Bæjarins besta - 29.07.2010, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2010
pantað. Við eigendurnir í Hrönn
hf. vorum ekki vanir því að
skulda neinar súpur og auk þess
komnir nokkuð til aldurs. Ég var
á sjötugsaldri og Margrét systir
mín tveimur árum eldri og sam-
eigendurnir Marías og Guð-
mundur komnir á áttræðisaldur.
Það varð að samkomulagi
okkar allra að selja bara skipið.
Þetta þróaðist þannig að Samherji
var álitlegasti kaupandinn og
kom með besta tilboðið og við
vorum öll sammála um að hann
fengi skipið. Hjá mér var þetta
hreinlega ævistarfið mitt og ég
vildi ekki setja það í hendurnar á
hverjum sem væri. Eitthvað kom
til tals með Básafell en það var
aldrei rætt neitt alvarlega.
Við töldum eðlilegt og heppi-
legt að skipið yrði áfram gert út
frá Ísafirði. Svo kemur það bara
upp að þeir vilja færa skipið til
Akureyrar. Okkur brá nú and-
skoti illa við það. Svo á endanum
seldu þeir skipið til Þýskalands.
Þrátt fyrir þetta kunni ég vel
við þessa drengi hjá Samherja
og var í varastjórn hjá þeim í eitt
og hálft ár. Þeir tilkynntu bara að
þeir þyrftu á þessum tilfæringum
að halda til að reksturinn væri í
góðu lagi. Gagnvart mér gekk
allt eins og ráð hafði verið fyrir
gert og allt í góðu lagi með það.
En um leið og Þorsteinn Már
Baldvinsson sagði mér að skipið
yrði selt, þá tók ég þá ákvörðun
að selja öll mín hlutabréf í Sam-
herja.
Það var þá sem ég fór út í að
kaupa og selja hlutabréf í hinum
og þessum fyrirtækjum. Það hef-
ur gengið mjög vel.“
Þinn kvóti er búinn
Ásgeir átti í smábátaútgerðum
á Ísafirði þangað til fyrir fáum
árum en stendur ekki í neinu slíku
lengur. „Þegar ég fór að eldast
fór ég að hlusta meira á konuna.
Hún sagði við mig þegar ég var
að skrattast í þessu: Þinn kvóti er
búinn, þú verður að skilja það.
Og ég hlýddi því og seldi. Við
vorum alltaf svo samrýmd, alveg
eins og ein manneskja. Ég var
heppinn í þessum viðskiptum öll-
um. Að minnsta kosti fær maður
nóga eignaskattana þegar þeir eru
farnir að leggja skatta á ein-
hverjar krónur inni á bók!“
Stuttbuxurnar
frá Kanarí
– Þú ert í golfi og líka er sagt
að þú sért hlaupandi um bæinn á
stuttbuxum.
„Ég er stundum á stuttbuxum,
já. En það er ofsagt að ég sé að
hlaupa. Ég er oft að labba á stutt-
buxum þegar gott er veðrið. Ég
hleyp ekki en ég geng líklega
nokkuð greitt. Í vetur var ég í sex
vikur úti á Kanarí og þar gekk
maður svona. Ég fer bara í sömu
fötin og þar þegar hér kemur
fjórtán-fimmtán stiga hiti.
Klukkan níu á morgnana fer
ég hérna inn eftir á æfingavöllinn
í golf. Þar er ég svona tvo klukku-
tíma. Svo er prógramm hjá mér
aftur klukkan eitt og þá labba ég
minnst einn og hálfan klukku-
tíma. Ég geng oft upp á Skíðaveg
og hérna inn fjörðinn. Ég er miklu
sprækari núna en þegar ég fékk
Guðbjörgina 1994. Enda er ég
búinn að losa mig við átján kíló.
Það er aðallega vegna þess hvað
ég er duglegur að hreyfa mig.
Það er útiveran sem hefur allt að
segja þegar maður fer að eldast.
Það er enginn sem gerir þetta
fyrir mann. Maður verður að gera
þetta sjálfur. Ég er allt annar mað-
ur núna en ég var fyrir fimmtán
árum. Á þeim tíma hefði mér
ekki þýtt að reyna að æða svona
um og labba svona brekkurnar.“
Eldar ofan í sig sjálfur
– Eldarðu ofan í þig sjálfur?
„Já, ég var reyndar búinn að
gera það í sjö-átta ár. Sirrý mín
var búin að vera svo lasin. Varð-
andi heimilisstörfin var þess vegna
ekkert nýtt sem kom upp hjá mér
þegar hún féll frá. Ég var vanur
að þrífa og skella í þvottavélina
og hengja út á snúru.“
Að svo mæltu er Geiri Bjartar
farinn í morgungolfið inni í
Tungudal. Hann hefur aldrei
slegið slöku við um dagana og
gerir ekki enn.
– Hlynur Þór Magnússon.
Ísfirski tónlistarmaður-
inn Biggibix, eða Birgir Örn
Sigurjónsson, lauk útgáfu-
tónleikaröð sinni um Vest-
firði með tónleikum í Al-
þýðuhúsinu á Ísafirði á
laugardag fyrir viku. „Þetta
gekk mjög vel og það er gaman
að sjá hvað okkur var vel tekið
á þessum stöðum,“ segir
Biggibix en tónleikaröðin
hófst með tónleikum á Hólma-
vík á miðvikudegi, því næst á
Patreksfirði á fimmtudegi,
Þingeyri á föstudegi og á
Ísafirði á laugardegi. Að sögn
Biggabix var mikið stuð á
öllum stöðum en með honum í
för var hljómsveit sem skipa
þeir Halldór Gunnar Pálsson á
gítar, Halldór Smárason á
hljómborð, Valdimar Ol-
geirsson á bassa og Jón
Geir Jóhannsson á tromm-
ur. Tónleikarnir voru haldn-
ir í tilefni á fyrstu sólóplötu
Biggabix sem kom út í mars
og ber heitið Set Me On Fire.
Vel heppnuð tónleikaröð Biggabix
Frá tónleikum Biggabix í Alþýðuhúsinu á Ísafirði.