í Jórdan stöðvaðist; og þessir
steinar skulu vera Israelsmönnum til minning-
ar æfinlega. — Jós. 4, 5—7.
Lofa þú Jahve, sála mín og gleym eigi neinum
velgjörðum Hans. — Sálm. 103, 2.
Eg vil hefja mál mitt með þessum orðum
Davíðs, þegar ég nú vil greina frá þeim dásam-
legu atburðum og þeirri ríku blessun, sem ég hef
orðið aðnjótandi í samfélaginu við Drottin, frá
1915 er ég gekk Honum á hönd. Mér er sérstak-
lega minnistæður atburður, er gerðist skömmu
eftir að við hjónin höfðum fundið Krist.
Við bjuggum þá í Skoger í Noregi. Mikil vakn-
ing átti sér stað um alla sveitina. Samkomuhúsin,
sem voru ýmist stór eða smá, voru þéttskipuð
ungum og gömlum, sem fólu sig Drottni. Þá not-
aði Drottinn, sem boðbera sinn mann að nafni
Madsen.
Kvöld eitt höfðum við hjónin ákveðið að fara
og hlusta á boðskap þessa blessaða bróður. Þetta
var seint að hausti til, þó enginn snjór væri enn
þá fallinn. Kvöldin voru dimm, ekkert tungls-
ljós og því illa ratfært. Þaðan, sem við bjugg-
um, var langt til samkomustaðarins.
Leiðin lá yfir skógivaxna smáhæð, þar sem
var enn þá dimmra vegna hárra og þéttra
grenitrjáa, er voru á aðra hönd og fjalls hins
vegar. Við gengum mjög hratt, til þess að kom-
ast í tæka tíð. Maðurinn minn gekk á undan.
Hann átti betra með að sjá veginn heldur en
ég, sem ætíð hef haft dapra sjón. Þegar við geng-
um þarna sagði ég við hann: Manstu eftir því,
þegar við fórum hér um síðast, þá var myrkrið
jafn svart hið innra með okkur eins og það er
nú umhverfis okkur? Eg hafði ekki sleppt sið-
asta orðinu fyrr en skært og mikið ljós ljómaði
yfir höfðum okkar. Nú varð bjart í kringum
okkur eins og um miðjan dag. Augu okkar beind-
ust upp á við og sáum við þá greinilega mosann
á grenitrjánum, og um leið heyrðum við undar-
legan þyt, er líktist vængjaþyt. Við fundum og
greinilega á andliti ckkar gustinn af vængjaslög-
unum. Ljós þetta kom ofan að, hægra megin
vegarins, skógarmegin, og stefndi í áttina til
fjallsins. Þegar það var horfið, stóðum við graf-
kyrr á veginum og tárin hrundu niður kinnar
okkar.
Þá sagði ég við manninn minn: Hvað var
þetta? Þetta var frá Guði, svaraði hann. Við
fengum bæði mikla blessun og hröðuðum okkur
til samkomunnar.
Þar sögðum við öllum frá því, sem fyrir okk-
ur hafði borið. Við hjónin töluðum oft um þetta
dásamlega ljós frá himni, sem við höfðum fengið
að sjá.
Við skildum þessá opinberun á þá leið, að
Drottin hefði viljað sýna okkur, að Hann hefði
tendrað sitt Ijós í hjörtum okkar. I hvert skipti
er ég gekk þarna um, fann ég til hinnar sömu
blessunar og ég varð að þakka Drottni í hjarta
mínu fyrir það, að þarna hafði Hann birzt okkur.
Því að Guð, sem sagði: Ljós skal skína fram úr
myrkri; Hann lét það skína í hjörtu vor, til þess
að birtu legði af þekkingu vorri á dýrð Guðs,
eins og hún kom í Ijós í ásjónu Jesú Krists.
2. Kor. 4, 6.
Ég man einnig eftir annarri dásamlegri opin-
berun.
I fyrri heimsstyrjöldinni 1914—1918 brauzt
út drepsótt, er nefndist spánska veikin. Hún barst
út um allan heim og úr henni dó f jöldi fólks, jafnt
ungir sem gamlir. Margir sýktust einnig í Skoger
og dauðsföllin urðu þar mörg.
Við höfðum þá sameiginlegar bænastundir í
húsunum og lásum venjulega Sálm 91.
Sæll er sá, er situr í skjóli hins Hæsta,
sá er gistir í skugga hins Almáttka,
sá er segir við Drottin: Hæli mitt og háborg,