Bæjarins besta - 29.07.2010, Side 17
FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2010 17
Önundur Hafsteinn Páls-
son, tónlistarmaður og upp-
tökumaður á Flateyri stendur
fyrir margmiðlunarnám-
skeiði fyrir unglinga í sumar
og í haust. Önundur fékk á
dögunum fyrsta hópinn til
sín til þess að prufukeyra
verkefnið sem er styrkt af
Menningarráði Vestfjarða.
„Þetta er margmiðlunar-
námskeið, en ekki í hinum
venjulega skilningi. Við er-
um að vinna með marga
miðla. Við notumst við ljós-
myndir, video og teikningar.
Námskeiðið snýst um að búa
til teiknimyndir í bland við
þetta allt. Það má því í raun
segja að þetta séu úrklippu–
teiknimyndir,“ segir Önund-
ur.
Margmiðl-
un á Flateyri
Önundur Pálsson.
Jónas Helgason, formaður Æð-
arræktarfélags Íslands og bóndi í
Æðey í Ísafjarðardjúpi segir nið-
ursveiflu á japönskum fjármála-
markaði valda því að eftirspurn
eftir æðardúni hefur minnkað um
helming. Nokkrir framleiðendur
hérlendis sætti sig við mikla verð-
lækkun til að selja afurðir sínar.
„Við höfum á engan hátt notið
neins af gengisbreytingunni sem
hefur orðið vegna kreppunnar hér
heima,” segir Jónas Helgason í
samtali við vísir.is, en hann kveð-
ur eftirspurn eftir æðardúni hafa
tekið að dala þegar fyrir hrunið.
Í fyrra hafi aðeins verið selt um
eitt og hálft tonn af æðardúni
miðað við um þriggja tonna fram-
leiðslu í góðu ári. Á meðan safnist
upp birgðir.
Jónas játar því að meðal æðar-
dúnsframleiðenda sé nokkur
gremja í garð þeirra úr hópnum
sem láti útflytjendur hafa dún til
að selja ytra á mikið lægra verði
en tíðkast hafi. Dæmi séu um að
kílóið af dúni hafi verið selt á 40
til 45 þúsund krónur í fyrra. Fyrir
hrunið hafi verðið verið allt að
115 þúsund krónur en það svarar
til 115 milljóna króna fyrir hvert
tonn. Verðfallið nú er þannig afar
mikið í erlendum gjaldmiðlum.
„Það er staðreynd að hér eru
aðilar sem nýttu sér það að lækka
verðið í erlendri mynt til að geta
frekar selt dúninn sem þeir voru
með. En það hefur sýnt sig í
gegnum tíðina að þó að verð
lækki svona þá auka menn ekkert
söluna,“ segir Jónas.
Á bilinu 260 til 270 félagar
eru nú í Æðarræktarfélagi Íslands
en dúnn finnst að sögn Jónasar á
um 400 jörðum. Mestur sé dúnn-
inn á Vesturlandi, sérstaklega við
Breiðafjörð. – kristjan@bb.is
Eftirspurn eftir æðardúni minnkar
Jónas Helgason, formaður Æðarræktarfélags Íslands og bóndi í Æðey í Ísafjarðardjúpi segir niðursveiflu
á japönskum fjármálamarkaði valda því að eftirspurn eftir æðardúni héðan hefur minnkað um helming.