Bæjarins besta - 10.01.2008, Side 9
FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2008 9
Háskólasetur Vestfjarða
hefur gengið frá samningi
við Alþjóðaskrifstofu há-
skólastigsins í Reykjavík
um íslenskukennslu til 80
evrópskra háskólastúdenta
sem eru að hefja nám í ís-
lenskum háskólum að hausti
2008. Þeir verða í námi á
vegum Háskólasetursins frá
27 júlí til 20 ágúst. Áætlaðar
heildartekjur af verkefninu
eru um 10 milljónir króna
en í því felst eitt og hálft árs-
stöðugildi. Erasmus (Evrópu-
sjóður) og Nordplus (Norr-
ænn sjóður) greiða allan kenn-
slukostnað.
Fjölbreytt menningardag-
skrá og skoðunarferðir eru fyr-
irhugaðar fyrir hópinn. Meðal
þess sem nemendum er boðið
upp á er eins dags dagskrá þar
sem miðað er við að nemendur
fái sem mesta snertingu við
íslenska og vestfirska menn-
ingu. Verður þeim boðið upp
á tónlistarflutning og söng-
kennslu, leiklist og spuna-
workshop, myndlist og mynd-
listarkennsla. Einnig verður
farið í gönguferð um miðbæ
Ísafjarðar og komið við á
Byggðasafni Vestfjarða.
Gert er ráð fyrir að nem-
endur komi til Vestfjarða með
rútu og fari einnig þannig. Há-
skólasetur Vestfjarða gerir ráð
fyrir að senda starfsmann/leið-
sögumann til að fylgja nem-
endum vestur og til baka.
Þá verða skipulagðar
tvær lengri ferðir á sunnu-
dögum þar sem farið verður
á aðra staði á Vestfjörðum.
Önnur ferðin verður á suð-
ursvæði Vestfjarða, Látra-
bjarg, Selárdal, Dynjanda
ofl. Hin verður á Horn-
strandir. Þessar ferðir verða
val og þurfa nemendur að
greiða þær sjálfir.
HsVest semur við
Alþjóðaskrifstofu
Stofnendur ferðaþjónustu-
fyrirtækisins Hvíldarkletts
ehf. á Suðureyri juku hlutafé
félagsins síðastliðinn vetur, en
óseldur er enn rúmlega 10%
hlutur í fyrirtækinu. Nú þegar
hefur verið selt nýtt hlutafé
fyrir 63 milljónir og eigendur
félagsins eru orðnir átta tals-
ins. Óseld eru bréf fyrir tæpar
8,8 milljónir króna. Ætlunin
er að nýta aukið hlutafé til að
skjóta styrkari stoðum undir
reksturinn og tryggja félagið
betur í sessi, en meðal verk-
efna þess er útgerð á 22 sjó-
stangveiðibátum og rekstur á
gistiheimili, söluskála og veit-
ingahúsi.
Á vefnum sudureyri.is kem-
ur fram að eftir þessa hluta-
fjáraukningu verði félagið bet-
ur í stakk búið til að takast á
við þau spennandi verkefni
sem framundan eru í upp-
byggingu ferðaþjónustu á
Vestfjörðum. Hvíldarklettur
ehf. er með fasta viðskipta-
samninga og hefur velta fyrir-
tækisins vaxið milli ára. Fyr-
irtækið rekur einnig fasteigna-
félag með leiguíbúðir, versl-
anir og veitingahús og hefur
hlutverk félagsins verið skil-
greint sem íbúa- og gestaþjón-
usta. Bókfærðar eignir félags-
ins eru tæpur hálfur milljarður
og hefur félagið verið rekið
með hagnaði undanfarin þrjú
ár og áætlanir næstu ára lofa
mjög góðu.
Að sögn Elíasar Guðmunds-
sonar, framkvæmdastjóra
Hvíldarkletts er næsta sumar
nær uppbókað í sjóstangveiði,
og er að mestu um að ræða
Þjóðverja en Tékkar hafa þó
verið að bætast í hóp viðskipta-
vina. Hjá fyrirtækinu voru 53
launamenn skráðir á síðasta
ári, en af þeim voru um 20-25
á launaskrá allt árið, fyrir utan
verktaka. Hann segir að hluta-
bréfunum sem eftir eru hafi
verið sýndur áhugi og það lítur
út fyrir að eftirspurnin verði
meiri en framboðið.
