Fagnaðarboði - 01.02.1961, Blaðsíða 1

Fagnaðarboði - 01.02.1961, Blaðsíða 1
Vroilinn... hjá þér leita cg hcdis Drottinn, ég ákálla þig, skunda þú til mín, Ijá eyra raust minni, er ég ákálla þig. Bæn mín sé framborin sem ilmfórn fyrir auglit þitt, upplyfting lianda minna sem matfórn að kveldi. Set þú, Drottinn, vörð fyrir munn minn, gæzlu fyrir dyr vara minna. Lát eigi hjarta mitt hneigjast að neinu illu, að því að fremja óguðleg verk með illvirkjum, og lát mig eigi eta krásir þeirra. Slái réttlátur maður mig af elsku og hirti mig, þá skal höfuð mitt eigi færast undan höfuðsmyrslum, en geri hann það aftur, þá snýst bæn mín gegn illsku þeirra. Dómurum þeirra verður hrundið niður af kletti, og þeir hafa heyrt Orð mín, að þau eru yndisleg. Eins og maður plægir og klýfur jörðina, svo var beinum vorum tvístrað í gin Heljar. Þvi að til þín, Drottinn, Herra, mæna augu mín, hjá þér leita ég hælis, sél þú eigi fram líf mitt. Varðveit mig fyrir gildru þeirra, er sitja um mig, og fyrir snörum illvirkjanna. Hinir óguðlegu fálla í sitt eigið net, allir saman, en ég sleppi undan. lýl. Davíðs-sálmur. William Branham: Zrúir þú þtssu? (Jóh. 11, 26.) (Framhald úr síðasta blaði.) Er Jesús var skírður og Andinn Heilagi hafði komið yfir Hann, var Hann leiddur út í óbyggðina, þar sem Hans var freistað af djöflinum. Hinn sami óvinur mun einnig freista þín, þá er beðið hefir verið fyrir þér til lækningar. Stundum kann svo að virðast, sem öll fyrri veikindi þín herji nú á þig á ný. Um þetta sagði Jesús: En þegar óhreinn andi er farinn út af manninum, fer hann um vatnslausa staði og leitar hvildar, en finnur ekki. Þá segir hann: Eg vil hverfa aftur í hús mitt, þaðan sem ég fór. Og er hann kemur, finnur hann það tómt, sápað og prýtt. Þá fer hann og tekur með sér sjö aðra anda sér verri, og þeir fara inn þangað og setjast þar að; og verður svo hið síðara þess manns verra en hið fyrra. Djöfullinn leitar ávallt færis, að freista hvers og eins þar sem hann er veikastur fyrir. Þá er Kristur hafði fastað í 40 daga og tók að hungra, freistaði djöfullinn Hans og sagði: Bjóð þú, að steinar þessir verði að brauð- um. Móse var skapmikill. Það notfærði djöfullinn sér. Mér er með öllu ókunnugt um, á hvern hátt hann kann að freista þín, en hann finnur örugglega hvar þú ert veikastur fyrir. Ég iðkaði áður fyrr hnefaleika og var sigurvegari í bantam-vigt í heimabyggð minni. Engum hafði enn tek- izt að vinna þennan meistara-titil af mér, þegar ég endurfæddist og gekk út í köllunar-starf mitt. Ég var

x

Fagnaðarboði

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fagnaðarboði
https://timarit.is/publication/1103

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.