Bæjarins besta - 04.01.2007, Qupperneq 6
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 20076
Útgefandi: H-prent ehf., kt. 600690-1169, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 · Ritstjóri:
Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is · Blaðamenn: Eiríkur Örn Norðdahl, símar 456 4694 og 845
2685 eirikur@bb.is – Thelma Hjaltadóttir, símar 456 4693 og 849 8699, thelma@bb.is – Anna Sigríður Ólafs-
dóttir, símar 456 4680 og 860 6062, annska@bb.is · Ritstjóri netútgáfu bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson ·
Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is · Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson
og Halldór Sveinbjörnsson · Lausasöluverð er kr. 300 eintakið með vsk. Veittur er afsláttur til elli- og örorkulíf-
eyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. · Önnur útgáfa: Ferðablaðið Á ferð um Vestfirði. · ISSN 1670 - 021X
Litið um öxl
Ritstjórnargrein
Togaraútgerðin stöðvast
vegna hallarekstrar
Á þessum degi fyrir 49 árum
Ástandið í útvegsmálum er um þessar mundir hið alvarleg-
asta. Í mörgum stærstu verstöðvunum hefur samkomulag LÍÚ
við sjávarútvegsmálaráðherra ekki ennþá verið samþykkt og í
sumum hefur því beinlínis verið hafnað, að því er kauptrygg-
ingu sjómanna. Hjá togaraútgerðinni ríkir fullkomið vandræða-
ástand. Hélt Félag íslenskra botnvörpuskipaeiganda fund í
fyrradag til þess að ræða þessi mál og var þar samþykkt að
skýra sjávarútvegsmálaráðherra frá því að það væri eindregin
skoðun fundarins að togaraflotinn myndi stöðvast mjög fljót-
lega ef ekki fengist stórlega bættur rekstrargrundvöllur skipanna
frá því sem var á sl. ári. Ennfremur samþykkti fundurinn að
engar líkur væru til þess að útgerðin gæti haldið áfram nema
sérstök aðgerð yrði veitt vegna hallarekstrar sl. árs.
Þessi tillaga mun hafa verið samþykkt með samhljóða
atkvæði allra þeirra félaga í Félagi íslenskra botnvörpuskipa-
eigenda sem til hefur náðst.
Til ritstjóra Bæjarins besta,
Sigurjóns J. Sigurðssonar
Sólgötu 9, 400 Ísafjörður
Var að lesa opnuviðtalið við
Kristján Frey Halldórsson í
52. tbl. 23. árgangs Bæjarins
besta. Ég verð að segja eins
og er að mér brá þegar ég las
eftirfarandi: „Tillögur meiri-
hlutans stíluðu inn á það sem
mér fannst vera keypt niður-
staða frá VST um að grunn-
skólinn ætti heima í Norður-
tangahúsinu.“
Þarna er farið algjörlega
með rangt mál og vísum þess-
um fullyrðingum til föðurhús-
anna. VST var alls ekki beðið
um neina skýrslu um þetta
tiltekna mál. VST tók enga
afstöðu í þessu máli og átti
engan þátt í því á nokkurn
hátt. Var ekki beðin um það
né óskaði eftir því.
Að halda svona löguðu fram
um fyrirtæki í þeim geira sem
VST starfar í, er í raun heimsku-
legt af þeim sem það gerir og
þarf varla að skýra það nánar.
Hver vill skipta við verk-
fræðistofu sem vinnur svona?
Er líklegt að þeir sem óska
eftir fyrirfram gefinni niður-
stöðu treysti viðkomandi verk-
fræðistofu? Ég mundi ekki
gera það og ég reikna ekki
með að Kristján Freyr Hall-
dórsson mundi gera það. Hvaða
verkfræðistofa mundi kasta
trausti viðkiptavina sinna frá
sér með því að taka þátt í svona
athæfi? Engin.
Að halda þessu fram er
alvarleg aðdróttun um að ekki
sé heiðarlega staðið að verk-
um hjá stofunni. Það þykir
okkur leitt og lítum mjög
alvarlegum augum.
Þess er krafist að ábyrgða-
maður Bæjarins besta birti á
áberandi stað í næsta tölublaði
blaðsins, yfirlýsingu um að
þarna var farið alrangt með,
hvort sem það er vegna mis-
mælis, misritunar, annarlegra
ástæðna eða einhvers annars.
