Bæjarins besta


Bæjarins besta - 29.07.2010, Side 18

Bæjarins besta - 29.07.2010, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2010 Nokkuð hefur fjölgað komum sportbáta til Ísafjarðarhafnar að undanförnu. Bæði er aukning meðal seglskútna og sportbáta og hafa þeir verið nokkuð fyrr á ferðinni en fyrri sumur. Nefnt hefur verið að aðstaða í Ísafjarð- arbæ hafi sína kosti og galla er varðar komu sportbáta til Ísa- fjarðar. Vilja sumir meina að þjónustan sé lítil og ekki sé gert mikið í komu slíkra báta til stað- arins. Nefnt hefur verið að að- staða fyrir sportbáta og skútur sé barns síns tíma á Ísafjarðarhöfn. En hverjir eru kostir og gallar aðstöðunnar? Getur Ísafjörður haslað sér völl sem sportbátamið- stöð Íslands, eins og oft hefur verið nefnt, og eru breytingar á teikniborðinu? Bæjarins besta spurði Albertínu Elíasdóttir, for- mann hafnarstjórnar Ísafjarðar- bæjar, nánar út í málið. „Það eru ótalmargir augljósir kostir við sportbátaaðstöðuna á Ísafirði. Sem dæmi má nefna hversu miðsvæðis í bænum höfn- in er og því stutt í alla þjónustu. Svo má auðvitað ekki gleyma hversu frábært allt svæðið hér í kring er til siglinga, hvort sem er á skútum eða vélbátum. Helsti gallinn er líklega að aðstaðan er ekki eins góð og á væri kosið fyrir sportbáta, en það er vilji til þess hjá nýrri hafnarstjórn að bæta þá aðstöðu, líkt og var hjá fyrri hafnarstjórn, og aðstaðan hefur farið batnandi á síðustu árum,“ segir Albertína. Hún telur að Ísafjarðarhöfn standi sig vel í þjónustu við sport- báta og segir óhætt að fullyrða að hér sé veitt persónuleg þjón- usta. „Þeir sem leggja upp að fá rafmagn og vatn og aðra þjón- ustu. Jafnframt reyna hafnar- starfsmenn að vera fólki innan handar, t.a.m. með því að aðstoða það við að komast inn á flugvöll, veita upplýsingar um veðurspár, ískort og fleira.“ – Er það til skoðunar að Ísa- fjörður verði sportbátamiðstöð Íslands eins og stungið hefur ver- ið upp á? „Eins og fram kemur í meiri- hlutasamningi nýs meirihluta er ætlunin að fara í þá vinnu að móta nýja framtíðarsýn fyrir hafnir Ísafjarðarbæjar, þar á með- al sjósportmiðstöð. Sú vinna mun fara fram t.a.m. með íbúaþingum þannig að íbúar sveitarfélagsins og notendur þjónustunnar fá tækifæri til að koma sínum hug- myndum á framfæri. Það er þó ljóst að það er vilji þessa meiri- hluta og þess gamla að hér verði sportbátamiðstöð Íslands. Má sem dæmi nefna að fyrri hafnar- stjórn óskaði eftir því við sam- gönguráðherra og samgöngu- ráðuneyti að þegar farið verði í það verk að byggja varnargarða fyrir Pollgötuna verði byggður grjótgarður úti í Pollinum og inn- an þess grjótgarðs verði þá búin til almennileg sportbátahöfn. Þegar það kemst í gegn verða aðstæður vonandi orðnar þannig að hafnarstjórn geti beitt sér að alefli í að auglýsa höfnina sem almennilega þjónustuhöfn fyrir sportbáta.“ – Er einhver sem tekur á móti fólki sem kemur hingað á bátum eða skútum? Og er einhver sem kynnir þá fyrir svæðinu og hvað er áhugavert er að skoða? „Starfsmenn hafnarinnar taka á móti öllum bátum sem hingað koma, þegar þeir vita af þeim. Þeir veita fólki allar þær upplýs- ingar sem óskað er eftir, en benda fólki jafnframt á Upplýsingamið- stöðina sem er rétt við hafnar- kantinn í Edinborgarhúsinu þar sem sérhæfðir starfsmenn eru til staðar til að veita upplýsingar um svæðið og hvað hægt sé að gera hér.“ Nefnt hefur verið að aðstaða til að koma vatni á sportbáta við Ísafjarðarhöfn sé ekki næg. Al- bertína segir svo ekki vera. „Þeir bátar sem óska eftir að fá vatn hafa fengið það, búið er að tengja vatn og rafmagn við nýju staurabryggjuna, þar sem reynt er að hliðra til fyrir báta eins og hægt er. En jafnvel þó þeir liggi ekki þar, þá eru þeir alltaf af- greiddir með vatn ef þeir óska þess. Jafnframt eru starfsmenn hafnar- innar áhöfnum innan handar við að panta olíu og aðra þjónustu.“ Fjölgun sportbáta kallar vænt- anlega á aukna þjónustu, þ.e. að- stöðu til að komast á netið, í þvottavélar, vatn, klósett o.s.frv. Hvernig er þeim málum háttað? „Höfnin, eins og aðrar stofn- anir bæjarins, er alltaf að reyna að bæta sig. Þó er staðreyndin sú að sum þjónusta er í boði hjá einka- aðilum og vafasamt að höfnin, og þar með sveitarfélagið, eigi að fara í samkeppni við þá aðila. Það eru klósett á höfninni, auk þess sem salerni eru í Upplýs- ingamiðstöðinni sem rekin er að hluta af Ísafjarðarbæ. Í Upplýs- ingamiðstöðinni er einnig hægt að komast á internetið. Hvað varðar þvottaaðstöðu, þá er Efna- laugin einmitt staðsett á höfninni þar sem hægt er að láta þvo þvott og fá afhentan samdægurs, ef farið er með þvottinn að morgni.“ – Hvað ætlar ný hafnarstjórn að gera í sambandi við komu sportbáta og þjónustu við þá? „Því er ekki að leyna að betri þjónusta við sportbáta er nokkuð sem við erum meðvituð um og það er okkar hjartans mál að bæta aðstöðuna okkar. Ef við fáum þetta verkefni í gegn að Pollgatan verði varin með varnargörðum út á Pollinn, þá erum við tilbúin í það verkefni að byggja upp sportbátaaðstöðu þar.“ Verður Ísafjörður sport- bátamiðstöð Íslands?

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.