Frjáls verslun - 01.04.2015, Side 95
FRJÁLS VERSLUN 4 tbl. 2015 95
ég konu minni frá þessu. Ég skil
og á skilið reiði og vonbrigði
vina minna og fjölskyldu. Ég hef
engar afsakanir fram að færa og
tek fulla ábyrgð á þeim sársauka
sem ég hef valdið. Ég hef beðið
Mariu fyrirgefningar, börn mín og
fjölskyldu. Ég er í einlægni fullur
eftirsjár.“
Þetta frávik í lífi Swarzeneggers
virðist engin áhrif hafa haft á
vinsældir hans og nýtur hann
lífs ins sem aldrei fyrr og hefur
endur heimt vinsældir sínar og
ekki skortir tilboðin um að leika í
kvik myndum.
farSæll á mörgum SViðum
Ekki er úr vegi að rifja upp ævi
Arnolds Schwarzeneggers því
burtséð frá hvað öðrum finnst
um hann þá er ferill hans í lífinu
merkilegur; hvort sem um ræðir
keppnismanninn í vaxtarrækt,
kvikmyndastjörnuna sem varð
launahæsti leikari í heimi, ríkis
stjórann sem þáði engin laun þau
átta ár sem hann var ríkisstjóri
eða fjármálamanninn sem sá um
öll eigin fjármál með þeim árangri
að hann er forríkur í dag þrátt fyrir
að hafa sagt að hann hafi tapað
tvö hundruð milljónum dollara á
því að vera ríkisstjóri.
Arnold Schwarzenegger fædd
ist í Graz í Austurríki og byrjaði
snemma í íþróttum fyrir tilstuðlan
föður síns, sem hafði mikinn
áhuga á íþróttum. Þegar hann var
fimmtán ára byrjaði hann í líkams
rækt og fimm árum síðar var
hann fyrst kjörinn Herra alheimur.
Á ferli sínum sem vaxtarræktar
maður var Schwarzenegger
ósigrandi og vann allar keppnir
sem hann tók þátt í og hefur
enginn vaxtar ræktarmaður fyrr
eða síðar unnið jafnmarga stóra
titla. Þeir urðu þrettán áður en yfir
lauk. Á þessum árum dvaldi hann
í Bandaríkj unum og gerðist ríkis
borgari 1983 en fékk einnig að
halda austurrískum ríkisborgara
rétti, en einstakt er þar í landi að
hægt sé að vera með tvöfaldan
ríkisborgararétt.
Schwarzenegger sagðist alltaf
hafa ætlað sér í kvikmyndirnar
og ferill sinn í vaxtarræktinni
hefði orðið mun styttri hefði
hann náð frama í sínum fyrstu
tilraunum. Svo var nú ekki og
sjálfsagt vill hann gleyma fyrstu
hlutverkunum. Honum bauðst
snemma á ferli sínum að leika í
Hercules in New York. Ekki fannst
framleiðendum Schwarzenegger
gott nafn og breyttu því í Strong
og því var hann Arnold Strong
í fyrstu útgáfum af myndinni,
sem einnig gekk undir nafninu
Hercules Goes Bananas. Þetta
var árið 1970. Sjö árum síðar var
gerð heimildamyndin Pumping
Iron og þar vakti hann athygli
leikstjórans Bobs Rafaelsons sem
sá að Schwarzenegger var mjög
eðlilegur fyrir framan kvikmynda
tökuvélina og með talsverða
útgeislun. Rafaelson fékk hann
til að leika á móti Sally Field og
Jeff Bridges í Stay Hungry og
frammistaða hans var það góð
að hann fékk verðlaun sem besti
nýliðinn í kvikmynd við Golden
Globeverðlaunaafhendinguna.
Þegar hér var komið sögu hafði
Schwarzenegger lagt líkams
ræktina á hilluna og hann þurfti
ekki að bíða lengi eftir frægðinni.