Árni Traustason, útibús-
stjóri Verkfræðistofu Sigurð-
ar Thoroddsen hf (VST).
Athugasemd vegna viðtals
við Kristján Frey Halldórsson
Styrkja rekstur miðstöðvar
Súðavíkurhreppur styrkir á næsta ári rekstur miðstövar á
Vestfjörðum fyrir fólk sem býr við skert lífsgæði. Var þetta
ákveðið á fundi sveitarstjórnar í síðustu viku. Samkvæmt
beiðni frá forsvarsmönnum miðstöðvarinnar var farið fram
á 15 þúsund króna framlag á mánuði næsta ár, samtals
180 þúsund krónur. Samþykkti sveitarstjórn að veita
verkefninu styrk að fjárhæð 72 þúsund krónur á næsta ári.
Magnús Reynir ráðinn framkvæmdastjóri
Magnús Reynir Guðmundsson, bæjarfulltrúi Frjálslynda flokksins í
Ísafjarðarbæ, hefur tímabundið verið ráðinn framkvæmdastjóri
flokksins, en eins og sagt hefur verið frá er Margrét Sverrisdóttir
komin í launað leyfi sem framkvæmdastjóri án vinnuskyldu. Gerðist
það í kjölfar deilna í flokknum vegna stefnu í innflytjendamálum.
Magnús Reynir hefur verið ráðinn fram yfir landsfund sem haldinn
verður 27. janúar næstkomandi, en þá stendur til að endurmeta
stöðuna.
Sveitarstjórn Súðavíkur-
hrepps hefur samþykkt að gera
ekki athugasemdir við fyrir-
hugaða sölu fasteigna Frosta
hf. til Hraðfrystihússins –
Gunnvarar. Fyrir liggur tilboð
í fasteignirnar sem liggja við
Njarðarbraut 1, 3 og 5 í Súða-
vík. Þá er sveitarstjórn kunn-
ugt um áhuga nokkurra ein-
staklinga til að eignast ofan-
greindar fasteignir, en telur
sig ekki hafa forsendur til að
taka afstöðu gagnvart öðrum
tilboðum en því sem fyrir ligg-
ur. Eins og sagt var frá á sínum
tíma var Frosti hf. stofnaður
um rækjuveiðar og –vinnslu
sem áttu þá mjög undir högg
að sækja alls staðar á landinu
vegna aflabrests. Veiðar og
vinnsla á rækju lögðust síðar
af í Súðavík.
„Í framhaldi af því fóru í
gang viðræður við lánadrottna
og er verið að leysa úr þeim
málum eins vel og hægt er.
Eitt af þeim verkum sem ráðist
var í og samkomulag var um,
var að taka húsið sérstaklega
út úr rekstrinum og gera það
sjálfbært með leigutekjum“,
segir Ómar Már Jónsson,
sveitarstjóri í Súðavík.
Tillaga um að gera ekki
athugasemdir við söluna var
samþykkt með fjórum at-
kvæðum sveitarstjórnarmanna,
en einn sat hjá.
– hbh
Gerir ekki athugasemdir við
sölu fasteigna Frosta til HG
Skæður vargur í Súgandafirði
Helga Guðný Kristjánsdótt-
ir og Björn Birkisson, bændur
að Botni í Súgandafirði, komu
að ær sinni illa útleikinni eftir
tófu rétt fyrir áramótin. Aðeins
framparturinn var eftir af
skepnunni svo ætla má að
rebbi hafi fengið þar góða jóla-
steik. „Tófan hefur byrjað að
éta kindina aftan frá og var
búin með lærið, búin með
lundirnar og komin upp að
rifjum. Þetta var lamb síðan í
vor“, segir Helga Guðný.
Hún segir að mikið sé af
tófu á svæðinu sem valdi mikl-
um skaða. „Tófan er orðin svo
skæð að hún er nærrum búin
að útrýma mófuglinum og
þegar hún kemst í varp er eins
og sprengju hafi verið varpað
þar svo mikill er skaðinn.
Sveitarfélögin þurfa að leggja
meira fé í að útrýma varginum
því það er ekki bara fé bænda
og fuglalífinu sem hún veldur
skaða heldur lífríkinu í heild.