– sigridur@bb.is
Hvíldarklettur á
enn óselt hlutafé
Íslenska gámafélagið bauð
lægst í hafnarframkvæmdir
Íslenska gámafélagið bauð
lægst í endurbyggingu á stál-
þili við Brjótinn í Bolungar-
vík. Tilboð voru opnuð fyrir
jól en í verkinu felst niður-
setning stálþils, múrbrot, kant-
biti, skjólveggur, þekja og
vatnslagnir. Fjögur tilboð bár-
ust en eins og fyrr segir var
það Íslenska gámafélagið sem
bauð lægst eða 49.262.080
krónur. Kostnaðaráætlun hönn-
uða hljóðar upp á 67.604.450
krónur. Einnig bauð ísfirska
verktakafyrirtækið KNH í
verkið en tilboð þess nam
rúmum 54.000.000 krónum.
Guðlaugur Einarsson ehf.
bauð rúmar 88.000.000 krón-
ur og Hagtak hf. 68.250.000
krónur. Verkinu skal lokið
eigi síðar en 1. ágúst nk.
Þess má geta að stefnt hefur
verið lengi að því að hafnar-
framkvæmdir í Bolungarvík
yrðu boðnar út en þær töfðust
vegna langs afgreiðslutíma
efnis frá útlöndum. Bolungarvík.
36 útköll hjá slökkviliðinu á síðasta ári
Slökkvilið Ísafjarðarbæjar
fór í 36 útköll á síðasta ári.
Þetta kemur fram í ársskýrslu
slökkviliðsins. Fimm þeirra
voru vegna elds, þrjú vegna
mengunarslysa, 16 sinnum
þurfti slökkviliðið að dæla úr
kjöllurum, tvær falsboðanir,
þrjú vegna umferðarslysa, ein
öryggisvakt í samkomuhúsi
og sex sinnum var slökkvilið-
ið kallað út vegna aðstoðar
við borgarana. Auk þess voru
staðnar fimm vaktir við olíu-
skip og 18 æfingar voru haldn-
ar. Þjálfun slökkviliðsmanna
er mjög svipuð milli ára eða
um 1.700 vinnustundir árlega.
Í skýrslunni kemur fram að
það hafi verið mikil og góð
þjálfun fyrir slökkviliðsmenn
þegar slökkvilið fékk að
kveikja í raðhúsum og blokk-
um við Árvelli í Hnífsdal en
húsin voru á snjóflóðahættu-
svæði. Slökkviliðið var með
mikla fræðslu og þjálfunina
innan liðsins og bauð til sín
slökkviliðum frá Bolungarvík
og Súðavík. Brunamálastofn-
un kom með stjórnunarnám-
skeið sem haldið var á slökk-
vistöðinni í Ísafjarðarbæ.
Virðist þar vera einhver breyt-
ing á þar sem stofnunin hefur
ekki komið til Ísafjarðar und-
anfarin ár.
Sjúkraflutningar voru alls
203 og er það umtalsverð
fækkun milli ára en árið 2006
voru þeir 253. Sjúkraflutning-
arnir skiptast þannig að al-
mennir flutningar voru 154,
forgangsflutningar voru 44 og
aðrir 5.
Á árinu voru eldvarnareft-
irlitsskoðanir um 70 talsins
af 130 skoðunarskyldum og
af þeim voru 55 brunavarnar-
skýrslur Allir skólar voru
heimsóttir og rætt við alla átta
ára nema um brunamál. Einn-
ig var nokkur fræðsla á vegum
slökkviliðsins bæði fyrir ein-
staklinga, fyrirtæki og skóla í
meðferð slökkvitækja. Slökkvi-
liðsmenn hafa verið duglegir
við að fara í heimsóknir til
bæjarbúa með reykskynjara
og batterí sem hafa verið sett
upp að ósk íbúa. Unnið er
eftir vinnureglum um eftir-
fylgni eldvarnareftirlit fyrir
slökkvilið Ísafjarðarbæjar
sem hafa verið samþykktar af
bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar á
síðasta ári.
Almannavarnir Ísafjarðar-
bæjar funduðu 4 sinnum á
árinu. Slökkvitækjaþjónusta
yfirfór og hlóð um 670 slökkvi-
tæki fyrir heimili, fyrirtæki
og skipa. Er það fjölgun frá
fyrri árum. Ný sjúkrabifreið
kom í mars. Er það bifreið af
gerðinni Benz Sprinter og
leysir hún eldri bifreið af
sömu gerð af hólmi en hún
fór til slökkviliðsins í Bolung-
arvík. Í árslok 2007 var gengið
frá kaupum á körfubifreið frá
Reykjanesbæ og kemur hún
til okkar í ársbyrjun 2008 .
Auk þess er væntanleg ný
dæla sem er keypt í tengslum
við þessa bifreið.
Á árinu 2008 vonast til að
farið verði í endurbætur á hús-
næði slökkviliðsins sem við
höfum til umráða og bætt
verði starfsmannaaðstaða sem
þykir heldur bágborin í dag.
Slökkvistöðin á Ísafirði.