Bæjarins besta - 04.01.2007, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2007 3
Gjaldfrjáls heimaþjónusta
Heimaþjónusta við aldraða og öryrkja í þéttbýli Súðavíkurhrepps verður hér eftir gjaldfrjáls. Var þetta
samþykkt á fundi sveitarstjórnar sem haldinn var fyrir áramót. Komið hafði tillaga frá félagsmálanefnd
um að greiðslur skjólstæðinga yrðu lagðar niður þar sem í ljós hafði komið að þeir sem rétt hefðu á
þjónustunni hefðu ekki nýtt hana til fulls og starfsmaður því ekki nýst sem skyldi. Eins og áður segir
verður hin gjaldfrjálsa þjónusta í boði fyrir íbúa þéttbýlis í hreppnum, en komi fram óskir frá íbúum
dreifbýlis um heimaþjónustu verða þær skoðaðar sérstaklega. Þá lagði félagsmálanefnd einnig til að bætt
yrði í starfslýsingu að starfsmanni heimilishjálpar væri ekki heimilt að sinna garðyrkjustörfum.
Ísfirsk stúlka á sautjánda
ári slasaðist alvarlega á
skíðum í Geilo í Noregi um
helgina en hún var þar stödd
í skíðaferð ásamt hópi frá
Skíðafélagi Ísafjarðar. Sam-
kvæmt upplýsingum blaðs-
ins var stúlkan að skíða við
erfiðar aðstæður, þar sem
bæði færi og skyggni var
slæmt. Lenti hún út af braut-
inni og rakst á tré.
Stúlkan er úr allri lífs-
hættu en hún hlaut innvortis
blæðingar og meiðsl á hrygg.
Stúlkan liggur á sjúkrahúsi
í Osló og verður flutt heim
til Íslands á næstu dögum.
Samkvæmt upplýsingum
blaðsins slasaðist annar ís-
lenskur skíðamaður í Geilo
sama dag. – thelma@bb.is
Slasaðist á
skíðum í Noregi
Árið 1997 voru íbúar Vest-
fjarða yfir fertugu 35,5%
heildaríbúafjölda á Vestfjörð-
um, eða 3.073 af alls 8.634
manns, en í dag eru þeir 44,8%
heildaríbúafjölda, eða 3.347
af alls 7.470. Er því ljóst að
íbúafjöldi Vestfjarða er að eld-
ast nokkuð. Ef litið er til ald-
urshópsins 0-9 ára voru sem
dæmi 1.432 börn á þeim aldri
búsett á Vestfjörðum árið
1997 en eru einungis 960 í
dag. Er það fækkun um 33%.
Börn og unglingar á aldrin-
um 10-19 ára voru 1.511 árið
1997 en eru 1.220 í ár, og er
það fækkun upp á 19,3%. Íbú-
ar á aldrinum 20-29 ára voru
1.211 árið 1997 en eru 1.024 í
dag, og er það fækkun upp á
15,5%. Íbúum á aldrinum 30-
39 ára hefur þá fækkað mikið
en þeir voru 1.407 árið 1997
en eru 919 í dag, er það fækk-
un upp á 34,7%. Eldra fólki
hefur að sama skapi fjölgað í
flestum aldursflokkum. Þó ber
að geta þess að íbúum yfir
níræðu hefur fækkað úr 41 í
29. Alls er fólksfækkun á
tímabilinu 13,5%.
Íbúar Vestfjarða nokkuð
eldri en fyrir níu árum
Útgerðarfélagið Öngull í afmælisskapi
Útgerðarfélagið Öngull hélt
upp á 10 ára afmæli sitt á
laugardag í beitningaraðstöðu
sinni á Ísafirði. Í stað þess að
þiggja gjafir eins og tíðkast
oft í afmælum brugðu útgerð-
armennirnir hjá Öngli á það
ráð að úthluta gjöfum. Þeir
sem standa á bak við fyrir-
tækið eru Kristján Andri Guð-
jónsson, Guðjón Arnar Krist-
jánsson, Tryggvi Guðmunds-
son og Heimir Tryggvason og
völdu þeir félagar þrjá aðila
til að hljóta peningastyrk frá
fyrirtækinu. Þau sem fengu
styrki eru: Björgunarfélag Ísa-
fjarðar sem hlaut 100.000
króna styrk, Krabbameinsfé-
lagið Sigurvon sem einnig
fékk 100.000 króna styrk og
50.000 króna styrk fékk svo
útibú Stígamóta sem er í þann
mund að líta dagsins ljós á
Ísafirði.
