Bæjarins besta - 29.07.2010, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2010
Viðburðarík leiðsöguferð með draug
sögumanninn eða gangárann
Ragnar Ísleif Bragason, ljóðskáld
og leikhúslistamann. Verkefnið
þótti ganga með eindæmum vel
og sótti á þær sú hugmynd að
fara með Gangárann af stað í
ferðalag um landið og nú er svo
komið að þau heimsækja Flat-
eyri. Hugmyndin er að virkja
bæjarbúa og fólk frá nærliggjandi
bæjum og sveitum til þess að
taka þátt í viðburðinum, en hóp-
urinn hlaut m.a. styrk frá Menn-
ingarráði Vestfjarða. Bæjarins
besta hafði sambandi við Aðal-
heiði Halldórsdóttur dansara þeg-
ar þær stöllur voru við undirbún-
ing á Flateyri og forvitnaðist um
verkefnið.
„Þetta er verkefni sem við
unnum fyrir Reykjavík Dans-
festival í fyrra. Þetta er ekkert
endilega bundið við dans frekar
en önnur listform. Í Reykjavík
var miðað við miðbæinn og
Skuggahverfið. Við grúskuðum
vel í sögunni og bjuggum til
handrit út frá því. Við erum með
flökkudraug og fólk leggur af
stað í ferð undir hans leiðsögn.
En fljótt skekkist leiðin og alls
konar viðburðir og hlutir verða á
vegi hópsins, hvort sem það er
tónlist, dans eða sofandi maður.
Gangárinn verður svo alltaf
æstari og æstari. Hann er nefni-
lega svolítið tímalaus draugur og
þekkir menn sem voru uppi um
1500 alveg eins vel og mig og
þig. Hann þekkir allt og alla. Við
vorum með fimmtíu manna hóp
í þessu í fyrra. Síðan lögðum við
af stað út á land í sumar. Við
komum fyrst við á Höfn í Horna-
firði og höfðum ýmsar hugmynd-
ir en við byrjuðum á því að semja
handrit upp úr sögunni og lögð-
um til fólk í verkefnið ásamt því
að kynnast heimamönnum sem
tóku einnig þátt í því.“
– En hvers vegna Flateyri?
„Það hefur kannski ekki verið
mikið af svona viðburðum hér.
Okkur fannst það bara gaman að
koma og kynnast þessum stað.
Það eru tveir vinklar á þessu.
Þetta er mikill fengur fyrir okkur
að fá að koma og kynnast sögunni
jafnt og fólki og öllu því sem átt
hefur sér stað hér. Það er ótrúlega
skemmtilegt fyrir okkur og verð-
ur vonandi ánægjulegt fyrir bæj-
arfélagið að fá okkur hingað með
svona viðburð. Það er kannski
meira um að vera á Ísafirði og
minna á Flateyri. Þess vegna
fannst okkur ofsalega gaman að
koma hingað. Við erum tvær
hérna núna en þetta er verkið
okkar Valgerðar. Við erum báðir
dansarar og höfum starfað sem
slíkir í mörg ár. Það er okkar
aðalatvinna en inn á milli hitt-
umst við og grúskum eitthvað
saman. Það eru um tíu ár frá því
að við byrjuðum að vinna saman.
Hugmyndin er okkar og við skrif-
um þetta. Síðan fáum við til liðs
við okkur Gangára en það er
Ragnar Bragason sem fær það
hlutverk í hendurnar.“
– Og þið viljið fá fólk í lið með
ykkur?
„Já. Við höfum fengið gríðar-
lega hjálp frá Jóhönnu Kristjáns-
dóttur á Flateyri en hún hefur
sankað sér öllum upplýsingum
sem hún finnur um Flateyri og
fólkið hérna. Við höfðum ekki
fundið neitt á bókasafninu sem
kallast „Saga Flateyrar“ eða þess
háttar. Starf hennar ótrúlega dýr-
mætt en oftast höfum við unnið
handritið fyrirfram. Nú þurfum
við hins vegar að koma á staðinn
og vinna handritið hér, sem er
alls ekki leiðinlegt, en hún er
með þetta allt í sínum fórum,
þennan fjársjóð, og hefur verið
svo yndisleg að leyfa okkur að
ganga í hann. Við erum búin að
sitja mikið og skrifa en í leiðinni
ætlum við að kynnast fólkinu og
fá það í lið með okkur malla
eitthvað skemmtilegt. Það er
gaman að koma á nýjan stað og
fjöllin hérna eru engu lík, maður
gjörsamlega dolfallinn. Svo er
líka hrikalega gaman að kynnast
nýju fólki.“
Aðalheiður kveðst aðeins einu
sinni hafa komið til Flateyrar
áður. Það hafi verið stutt stopp
yfir einn dag um páskana en þær
stöllur njóta sín vel á Flateyri.
En í stuttu máli, þá er gangárinn
hálfgerður leiðsögu-draugur?
„Já, hann tekur fólk í sögulega
leiðsöguferð en það er bara
spurning hvað gerist á leiðinni.
Alls konar atburði sem tengjast
sögu Flateyrar, hvort sem það
eru mjög áberandi tengingar eða
eitthvað sem við skiljum, sem
kemur svo kannski út sem eitt-
hvað annað. Við hvetjum alla frá
stöðunum í kring að fá sér laug-
ardagsbíltúr, fá sér kannski ís og
koma í óvissuferð um Flateyri,“
segir Aðalheiður að lokum áður
en þær vinkonur halda áfram að
grúska og fræðast um staðinn.
Dansararnir og danshöfund-
arnir Aðalheiður Halldórsdóttir
og Valgerður Rúnarsdóttir hafa
skapað heim gangárans, sem er
svokölluð dansganga þar fólk fer
í leiðsöguferð með draugnum Gang-
ára, en gangári er gamalt orð yfir
flökkudraug. Gangári heimsótti
Flateyri í síðustu viku en þær
Aðalheiður og Valgerður hafa
að undanförnu unnið við undir-
búning á viðburðinum. Fólst það
m.a. í því að koma til Flateyrar
og grúska í sögu bæjarins.
Aðalheiður og Valgerður starfa
saman undir nafninu Vaðall en
þær hafa samið fjölda dansverka,
m.a. fyrir Íslenska dansflokkinn
og Reykjavík Dansfestival á und-
anförnum árum, en það eru ein-
mitt 10 ár frá því þær hófu sam-
starf. Þær hafa báðar starfað sem
dansarar hjá Íslenska dansflokkn-
um til fjölda ára og hlutu báðar
nýverið tilnefningu til Grímunnar
sem dansarar ársins. Þá hefur
Valgerður starfað undanfarin
þrjú ár með einum virtasta dans-
höfundi Belgíu, Sidi Larbi Cher-
kaoui.
Það var fyrir tilstilli Reykjavík
Dansfestival 2009 sem þær sköp-
uðu svokallaða dansgöngu sem
kallaðist Var það gangári? Þær
unnu verkið í samstarfi við leið-