Bæjarins besta - 04.01.2007, Qupperneq 1
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk
Fimmtudagur 4. janúar 2007 · 1. tbl. · 24. árg.
Gleðilegt ár!
Pétur Tryggvi bæjarlistamaður
Bæjarlistamaður Ísafjarðar-
bæjar var útnefndur við hátíð-
lega athöfn í Safnahúsinu á
Eyrartúni á laugardag. Sá sem
hlýtur nafnbótina að þessu
sinni er silfursmiðurinn Pétur
Tryggvi Hjálmarsson, en hann
hefur getið sér gott orð bæði
hér á landi sem og erlendis
fyrir verk sín í silfursmíði.
Ásamt sjálfri nafnbótinni,
sleginni í heiðursskjal, hlaut
Pétur Tryggvi að launum verð-
launagrip eftir listakonuna
Dýrfinnu Torfadóttur og pen-
ingafjárhæð. Pétur Tryggvi
lauk sveinsprófi í gullsmíði
hjá föður sínum, Hjálmari
Torfasyni, árið 1979, og hefur
unnið við gull- og silfursmíði
síðan. Hann stundaði nám í
Institut for Ædelmetal í Kaup-
mannahöfn 1981-83.
Silfursmíði Péturs Tryggva
hefur víða vakið athygli og
hann hefur unnið til fjölda við-
urkenninga fyrir verk sín. Alt-
ariskanna sem hann smíðaði
var til að mynda kosin eitt af
bestu silfurverkum 20. aldar
af Koldinghus-listasafninu á
Jótlandi, en þar er eitt stærsta
silfursafn Evrópu.
Pétur Tryggvi er sá sjöundi
í röðinni sem ber titilinn, en
fyrrum bæjarlistamenn Ísa-
fjarðarbæjar eru: Reynir Torfa-
son, myndlistarmaður, Jón Sig-
urpálsson, myndlistarmaður
og safnvörður, Harpa Jónsdót-
tir, rithöfundur og kennari,
Vilberg Vilbergsson, rakari og
tónlistarmaður, Jónas Tómas-
son tónskáld og Elfar Logi
Hannesson leikari.
Sjá viðtal við Pétur Tryggva
á bls. 7. – annska@bb.is
Gísli Halldórsson forseti bæjarstjórnar sæmir Pétur Tryggva nafnbótinni.