Bæjarins besta - 29.07.2010, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2010 19
Sælkerinn
Einfaldir saltfiskréttir og döðluterta
Nokkur orð frá Vá Vesthópnum til foreldra
Oft hafa foreldrar haft samband við meðlimi Vá Vesthópsins
með spurningar um uppeldi. Í sumum tilvikum er um að ræða
spurningar foreldra þar sem börn þeirra hafa misstigið sig og er
þá gjarnan leitað ráða. Í þessu sambandi langar Vá Vesthópinn
til að minna foreldra á eftirfarandi
Eftirlitslausar útilegur og samkvæmi
Þegar vetri lýkur breytist margt í daglegu lífi fjölskyldna. Það
er ekki síst á vorin og sumrin sem foreldrar þurfa að halda vöku
sinni fyrir velferð barna sinna. Þannig er mikilvægt að skilja
ungmennin ekki eftir ein og eftirlitslaus heima þegar farið er í
lengri eða skemmri tíma í burtu. Eins er mikilvægt að leyfa ekki
eftirlitslaus samkvæmi í heimahúsum eða félagsheimilum, hvað
þá útilegum.
Enginn rekstraraðili samkomuhúss eða félagsheimilis ætti að
lána eða leigja húsnæði til annarra en þeirra sem hafa a.m.k. náð
sjálfræðisaldri. Sama á við um þá sem leigja út tjaldstæði. Þess
eru dæmi að alvarlegir atburðir hafi gerst í útilegum þar sem
ungmenni eru samankomin. Þá geta komið upp aðstæður sem ung-
mennin ráða ekki við án aðstoðar fullorðinna og ábyrgra. Í þessu
sambandi má nefna kynferðibrot og önnur ofbeldisbrot, neysla
ólöglegra vímuefna og fl.
Reynslan hefur sýnt að slíkar eftirlitslausar samkomur sækja ekki
aðeins nánir vinir viðkomandi barna heldur „sogast“ þangað aðrir
aðilar sem hafa ekki endilega í hyggju væntumþykju og heiðarlega
framkomu gagnvart samborgurum sínum. Það er því heilög skylda
okkar, foreldra sem og annarra samborgara, að hafa gætur á því að
slíkar samkomur séu tilkynntar til foreldra viðkomandi barna og/
eða lögreglunnar sem og barnaverndaryfirvalda. Það er góð regla að
hafa samband við foreldri barns sem býður til samkvæmis og athuga
hvort þar verði einhver fullorðinn og svo framvegis. Slíkt ýtir líka
undir það að góð regla verði viðhöfð í samkvæminu.
Vakni grunur um að barni sé hætta búin með einhverjum hætti er
hvatt til þess að yfirvöldum sé tilkynnt um það. Sími lögreglunnar er
450 3730, en sömuleiðis er hægt að ná til lögreglunnar og barnavernd-
aryfirvalda í gegnum síma Neyðarlínunnar, 112. Fólk á að vera
óhrætt við að hringja í það númer þó bein lífshætta liggi ekki við.
DRÁTTARBRAUT TIL SÖLU
Ísafjarðarbær auglýsir til sölu dráttarbraut
og aðliggjandi mannvirki á Suðurtanga á
Ísafirði. Frestur til að skila inn tilboðum
er til 15. ágúst nk.
Sjá nánar tilkynningu á heimasíðu Ísafjarð-
arbæjar, www.isafjordur.is.
Sælkeri vikunnar býður upp á
tvo saltfiskrétti, annars vegar
saltfisk með hvítlauk og hins
vegar saltfisksalat. Einnig lætur
hún fljóta með uppskrift að
dýrindis döðlutertu.
