Iðnaðarmál - 01.06.1954, Qupperneq 9

Iðnaðarmál - 01.06.1954, Qupperneq 9
UPPHAF STÁLSKIPASMÍÐA Á ÍSLANDI Hinn 15. október s. 1. var hieypt af stokkunum í Stálsmiðjunni h.f. fyrsta stálskipinu, sem smfðað er á fslandi. Af þessu tilefni spurðum vér yfirverkfræðing Stálsmiðjunnar, Agnar Norland, frétta um stálskipasmfði. Skipaskoðunarstjóri rfkisins, Hjálmar R. Bárðarson skipaverkfræðingur, er áður var yfirverk- fræðingur Stálsmiðjunnar og gerði teikningar að skipinu og sá að mestu leyti um smfði þess, hefur látið blaðinu í té myndirnar, sem hér eru birtar og sýna þætti úr smfðasögu skipsins. Hvað getið þér sagt oss um tildrögin til smfði þessa stálskips? "Eins og eðlilegt er, hafa skipasmfðastöðvar hér á landi verið reistar með tilliti til viðgerða og síðar smíði á tréskipum. En þegar þörf á viðgerðum stálskipa skapaðist, urðu stálsmiðj- <5 urnarað annastviðgerðir, þótt smiðjurnar væruflestar langt frá dráttarbrautunum. Þannig er það enn, og raunverulega er ekki til hér á landi skipasmfða- og viðgerðastöð (fyrir stálskip) í þess orðs venjulegu merkingu. Smiðjurnar hafa þó á undanförnum árum aflað sér véla og sérlærðra manna til að annast viðgerðir stálskipa og þannig lagt grundvöll undir nýsmíði. En nýsmíði hefur einnig það hagræði í för með sér, að taka má vinnuafl frá henni til viðgerða, þegar þörf krefur, og á hinn bóginn mámeð nýsmíði koma í veg fyrir þau atvinnuleysistfmabil, sem annars verða milli hinna árstfðabundnu anna við viðgerðir. Dráttarbáturinn er smfðaður fyrir Reykjavfkurhöfn, og var skipinu gefið nafnið Magni. Reykjavfkurhöfn er þvf fyrsti aðili, semlætur smfða stálskiphér á landi, og hefur þvf sýntfslenzkum skipaiðnaði sérstakt traust. Smfðasamningar voru gerðir f árs- byrjun 1953, en smfði skipsins mun ljúka f byrjun árs 1955." Vilduð þér gera svo vel að lýsa stuttlega fyrir oss skipinu, vélum þess og öðrum út - búnaði ? "Skipið er smfðað eftir reglum Lloyds um dráttarbáta og fsbrjóta, og er skipið að langmestu leyti rafsoðið saman. Aðalstærðir skipsins eru: lengd milli lóðlfna 25, 4 m, breidd (á bandi) 8,0 m, dýpt (frá aðalþilfari) 4, 5 m. Undir aðalþilfari eru fbúðir handa 6 skipverjum, vélarúm, geymarundir 42 tonn afdieselolíu og 70 tonnaf vatni, stafnhylki, keðjukassi og víralest. A aðalþilfari er herbergi skipstjóra, borðsalur, eldhús og búr, sjúkraklefi, snyrtiklefar og inngangur f vélarúm. A bátaþilfari er stjórnklefi og loftskeytaklefi. Aðalvélin er 1000 ha dieselvél af Deutz-gerð. I vélarúmi eru enn fremur 2 diesel-rafalsamstæður, 23 og 60 kW, 2 björg- unardælur (200 mVklst hvor með 60 m vatnssúlu), knúnar af sjálfstæðum dieselhreyflum, 3 loftþjöppur, dælur (sem munu vera rúmlega 30 að tölu) auk annars útbúnaðar. i Skipið er búið KaMeWa-skiptiskrúfu af fullkomnustu gerð, og kostar slík skrúfa um það bil jafnmikið og heimingur allra véla skipsins. Stigningu skrúfunnar og snúningshraða vélarinnar er stjórnað beint úr brúnni, og eru þar 3 stjórntæki, f báðum hliðum og fyrir miðju. Vökvastýrisvél er f skipinu. Öflug vinda er á framþilfari og "capstan"-vinda á afturþil- fari, báðar knúnar með vökvaþrýstingi. Gálgi er fremst á þilfari til að taka upp með dufl, enn fremur tveggja tonna bóma. A bátaþilfari er komið fyrir 2 vatnsbyssum. Björgunarbátur er úr alúminfum. Tveim loftrellum er komið fyrir f reykháfi til loftræsingar f vélarúmi og fbúðum undir aðalþilfari. Sjálfvirkt dælikerfi dælir sjó og vatni." Hvaða aðilar hafa lagt hönd á verkið ? "Stálsmiðjan framkvæmir alla stálsmfði, Hamarog Héðinn koma fyrir vélum og stjórntækjum, en Slippfélagið f Reykjavfk sér um innréttingu og alla trésmfði." Hverju spáið þér svo um framtíð stálskipa- smfða hérlendis og hvaðverður næsta viðfangs- efni S tá 1 s m i ð j u nnar ? (Framhald á 8. bls.)

x

Iðnaðarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.