Bæjarins besta - 29.07.2010, Side 15
FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2010 15
Húsnæði til leigu
Fasteignir ríkissjóðs vilja leigja neðangreint
húsnæði:
Raðhús að Urðarvegi 68, Ísafirði.
Húsið, sem er 214m² á tveimur hæðum, er til
leigu frá 1. september nk., til að a.m.k. eins árs.
Húsið er til sýnis eftir nánara samkomulagi við
Grétar Sigurðsson í síma 820 6007.
Óskað er eftir skriflegu tilboði með upplýs-
ingum um bjóðanda og leigufjárhæð. Tilboð
berist Fasteignum ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150
Reykjavík eða í netfang snaevar@fastrik.is,
fyrir 15. ágúst nk.
Vestfirska forlagið á Þingeyri
opnaði nýlega lagersölu í gamla
„sjoppuhúsinu“ við höfnina á
staðnum. Þar eru til sölu allar
þær bækur sem forlagið hefur
gefið út, að undanskilinni allra
fyrstu bókinni en forlagið gefur
út bækur um Vestfirði og Vest-
firðinga undir samheitinu „Bæk-
urnar að vestan“ og leggur áherslu
á að blanda saman gamni og al-
vöru. Hallgrímur Sveinsson,
bóksali situr vaktina í lagersöl-
unni og er ánægður með viðtök-
urnar. „Það eru margir búnir að
kíkja við og salan hefur verið
góð,“ segir Hallgrímur í samtali
við Þingeyrarvefinn.
Bækurnar eru allar á íslensku
en til stendur að gefa út bækur
með enskum texta á næsta ári en
í þeim bókum verður birt brot af
því besta úr vestfirsku bókunum
ásamt myndum. Ekki er ákveðið
hvað lagersalan verður opin langt
fram á sumar en hún er opin alla
daga frá kl. 14 – 17.
Vestfirska forlagið opnar lagersölu
Fann rostungstönn uppi á fjalli
Árni Þór Helgason frá Alviðru
í Dýrafirði fann rostungstönn á
vægast sagt óvenjulegum stað á
dögunum eða við gamla skíða-
skálann á Seljalandsdal í Skutuls-
firði. „Ég tel mig vita af hverju
ég fann hana þarna. Þegar verið
var að vinna við snjóflóðavarnar-
garðinn var geymt sprengjuefni
á þessum stað og þangað var
komið með möl sem dælt hafði
verið upp úr sjó. Tönnin hefur
sjálfsagt komið með mölinni,“
segir Árni. Í fyrstu fann hana
hálfa tönnina og var hún frekar
illa farin. Er hann gekk aðeins
lengra fann hann svo hinn helm-
inginn. „Ekki bjóst ég við að
finna rostungstönn á þessum
stað. Eflaust hafa einhverjir rekist
á tönnina áður en haldið að þetta
væri steinn eða eitthvað og því
ekki skeytt um það. En ég er
frekar mikill grúskari og tók því
eftir henni.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Árni finnur tönn úr rostungi. „Ég
fann aðra tönn í fjörunni í Dýra-
firði vorið eftir hafísveturinn
2007,“ segir Árni. Þess má til
fróðleiks geta að latneskt ættar-
nafn rostunga, odobenus þýðir
„sá sem fer um á tönnunum enda
nota rostungar oft skögultennurn-
ar til að draga sig upp á ísjaka.
Stóru skögultennur voru áður fyrr
kallaðar fílabein norðursins hafa
oft á tíðum verið notaðar til að
gera skrautmuni.
Rostungar eru meðal stærstu
hreifadýra jarðar, aðeins sæfílar
eru stærri. Karldýr af Atlants-
hafsdeilitegundinni eru rúm 900
kg og kvendýrin rúm 700 kg.
Kyrrahafsdeilitegundin verður
nokkuð stærri, karldýrin eru frá
800-1700 kg og kvendýrin 400-
1250 kg. – thelma@bb.is