Bæjarins besta - 29.07.2010, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2010
Nýr bæjarstjóri
Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefnum
hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins.
Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt.
Stakkur skrifar Nýr bæjarstjóri á Ísafirði,
Daníel Jakobsson, er boðinn vel-
kominn heim ásamt fjölskyldu. Faglega hefur verið staðið að ráðn-
ingu nýs bæjarstjóra og vonandi hefur sá besti verið valinn. Að
minnsta kosti geta íbúar Ísafjarðarbæjar vel við unað. Daníel ólst
upp á Ísafirði og þekkir til þótt margt hafi breyst síðan hann flutti.
En það sem skiptir mestu er að hann vill koma og hefur staðist þær
kröfur sem gerðar eru til bæjarstjóra. Þeirra hlutverk er að stýra
daglegum rekstri sveitarfélagsins og sjá um að pólitískar ákvarðanir
bæjarstjórnar verði framkvæmdar í samræði við lög og góða siði
og venju. Ávallt verða einhverja breytingar með nýjum mönnum
og fróðlegt að sjá hverjar þær verða með hingaðkomu Daníels,
sem hefur starfað sem útibússtjóri hjá Landsbankanum að Lauga-
vegi 77 í Reykjavík.
Hinn nýráðni bæjarstjóri hefur því bakgrunn úr viðskiptalífinu
og tengsl við bankakerfið. Ætla má að hvort tveggja skipti máli
fyrir rekstur sveitarfélags, þótt sá rekstur sé ólíkur því sem gerist
í bönkum að minnsta kosti eins og hann var fyrir hrun. Ekkert af
slíkum vinnubrögðum hentar vel í sveitarfélagi sem hefur mörg
verkefni á sinni könnu og þarf að gæta aðhalds. Því má heldur ekki
gleyma að bæjarstjórar koma oft fram út á við fyrir hönd sveitar-
félagsins. Þar mun reynsla hans sem útibússtjóri væntanlega nýt-
ast vel. En fyrst og fremst mun hann njóta þess gangvart bæjarbúum
að þeir þekkja vel til hans og fjölskyldu hans, en faðir hans var
sóknarprestur um nokkurt skeið á Ísafirði.
Því má ekki gleyma heldur að Daníel er vel þekktur sem afreks-
maður í skíðagöngu og hann átti sér glæsilegan feril sem íþrótta-
maður. Það þykir okkur ekki ónýtt Ísfirðingum að geta státað af
því að bæjarstjórinn í Ísafjarðarbæ sé afburðamaður í íþróttum,
auk annarra kosta. Gerðar til hans miklar væntingar með réttu því
hann hefur þann bakgrunn sem til þarf. Nokkur breyting verður á
starfi bæjarstjórnar þegar bæjarstjóri er ekki lengur einn bæjarfull-
trúa og er með því fyrirkomulagi horfið til þess sem lengst af hef-
ur ríkt á Ísafirði. Ýmsir kostir fylgja því að bæjarstjóri sé pólitískt
ábyrgur sem einn bæjarfulltrúa og því með fingurna á púlsinum
allan tímann. En því fylgja líka margir kostir að bæjarstjóri sér
ráðinn starfsmaður með skýra ábyrgð gagnvart vinnuveitanda
sínum, bæjarstjórn fyrir hönd kjósenda.
En stjórnmál eru list hins mögulega og sá sem gegnir starfi fram-
kvæmdastjóra sveitarfélags, eins og það er kallað í sveitarstjórnar-
lögum, ber mikla ábyrgð og ríkar skyldur. Bæjarstjórn ber auðvitað
sjálf ríkustu skyldurnar og pólitíska ábyrgð sem fjölskipað stjórn-
vald. Þó ævinlega sé talað um meirihluta og minnihluta í sveitar-
stjórnum eru það fyrst og fremst hagsmunir kjósenda og íbúa sem
eiga að ráða ferðinni í störfum og ákvarðanatöku. Bæjarstjórn og
bæjarstjóri gegna þjónustuhlutverki og það er afar mikilvægt að
vel takist til. Ástæðulaust er að efast um að því verði ekki vel sinnt
af hálfu beggja. Að lokum eru árnaðaróskir til hins nýja bæjastjóra
ítrekaðar og fyrrum bæjarstjóra Halldóri Halldórssyni þökkuð
góð störf og óskað velfarnaðar.
smáar
Til leigu er falleg og björt 2ja
herb. íbúð, ca. 80m² á eyrinni
á Ísafirði frá september nk. til
maí 2011. Stórar svalir. Leig-
ist með eða án húsgagna.
Uppl. í síma 867 6657.
Til leigu er 4ra herb. íbúð í
Súðavík. Björt og rúmgóð 90
m² á jarðhæð í tvíbýli Laus frá
1. ágúst. Stutt í grunnskóla,
leikskóla, íþróttahús. Uppl. á
netf. omarjons@sudavik.is.
Þar sem ég er að taka við af-
leysingarstarfi sem forstöðu-
maður hjá Svæðisskrifstofu
málefna fatlaðra á Ísafirði frá
og með 15 ágúst, óska ég eft-
ir makaleiguskiptum á einbýl-
ishúsi á Ísafirði eða nágrenni
og á eign minni sem er 87m²,
4ra herb. íbúð á besta stað í
vesturbæ Reykjavíkur. Íbúðin
er í göngufæri frá Ægissíðunni,
miðbænum og Háskólasvæð-
inu. Uppl. gefur Hallgrímur í
síma 848 0400 eða á netfang-
inu hallgrg@hi.is.
