Bæjarins besta - 29.07.2010, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2010
Þrjú skemmtiferðaskip heimsóttu Ísafjörðu um helgina. Á myndinni sést skemmtiferðaskipið Maasdam við bryggju.
Annríki í ferðaþjónustunni
Þrjú skemmtiferðaskip heim-
sóttu Ísafjörðu um helgina. Á laug-
ardagsmorgun kom skemmti-
ferðaskipið Mv Ocean Princess
til Ísafjarðar. Skipið er um 30
þús. brúttótonn að stærð og far-
þegar skipsins eru að mestu
enskumælandi. Fóru þeir í ferðir
á vegum Vesturferða um svæðið
en mikill fjöldi farþega skipsins
lagði leið sína til Hesteyrar að
þessu sinni, en ásamt þeirri ferð
er m.a. boðið upp á ferð í Vigur
og í rútuferðir um svæðið.
Á sunnudagsmorgun komu tvö
skip. Ber þar helst að nefna skipið
Maasdam sem siglir undir holl-
ensku flaggi þó svo að flestir
farþegar skipsins hafi verið frá
Bandaríkjunum. Skipið er í stærri
kantinum og tekur um 1.200 far-
þega auk áhafnar. Annar gestur
dagsins var skemmtiferðaskipið
Princess Danae sem lá við ankeri
á Prestabugtinni meðan að Maas-
dam lá við bryggju á Sundahöfn.
Farþegafjöldi þessa tveggja skipa
var að vonum mikill og má segja
að Ísafjörður hafi verið fullur að
ferðamönnum á sunnudag. Far-
þegar skipanna fóru einnig í ferð-
ir á vegum Vesturferða en margir
skoðuðu sig um á eigin vegum
og virtu fyrir sér bæinn og íbúa
þess.
Skemmtiferðaskipið Le Boreal
kom síðan á mánudag til Ísafjarð-
ar. Skipið tekur um 300 farþega
og er um 10 þús. brúttótonn að
stærð. Skipið er allt hið glæsi-
legasta þrátt fyrir að vera með
minni skipum sumarsins. Skipið
Ítalskt, sérsmíðað og inniheldur
m.a. stóran sýningarsal, veitinga-
staði og líkamsræktarsal. Ocean Princess heimsótti Ísafjörð á laugardag.
Le Boreal við bryggju.Princess Danae kom í annað skiptið til Ísafjarðar í sumar.
Gerð varnargarð seinkar vegna mistaka
Framkvæmdir við snjóflóða-
varnargarðinn í Traðarhyrnu í
Bolungarvík hafa tafist vegna
mistaka sem ekki er vitað hver
ber ábyrgð á. Síðastliðið haust
tók að hrynja úr bakhlið snjó-
flóðavarnargarðsins, sem snýr að
Traðarhyrnu, og var í kjölfarið
ákveðið að stöðva framkvæmd-
irnar. Verktakafyrirtækið Ósafl
ehf., dótturfélag Íslenskra aðal-
verktaka, sér um framkvæmdir á
varnargarðinum sem er hannaður
af Eflu ehf. Að sögn Einar Hrafns
Hjálmarssonar, aðstoðarstaðar-
stjóra Ósafls í Bolungarvík, veld-
ur tjónið því að garðurinn verði
ekki tilbúinn fyrr en á næsta ári
en verklok voru áætluð í haust.
„Mér finnst líklegt, þó það eigi
eftir að semja um það, að fram-
kvæmdirnar dragist vegna þessa
fram á næsta sumar.“
Einar Hrafn segir að úttekt
standi nú yfir á því af hverju
tjónið varð. Þá standi yfir vinna
við að fjarlægja grindurnar sem
hrundu við fallið. Þegar það var
tjónið varð var búið að binda um
15% grindanna í garðinum. Einar
segir að ekki hafi orðið meira
tjón frá grjóthruninu í október í
fyrra. Á DV-vefnum er haft eftir
Óskari Valdimarssyni, forstjóra
Framkvæmdasýslu ríkisins, að
ekki sé vitað hver ber ábyrgð á
tjóninu en framkvæmdirnar hafa
tafist um tvo til þrjá mánuði.
Grindurnar sem eru notaðar til
að binda garðinn voru keyptar
frá ítölskum framleiðanda, Offic-
ine Maccaferrie.
Framkvæmdir við varnargarð
í Bolungarvík voru stöðvaðar.