Bæjarins besta - 04.01.2007, Page 12
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 200712
dr. Ólína Þorvarðardóttir, fyrrv. skólameistari Menntaskólans á Ísafirði skrifar
Ljós í vetrarmyrkri
Þann 20. desember s.l. var
listaverkið „Ljósið“ eftir Hrein
Friðfinnsson afhjúpað á skóla-
torgi Menntaskólans á Ísafirði,
að viðstöddum velunnurum
og aðstandendum skólans.
Var þar saman kominn nokkur
hópur fólks við látlausa en
virðulega athöfn í tilefni þessa
viðburðar, sem hefur átt sér
nokkurn aðdraganda.
Þetta listaverk, sem lýsir
upp skólatorgið og veggi skól-
ans í vetrarmyrkrinu, er sett
upp í minningu Jóns Sigurðs-
sonar, forseta – Vestfirðings-
ins og þjóðhetjunnar sem helg-
aði líf sitt framförum þjóðar
sinnar og barðist fyrir sjálf-
stæði okkar með mátt orðsins
einan að vopni. Því vopni
beitti hann fimlega af rök-
hugsun og þekkingu þess sem
hefur menntast í besta skiln-
ingi þess orðs.
Jón Sigurðsson hefur verið
sagður lærðasti stjórnmála-
maður okkar Íslendinga. Í
frægri ritgerð sem hann skrif-
aði í Ný félagsrit og nefnist
„Um skóla á Íslandi“ segir
hann að skólinn eigi að tendra
hið andlega ljós og hið and-
lega afl og veita alla þá þekk-
ingu sem geri menn hæfa til
framkvæmda. Fer vel á því að
reisa listaverkið „Ljós“ í
minningu þess merka frum-
kvöðuls og menntamanns sem
þannig talaði.
Frumkvæði Marí-
asar og Málfríðar
Aðdragandi þess að Ljósinu
hefur nú verið komið fyrir á
lóð skólans er sá, að fyrir
nokkrum árum stofnuðu hjón-
in Marías Þ. Guðmundsson
og Málfríður Finnsdóttir Minn-
isvarðasjóð Jóns Sigurðsson-
ar. Lögðu þau í sjóðinn eina
milljón króna til þess að koma
upp listaverki í minningu Jóns
Sigurðssonar forseta á lóð
Menntaskólans á Ísafirði.
Sjóðinn afhentu þau skólanum
til varðveislu og fólu undirrit-
aðri forgöngu málsins ásamt
fjórum valinkunnum mönn-
um, þeim Gunnlaugi Jónas-
syni bóksala, Jóni Páli Hall-
dórssyni fv. forstjóra, Konráði
Jakobssyni fv. framkvæmda-
stjóra og Gunnari Jónssyni fv.
umboðsmanni. Sótt var um
viðbótarstyrki og fjármagn til
ýmissa aðila með þeim árangri
að Listskreytingasjóður ríkis-
ins veitti 1,5 milljón krónur
til verksins og skömmu síðar
samþykkti bæjarstjórn Ísa-
fjarðarbæjar að styrkja fram-
takið um 1 milljón króna að
auki.
Auk þessara aðila eiga Fast-
eignir Ríkissjóðs þakkir skilið
fyrir jarðvegsframkvæmdir og
undirbúning að uppsetningu
verksins hér á skólatorginu –
og sömuleiðis Menntaskólinn
sjálfur fyrir að leggja fram
fjármuni og starfskrafta.
Listskreytingasjóður skip-
aði valnefnd sem efndi til lok-
aðrar samkeppni um listaverk-
ið. Nefndina skipuðu auk und-
irritaðrar, myndlistarmennirn-
ir Finnur Arnar Arnarsson og
Ragnhildur Stefánsdóttir sem
veitti nefndinni formennsku.
Þessi nefnd leitaði til þriggja
listamanna um tillögur að
verki, en það voru þau Sara
Björnsdóttir, Hreinn Friðfinns-
son og Ólafur Sveinn Gísla-
son.
Galdur og sjónlist
Verk Hreins Friðfinnssonar
„Ljós“, náði fljótlega tökum á
okkur nefndarmönnum. Meg-
in uppistaða þess eru flúrper-
ur, svonefnt skærljós, sem hef-
ur heilsufræðilega eiginleika,
eins og fram kom í fyrstu til-
lögudrögum höfundar. Í vetr-
armyrkri er það staðgengill
dagsbirtu og vinnur gegn dep-
urð og þunglyndi. Listaverkið
er þessvegna tvennt í senn,
galdur og sjónlist. Og þar sem
það nú stendur á skólatorgi
menntaskólans lýsir það eins
og lítil sól og varpar birtu á
sitt nánasta umhverfi. Í bjarm-
anum frá skini þess glampar á
einkunnarorðin sem Íslend-
ingar völdu óskabarni sínu,
Jóni Sigurðssyni, að leiðar-
lokum: Sómi, sverð og skjöld-
ur.
Ég á þá von að Ljósið verði
nemendum Menntaskólans á
Ísafirði táknrænn vegvísir á
menntabrautinni og hvatning
til dáða. Megi það standa sem
réttnefndur minnisvarði um
hugrekki, visku og dug – vitn-
isburður um fordæmi manns
sem beitti rökum og hugviti í
stað aflsmunar, manns sem
hafði hugsjón og tendraði
hugsjónaeld með öðrum.
– Ólína Þorvarðardóttir.
Ólína Þorvarðardóttir.
Björgunarsveitin Kofri fær nýjan bíl
Björgunarsveitin Kofri í Súðavík fékk fyrir áramótin afhenta nýja
bifreið. Bíllinn er af gerðinni Land Rover Defender og er breyttur fyrir
38” dekk. „Það hefur staðið til nokkuð lengi að sveitin festi kaup á
nýjum bíl þar sem að eldri bíll sveitarinnar var orðinn gamall og
óáreiðanlegur. Björgunarsveitin vill koma á framfæri þökkum til allra
sem hafa styrkt okkur í gegnum tíðina og þar með gert kaup á þessum
bíl möguleg“, segir í tilkynningu frá björgunarsveitinni.
Ísafjarðarbær fær 11,7 millj-
ónir króna í framlög vegna
sérþarfa fatlaðra nemenda fjár-
hagsárið 2007, samkvæmt til-
lögu ráðgjafanefndar Jöfnunar-
sjóðs sveitarfélaga. Bolung-
arvíkurkaupstaður fær 980 þús-
und krónur, Reykhólahreppur
fær tæpar 2 milljónir, Vestur-
byggð fær 1,9 milljónir og
Súðavíkurhreppur fær 980
þúsund krónur.
Nefndin samþykkti að leggja
til að fyrsta tillaga að úthlutun
framlaga vegna sérþarfa fatl-
aðra nemenda á árinu 2007
næmi allt að 1.118,6 m. króna.
Annars vegar er um að ræða
áætlað framlag til Reykjavík-
urborgar að fjárhæð 571,0 m.
kr. á grundvelli samnings
vegna reksturs sérskóla/sér-
deilda, sem áður voru rekin af
ríkinu en hins vegar áætlað
framlag að fjárhæð 547,6
m.kr. vegna sérþarfa fatlaðra
nemenda á grunnskólaaldri.
– thelma@bb.is
Tæpar 12 milljónir til Ísafjarðarbæj-
ar vegna sérþarfa fatlaðra nemenda
Grunnskólinn á Ísafirði er stærsti grunnskóli Ísafjarðarbæjar.