Fagnaðarboði - 01.04.1961, Blaðsíða 1

Fagnaðarboði - 01.04.1961, Blaðsíða 1
Hetlnnm kenmng Vyr lifsins Pállj þjónn Guös, en postuli Jesú Krists, til að efla trú Guðs útvöldu og þekking á sannleikanum, sem leiðir til guðhræðslu í von um eilíft líf. Því hefir Guð, sá er ekki lýgur, heitið frá eilífum tíðum, en opinberað á sínum tíma. Þetta Orð Hans var mér trúað fyrir að prédika eftir skipun Guðs Frelsara vors. Til Títusar, skilgetins sonar í sameiginlegri trú. Náð og friður frá Guði Föður og Kristi Jesú, Frelsara vorum. Þess vegna lét ég þig eftir í Krit, til þess að þú færðir í lag það sem ógjört var og skipaðir öldunga í hverri borg, svo sem ég lagði fyrir þig; þann einn, sem er óaðfinnanlegur, einnar konu eiginmaður, á trúuð börn, sem eigi eru sökuð um andvaráleysi eða þrjózku. Því að biskup á að vera óaðfinnanlegur, eins og ráðsmaður Guðs, ekki sjálfbirgingur, ekki reiðigjarn, ekki drykkju- maður, ekki áflogamaður, ekki sólginn í svívirðilegan gróða; heldur gestrisinn, gott elskandi, hóglátur, rétt- látur, heilagur, bindindissamur; maður fasthéldinn við hið áreiðanlega Orð, sem samkvæmt er kenningunni, til þess að hann sé fær um bæði að áminna með hinni heilnæmu kenningu og hrekja þá, sem móti mæla. Því að margir eru þverbrotnir og fara með hégóma- mál og leiða í villu, allra hélzt eru það umskurnar- mennirnir. (Tít. 1, 1—10.) Ég er dyrnar; ef einhver gengur inn um mig, sá mun hólpinn verða, og hann mun ganga inn og ganga út og fá fóður. Þjófur- inn Jcemur ekki nema, til þess að stela og slátra og eyða. (Jóh. 10, 9-10.) Það, sem Kristur talar til Gyðinganna, er augljóst mál. Hann minnir þá á dyrnar inn í sauðabyrgið, minnir þá á, hvernig spámennirnir hefðu allir komið með Orð frá Guði. Spámennirnir hefðu allir tekið við af einum hirði sem samverkamenn Guðs í því að flytja Gyðingunum Guðs kærleiksráð. Vegurinn var ekki nema einn til lífsins, dyrnar ekki nema einar, — fórnardyr kærleikans, er Guð opnaði föllnum mönnum — Adam og Evu — með fyrirheiti um þjónustu lífsins. Með fórn sinni er Kristur dyrnar að hjarta Guðs, og allir, sem ætla sér til Guðs fyrir annað, þeir eru þjófar og ræningjar. Gyðingarnir skyldu ekki líkinguna í fyrstu svo Jesús sagði þeim hana aftur, því Guði er annt um að Hans kær- leika sé veitt viðtaka. Svo segja þeir, sem mótsnúnir eru Guðs náð: „Þetta er alltaf hið sama gamla upp aftur og aftur. Ekkert nýtt.“ Já, þannig er það. Guð er óumbreytanlegur. Hann

x

Fagnaðarboði

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fagnaðarboði
https://timarit.is/publication/1103

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.