Hlutverk Conans í Conan The
Barbarian (1982) var eins og
skapað fyrir hann og þar með var
framtíð hans ráðin.
Það má með sanni segja að allt
frá því Arnold Schwarzenegger
lék í Conan the Barbarian hafi
verið um sigurgöngu að ræða
hjá honum og ef einhver annar
hápunktur er á leikaraferli hans
þá er það The Terminator (1984).
Þá komst hann í röð þeirra
allra hæst launuðu í Hollywood.
Schwarzenegger tók fljótt í eigin
hendur öll sín fjármál eins og
áður segir og til að geta stjórnað
þeim af einhverju viti sótti hann
nám við háskólann í Wisconsin
og útskrifaðist með gráðu í hag
fræði og viðskiptum. Á tímabili
rak hann ásamt Bruce Willis og
Sylvester Stallone veitingahúsa
keðjuna Planet Hollywood. Það
var svo 2003, um sama leyti
og Terminator 3: Rise of The
Machines var frumsýnd, að hann
tilkynnti framboð sitt til ríkisstjóra
Kalifornníu í viðtali við Jay Leno.
Hann bauð sig fram fyrir hönd
repúblikana. Seinna það ár vann
hann öruggan sigur í kosningun
um með rúmlega 48% atkvæða.
Hann var endurkjörinn í embætti
árið 2007 og gegndi því til ársins
2011.
terminator geniSyS
Leikstjóri fyrstu tveggja Tortím
anda kvikmyndanna, James Cam
eron, hefur sagt að sér hafi verið
boðið að vera með í undirbúningi
Terminator: Genisys til að koma
karakter Schwarzenegg ers
inn í myndina á trúverðugan
hátt. Nú er sagan látin gerast
í upphafi ársins 2029 og enn
fer John Connor fyrir uppreisn
mann kynsins gegn vélmennum.
Framtíðarkvíði sækir að honum.
Rekur hann þennan kvíða til
fortíðar og sendir besta vin sinn
inn í fortíðina til að bjarga móður
sinni, Söru Connor, sem hann
telur að sé í mikilli hættu, og þar
með tilvera hans sjálfs. Fortíðin
er breytt frá því var í öðrum
Tortímandamyndum og kemur í
ljós að vélmennið T800 hefur alið
móður hans upp og þarf að verja
hana fyrir fullkomnari vélmennum.
Þess má geta að leikstjóri
Terminator: Genisys er Alan
Taylor, sem þekktastur er fyrir að
leikstýra Game of Thronessjón
varpsseríunni og kvikmyndinni
Thor: The Dark World. Valdi hann
eina af aðalleikkonunum í Game
of Thrones, Emeliu Clarke, til að
leika Söru Connor. Ef einkamálin
eru látin liggja milli hluta þá
er framtíðin björt hjá Arnold
Schwarzenegger. Auk þess að
hafa nóg að gera í kvikmyndum,
m.a. annars er í undirbúningi
framhaldsmynd um Conan,
hefur hann látið mikið til sín taka í
góðgerðarmálum og er sérstak
ur verndari Special Olympics,
ólym píuleika fatlaðra, og stofnaði
samtök sem nefnast Inner City
Games Foundation sem efla nám
og þekkingu ungra krakka sem
hafa fengið fá tækifæri og eru
þessi samtök starfandi í fimmtán
borgum.
Schwarzenegger sagðist
alltaf hafa ætlað sér í
kvikmyndirnar og ferill
sinn í vaxtarræktinni
hefði orðið mun styttri
hefði hann náð frama í
sínum fyrstu tilraunum.
Fyrsta Tortímandamyndin var gerð fyrir 30 árum og eins og sjá má
var Schwarzenegger töluvert yngri.
Þrír gamlir og góðir. Arnold Schwarzenegger, Sylvester Stallone og
Bruce Willis við frumsýningu á einni expendablesmyndinni.