Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2010, Blaðsíða 17
Sigurbjörg Ólafur Guðjónsson. Þórdís
Stefánsdóttir. Guömundsdóttir.
var hann héraðslæknir í Blönduóshéraði í nokkra
mánuði. I byrjun árs 1932 hélt hann til Björgvinjar
í Noregi í sérfræðinám á lyflækningadeild á
Haukeland sjúkrahúsinu. Jóhann fór einnig
til Danmerkur og starfaði meðal annars á
taugalækningadeild Kommunehospitalet og
Rigshospitalet í Kaupmannahöfn. Árið 1935 hélt
hann til íslands og starfaði sem aðstoðarlæknir
á lyflækningadeild Landspítalans. í ársbyrjun
1937 var hann ráðinn tryggingayfirlæknir hjá
Tryggingastofnun ríkisins en hún var stofnuð
með lögum um alþýðutryggingar 1936. Frum-
varp að lögum um almannatryggingar hafði
Haraldur Guðmundsson (1892-1971) þingmaður
Alþýðuflokks samið. Árið 1934 tók stjórn
Alþýðuflokks og Framsóknarflokks við völdum
og sammæltist hún um víðtækar efnahags-
og félagslegar umbætur þar á meðal lög um
alþýðutryggingar sem tóku gildi 1. febrúar 1936.3'53
Árið 1942 gerðist einstakur atburður
í íslenskum stjórnmálum vegna langvinnrar
stjórnarkreppu. Þá var gripið til þess ráðs að skipa
utanþingsstjórn undir forsæti Björns Þórðarsonar,
lögmanns og héraðsdómara í Reykjavík. Björn
varð forsætis- og heilbrigðisráðherra í þessari nýju
stjórn. í utanþingsstjórn voru
einnig þeir Einar Arnórsson
hæstaréttardómari, sem
varð dómsmálaráðherra,
Vilhjálmur Þór bankastjóri,
sem varð utanríkis- og
atvinnumálaráðherra, Björn
Ólafsson stórkaupmaður,
sem varð fjármálaráðherra og
Jóhann Sæmundsson trygg-
ingayfirlæknir, sem var
skipaður félagsmálaráð-
Johann Sæmundsson. , „„ , ,
herra 22. desember
1942. Jóhann sagði af sér embætti félags-
málaráðherra í apríl 1943 og tók Björn Þórðarson
við ráðherraembætti hans.2254'55
Jóhann Sæmundsson varði doktorsritgerð við
Karolinska Institutet í Stokkhólmi í Svíþjóð
árið 1948. Ritgerð hans ber heitið Potassium
concentration in human gastric juice. With special
reference to parasijmpathetic stimulation during
insulin hypoglt/cemia.3'56
í byrjun september 1948 tók Jóhann við
embætti prófessors í lyflæknisfræði við Háskóla
íslands en hann hafði verið skipaður í embættið
í júlí árinu áður. Hann varð jafnframt yfirlæknir
lyflækningadeildar Landspítalans. Nokkur styr
stóð um veitingu prófessorsembættis því að
læknadeild Háskóla íslands hafði lagt til að Óskari
Þórðarsyni (1906-1995) sérfræðingi í lyflækningum
yrði veitt embættið þar sem hann „hafði hlotið
sem bestan undirbúning undir hið væntanlega
starf" en Jóhann hlaut prófessorsstöðuna.57
Þegar Jóhann tók við starfi prófessors tók hann
við embætti Jóns Hjaltalín Sigurðssonar lyflæknis
og prófessors en hann hafði verið kertnari við
Háskóla íslands frá stofnun skólans 1911.3- 58
Sverrir Bergmann taugalæknir telur að Jóhann
hafi kennt læknanemum taugasjúkdómafræði og
þannig „opnað hlið" fyrir sérgrein taugalækninga
hér á landi.31
Árið 1954 fór Jóhann í leyfi vegna veikinda og
kom aldrei aftur til kennslu. Hann lést í júní árið
1955.59
Þýskur taugalæknir leitar hælis á íslandi
Sama ár og Jóhann Sæmundsson hlaut sérfræði-
leyfi í taugalækningum 1938 kom hingað til lands
flóttamaður af gyðingaættum, Karl Moritz Kroner
(1878-1954) að nafni. Karl hafði búið í Berlín ásamt
LÆKNAblaðið 2010/96 Fylgirit 64 17