Þá er einnig mikið að mink
hér sem er ekki síður skaðleg-
ur.“
Þá rakst heimilisfólkið á
Botni á tvær veturgamlar
kindur og varð önnur þeirra
svo hrædd við hund að hún
tók á sprett og stökk fram af
klettunum út í sjó. „Stundum
verða kindurnar svo hræddar
að þær stökkva út í sjó og
synda þar til þær drukkna. Við
vorum nú svo heppin að þessi
ær áttaði sig og kom í land þar
sem við gátum ná henni.“
– thelma@bb.is
Það var ljót sjón sem beið heimilisfólksins á Botni. Mynd: Jón Víðir Njálsson.
Eftir fremur rysjótt tíðarfar það sem af er vetri kvaddi árið
með hefðbundnu gamlárskvöldsveðri sem og gerði lands-
mönnum kleift að bæta fyrra met í fírverkinu um fimmtung.
Var þó síður en svo við litla viðmiðun að ræða. Enn eitt
heimsmetið sem Íslendingar eiga var bætt.
En fátt er svo með öllu illt að ei boði gott. Áramótin á
Íslandi eru orðin söluvara. Með hverju árinu fjölgar útlend-
ingum sem leggja leið sína til landsins til að sjá þetta brjálæði,
eins og þeir munu hafa orðað það, sem hvergi fyrirfinnst á
nokkru öðru byggu bóli.
Árviss þáttur áramótanna eru hugleiðingar stjórnmálafor-
ingjanna þar sem gamla árið er gert upp um leið og loforðalínur
eru lagðar í von um afla á kosningavetri, eins og nú er fram
undan. Í þeim efnum sýnist sitt hverjum formanninum á
hvaða mið skal róa. Alla jafnan eru þessar játningar lítt
spennandi lestrarefni þótt auðvitað sé þar munur á. Í einu eiga
foringjarnir þó samleið að þessu sinni: Að biðla til kjósenda
í kosningunum á komandi vori.
BB hefur ekki legið á gagnrýni sinni á bruðlinu í utanríkis-
þjónustunni þar sem ótrúlegur ofvöxtur hefur átt sér stað; þar
sem vinafólki og uppgjafa stórnmálamönnum (nú orðið allra
flokka, að því er best verður séð) sem annað tveggja töldu
orðið vonlaust að berjast fyrir áframhaldandi þingsetu eða
þurfti að losna við til að leysa innri flokksmál, var úthlutað
sendiherraembættum eins og hverjum öðru gjafabréfi í stór-
mörkuðum. Litið til fortíðar stingur yfirlýsing núverandi
utanríkisráðherra um að sendiráðin séu of mörg og að sendi-
herrum verði ekki fjölgað frá því sem nú er því skemmtilega
í stúf við afrekaskrá forvera hennar í embættinu. Þótt fækkun
sendiráða hafi ekki verið lofað er þetta fyrsta skref ráðherrans
jákvætt. Frekari lofsöngur yfir framtakinu verður þó látinn
bíða síðari tíma þar sem eftir á að koma í ljós hvort orð ráð-
herrans halda eða hvort –svona gerir maður ekki- (í garð vina
og kollega) ber fyrirætlanir ráðherrans ofurliði.
Fullyrða má að fólk hafi horft agndofa á aftöku Saddams
Hussein, enda hefur hún verið fordæmd víðast hvar þótt
forseti Bandaríkjanna hafi séð ástæðu til að fagna, enda vart
við öðru að búast úr þeirri átt. Hvað sem öllum grimmdarverk-
um þessa illræmda einræðisherra líður er næsta víst að afleið-
ingar aftökunnar munu hafa þveröfug áhrif á við það sem til
var ætlast. Með henni var líka komið í veg fyrir að réttað yrði
með eðlilegum hætti í fjölda óhæfuverka sem einræðisherrann
er sagður bera ábyrgð á.
Sambúðarvandamál þjóða verða ekki leyst með afstöðunni
sem felst í auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. Það er skelfileg
tilhugsun að valdamestu menn heims skuli vera blindir fyrir
þessum einfalda sannleika. Og ekki bætir um þegar þeir telja
sér trú um að þeir gangi helveginn í nafni almættisins.
s.h.