Saltfiskur með hvítlauk
800 g saltfiskur, skorinn í hæfi-
lega bita
Hveiti til að velta upp úr
Ólífuolía til steikingar
16-20 hvítlauksgeirar, skornir
í þunnar sneiðar
2 stk rauður chilipipar, fræ-
hreinsað og saxað smátt
1-2 dl. svartar ólífur1 dl. hvít-
vín
Fiskbitarnir þerraðir vel áður
en þeim er velt upp úr hveiti og
síðan steiktir í ólífuolíu. Bitunum
er raðaðir í eldfast mót og svartur
pipar malaður yfir. Laukur og
chilipipar steikt örstutt í ólífuolíu,
hvítvíninu hellt yfir pönnuna og
látið sjóða. Þessu er sáldrað yfir
fiskinn og sett inn í heitan ofn í
nokkrar mínútur.
Saltfisksalat
Útvatnaður saltfiskur, helst
sólþurrkaður úr neðsta
Sólþurrkaðir tómatar í olíu
Ólífur, svartar og grænar
Kapers
Blaðlaukur
Steinselja
Svartur pipar
Allt skorið og saxað að vild og
blandað saman í skál. Bleytt í
með olíunni af tómötunum og
bætt við ólífuolíu ef þarf. Gott
að láta salatið jafna sig í ísskáp í
1-2 klst. áður en það er borið
fram.
Döðluterta
3 egg
1 bolli púðursykur
5 msk hveiti
1 tsk lyftiduft
100 g suðusúkkulaði, saxað
250 g döðlur, saxaðar
Egg og púðursykur þeytt vel
saman, lyftidufti og hveiti bland-
að saman við súkkulaði og döðl-
ur. Öllu hrært saman með sleif.
Bakað í 2 hringlaga formum við
170° í 30 – 40 mín. Þegar botn-
arnir hafa kólnað eru þeir lagðir
saman með rjóma og flórsykur
sigtaður yfir.
Ég skora á Evu Baldursdóttur
frá Ísafirði til að verða næsti
sælkeri vikunnar.
Sælkeri vikunnar er Marta Hlín Magnadóttir frá Ísafirði.Breskra sjómanna minnst
Minningarstund var haldin
við sjómannastyttuna á Eyrar-
túni á Ísafirði fyrir stuttu þar
sem minnst var breskra sjó-
manna og skipa sem farist hafa
við Íslandsstrendur. Frum-
kvæðið að athöfninni átti gam-
all enskur togaraskipstjóri frá
Hull, Ken Knox að nafni, sem
kom hingað með skemmti-
ferðaskipinu Ocean Countess.
Ken Knox er nú kominn á
eftirlaun en hugur hans er þó
enn bundinn hag sjómanna því
Ken er meðlimur í Royal Nati-
onal Mission to Deep Sea
Fishermen og er formaður Hull
deildarinnar. Samtökin eru
hliðstæð um margt sjómanna-
starfinu, sem Sigfús í Salem
hélt hér uppi á Ísafirði í mörg
ár.
Ken lagði lárviðarkrans að
styttu sjómannanna. Þennan
krans hafði hann sjálfur gert
og er þar í miðjunni spjald til
minningar um þá bresku togara,
sem fórust á Vestfjarðamiðum.
Sóknarpresturinn á Ísafirði fór
með bæn og minnst var látinna
sjómanna við Íslandsstrendur.
Ken flutti svo ljóð er hann hafði
samið um líf sjóðmannsins. Síð-
an flutti hann stutta tölu. Að lok-
um afhenti hann Jóni Sigurpáls-
syni, forstöðumanni Byggða-
safns Vestfjarða, gömul sjókort,
sem hann notaði þegar hann
var hér við veiðar. Eru kortin
gjöf frá honum til Sjóminja-
safnsins á Ísafirði.
Guðmundur M. Kristjáns-
son hafnarstjóri þakkaði Ken
fyrir komuna og sagði hann
að ensk skip væru ávallt vel-
komin í hafnir Ísafjarðarbæjar.
Færði Guðmundur Ken platta
að gjöf.
– thelma@bb.is