Til athugunar er að leigja út
120m² íbúð á eyrinni á Ísafirði
í vetur, frá ca. 10. ágúst til 30.
júní 2011. Uppl. gefnar í síma
00 47 480 70 568 frá 30. júlí.
Til sölu er Atika handlangara-
hrærivél. Uppl. í síma 898 0628.
Til sölu er Palomino Colt felli-
hýsi árg. 07 ásamt fortjaldi o.fl.
Húsið er til sýnis í Súðavík.
Uppl. í síma 691 1624.
Ísfirski gullsmiðurinn Dýr-
finna Torfadóttir tekur þátt í
norrænni skartgripasýningu
í Listasetrinu Tjörnedala í ná-
grenni Simrishamn á Skáni
í Svíþjóð. Sýningin ber yfir-
skriftina Smycken så in i
Norden eða frjálslega þýtt,
Skart er í tísku á Norður-
löndum. Sýningin er haldin
að frumkvæði Samtaka lista-
manna á Skáni og með
stuðningi Norræna menn-
ingarsjóðsins.
Einum gullsmið frá hverju
Norðurlandanna var boðin
þátttaka í sýningunni auk
átta fulltrúa frá Svíþjóð. Fyr-
ir hönd Íslands sýnir Dýr-
finna verk sín. Við val á
þeim var haft að leiðarljósi
sérstaða sem einkenna verk
hennar, efnismeðferð og úr-
vinnslu. Þar má nefna sútað
fiskroð, íslenska steina og
bein sem hún fellir með ýms-
um hætti að hefðbundnum
eðalmálmum. Sýningin stend-
ur til 8. ágúst.
Dýrfinna sýn-
ir í Svíþjóð
Grænlensk gestasýning ein-
leikjahátíðarinnar Act alone á
Ísafirði verður sýnd á opnunar-
degi hátíðarinnar 13. ágúst. Um
er að ræða sýningu frá Silamiut
leikhúsinu í Grænlandi sem er
eina atvinnuleikhús landsins. Sýn-
ingin heitir „Long long ago...“
og þar býðst áhorfendum einstakt
tækifæri til að fræðast um rætur
og menningu Inúíta. Sýningin
inniheldur þrjár Inútíasögur;
Creation Story, The Mother of
The Sea og The Sacred Gift of
the Celebration. Leikari er Makka
Kleist en leikstjóri er Svenn B.
Syrin sem jafnframt er leikhús-
stjóri Silamiut leikhússins. Sila-
miut var stofnað árið 1984 og auk
heimalandsins hefur leikhúsið
sýnt víða um heim, t.d. Ástralíu,
Bandaríkjunum og á Norður-
löndunum.
Sýnt verður í Edinborgarhús-
inu og hefst sýningin kl. 20. Sýn-
ingin er afurð vinasambands milli
Kómedíuleikhússins og Silami-
ut. Ekki eingöngu munu Græn-
lendingar sýna á einleikjahátíð-
inni heldur mun Kómedíuleik-
húsið sýna hinn sívinsæla einleik
Gísla Súrsson í Nuuk í Græn-
landi. Act alone verður haldin í
sjöunda sinn dagana 13. og 15.
ágúst. Hátíðin er helguð einleikj-
um og er meðal fárra slíkra í heim-
inum. Að vanda verður dagskráin
einleikin með bæði innlendum
og erlendum sýningum. Aðgang-
ur á hátíðina er ókeypis.
Grænlendingar opna Act alone
Geitungarnir komnir til að vera
„Geitungarnir eru komnir til
að vera. Eitranir hér og þar breyta
litlu. Miklu betra er að sætta sig
við þessi dýr og hætta að eyði-
leggja góða daga af hræðslu við
þau,“ segir Ásthildur Cecil Þórð-
ardóttir garðyrkjustjóri Ísafjarð-
arbæjar á bloggsíðu sinni.
„Það sem ég skil ekki er þessi
ofsalega hræðsla við geitunga,
býflugur og kóngulær eins og
áður sagði. Það er auðvitað til að
geitungar verði aggressífir að
hausti, en allt sumarið eru þeir
sauðmeinlausir og bara að hugsa
um sig og sína, eins og flestir
aðrir,“ bætir hún við. Hún bendir
á að geitungar eru nytsöm þar
sem þau éta í sumum tilfellum
lýs og önnur leiðindakvikindi.
Í bloggfærslunni segir: „Núna
í tvígang hef ég þurft að skipta
mér af geitungabúum í einum
skrúðgarðinum. Í öðru tilfellinu
neyddist ég til að láta drepa íbú-
ana, þar sem ég var að láta fólkið
mitt gera við og mála hvalbeinið
í Jónsgarði og þeir höfðu búið
um sig upp í kjálkanum á beininu,
og þarf þurfti að mála og fylla í.
Í hinu tilvellinu var geitungabú
rétt hjá þar sem stelpurnar mínar
.þurftu að gróðursetja blóm. Ég
bjargaði því við með því að gróð-
ursetja sjálf blómin, allir voru
glaðir, stelpurnar að sleppa við
flugurnar, flugurnar að fá blómin
nær heimaslóðum og ég að bjarga
þessu við. Þær bentu mér svo á
enn eitt búið, sem er virkilega
flott og gaman að fylgjast með
þessum tignarlegu flugum við
iðju sína.“
– thelma@bb.is
Geitungur.