Kristján Andri Guðjónsson
segir að stjórn Önguls hafi
viljað láta gott af sér leiða
vegna áfangans og leyfa sam-
félaginu að taka njóta með
þeim. „Við höfum alltaf verið
mjög heppnir með starfsfólk
og aldrei lent í neinum stór-
áföllum þó þetta hafi gengið
upp og niður til dæmis vegna
gengisbreytinga“ sagði hann
í samtali við blaðið.
Í afmælinu stiklaði Kristján
Andri á stóru í sögu útgerðar-
innar og sagði meðal annars
frá því að skip félagsins hafi á
þessum 10 árum fiskað 2136
tonn og er verðmæti þess afla
266 milljónir. Hann kom einn-
ig inn á þróun fiskverðs, en
árið 1996 var meðalverð hjá
útgerðinni 77 krónur á kílóið
en síðasta ár var það 176 krón-
ur. Tvö skip hafa verið í eigu
útgerðarinnar frá því hún var
stofnuð en það eru Sörli ÍS
var gerður út árunum 1996 -
1999, og Björg Hauks ÍS sem
gerð hefur verið út frá 1999.
– annska@bb.is
Eigendur Önguls í afmælishófinu, þeir Tryggvi Guðmundsson, Kristján
Andri Guðjónsson, Guðjón Arnar Kristjánsson og Heimir Tryggvason.
Kristján Andri Guðjónsson afhendir Sunnevu Sigurð-
ardóttur styrk vegna stofnunar Stígamóta á Ísafirði.
Þrjátíu og þrjú þjóðarbrot á Vestfjörðum
Fólk með 33 mismunandi
ríkisföng, að íslensku með-
töldu, býr á Vestfjörðum. Lit-
ríkast er samfélagið í Ísafjarð-
arbæ en þar má finna fólk með
a.m.k. 27 mismunandi ríkis-
föng, en alls eru erlendir rík-
isborgarar í Ísafjarðarbæ 325
talsins, af 4.098 íbúum, eða
7,9%. Þar eru Pólverjar at-
kvæðamestir eða 184, og 4,5%
af heildaríbúafjölda. Næst þar
á eftir eru filipseyskir ríkis-
borgarar, sem telja 23 manns,
eða 0,56% af heildaríbúa-
fjölda.
Taílenskir ríkisborgarar eru
einum færri eða 22 og 0,53%
af heildaríbúafjölda. Þýskir og
eistneskir ríkisborgarar eru
jafn stórir hópar, og telja báðir
13 manns. Í Ísafjarðarbæ búa
þá 11 manns frá Tékklandi og
Slóvakíu, en fyrrum íbúar
Tékkóslóvakíu eru færðir í
einn flokk hjá Hagstofu. Þá
búa sjö Danir, sjö Svíar, sjö
Bretar og sjö íbúar frá fyrrum
ríkjum Júgóslavíu í Ísafjarðar-
bæ.
Sökum þess að íbúar fyrrum
ríkja Júgóslavíu annars vegar
og íbúar fyrrum Tékkóslóv-
akíu hins vegar eru færðir
saman í einn flokk er ekki
hægt að fullyrða nákvæmlega
um fjölda ríkisfanga, en þau
eru eins og áður segir a.m.k.
33 á Vestfjörðum, en gætu
verið fleiri eftir því frá hvaða
ríkjum innan áðurnefndra
fyrrum ríkjasambanda íbúarn-
ir koma.
Alls er að finna a.m.k. 11 mis-
munandi ríkisföng í Bolung-
arvík; í Reykhólahreppi býr
fólk af tveimur ríkisföngum; í
Tálknafjarðarhreppi býr fólk
af 9 ríkisföngum; Í Vestur-
byggð býr fólk af 9 ríkisföng-
um; í Súðavíkurhrepp býr fólk
af fjórum ríkisföngum; í Ár-
neshreppi býr fólk af einu
ríkisfangi; í Kaldrananes-
hreppi býr fólk af þremur rík-
isföngum; í Bæjarhreppi býr
fólk af einu ríkisfangi; og í
Strandabyggð býr fólk af fjór-
um ríkisföngum.
Alls búa 7.473 íbúar á Vest-
fjörðum. Af þeim eru 526 með
erlent ríkisfang en 6.947 með
íslenskt. Tölurnar hér að ofan
eru fengnar frá Hagstofu Ís-
lands. Þær eru bráðabirgða-
tölur sem miðast við 1. desem-
ber síðastliðinn.
– eirikur@bb.is
Litríkast er samfélagið í Ísafjarðarbæ en þar má finna fólk með a.m.k. 27 mismunandi ríkisföng.