Bæjarins besta


Bæjarins besta - 23.06.2011, Qupperneq 2

Bæjarins besta - 23.06.2011, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2011 Mikill fjöldi var við hátíðarhöldin á Hrafnseyri. Ólafur B. Halldórsson mætti í sínu fínasta pússi. Fjölmenni á Hrafnseyri Á þriðja þúsund manns voru viðstaddir hátíðarhöld á Hrafns- eyri við Arnarfjörð á þjóðhátíðar- daginn sem haldin voru í tilefni af því að 200 ár voru liðin Jóns Sigurðssyni. „Þetta var í einu orði sagt frábært,“ segir Valdimar J. Halldórsson, forstöðumaður safns Jóns Sigurðssonar á Hrafns- eyri. Við þetta tilefni tilkynnti Jóhanna Sigurðardóttir, forsætis- ráðherra að ákveðið hafi verið að stofna menningarsetur um Jón Sigurðsson á Hrafnseyri. Í ræðu hennar kom fram að lögð verði fram þingsályktunartillaga þar að lútandi og stendur til að menn- ingarsetrið taki við staðnum af Hrafnseyrarnefnd þann 1. janúar. Jafnframt hefur verið ákveðið að sett verði á laggirnar prófessors- staða tengd nafni Jóns Sigurðs- sonar við Háskóla Íslands. Sá sem gegna mun stöðunni skal hafa fasta búsetu á Ísafirði eða nágrenni og hafa kennslu og rannsóknir sem starfsskyldu og samstarf við Rannsóknasetur Há- skóla Íslands á Vestfjörðum og Meðal þeirra sem komu fram var Björgvin Halldórsson og meðlimir Karlakórsins Ernis. að mér að hægt verði að toppa þetta,“ segir Valdimar. Vegleg dagskrá var í tilefni dags þar sem kórar og ýmir tón- listarmenn komu fram, þeirra á meðal ástsælu söngvarnir Sigrún Hjálmtýsdóttir og Björgvin Hall- dórsson, Karlakórinn Ernir og Karlakórinn Vestri. Valdimar segir að fólk hafi skemmt sér hið besta. Meðal gesta voru forseta- hjónin og margir þingmenn rík- isstjórnarinnar. Valdimar segir að unga kynslóðin hafi skemmt sér jafnt á við þá sem eldri eru. „Það er mýta að krakkar geti ekki skemmt sér án þess að það séu hoppikastalar eða álíka af- þreying. Þau skemmtu sér kon- unglega hér, eins og alltaf á 17. júní. Þau fóru t.d. á hestbak og léku sér á Burstabænum.“ Valdimar segir að hann viti ekki betur en mikil ánægja sé með hvernig til tókst með hátíð- arhöldin. „Ég get allavega ekki annað en verið í skýjunum yfir þessu öllu saman.“ – thelma@bb.is Háskólasetur Vestfjarða. Gert er ráð fyrir því að staðan verði jafn- framt nátengd hinu nýja setri á Hrafnseyri. Eitt af lykilverkefn- um hennar verði að halda árlegar ráðstefnur og námskeið í sumar- háskóla á Hrafnseyri með innlend- um og erlendum kennurum og fyr- irlesurum. „Það má eiginlega segja að hér sé aldarbaráttu lokið en í upp- hafi 20. aldarinnar var barist fyrir því að stofnaður yrði skóli á Ísa- firði eða Hrafnseyri til heiðurs Jóns Sigurðssyni, það var aldrei úr því. Svo hefur einnig verið ákveðið að hér verði menningar- setur, ég hreinlega get ekki ímynd- Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri á Tálknafirði. Fjallkona Vestfjarða, Ása Dóra Finnbogadóttir og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar sem var kynnir á hátíðinni.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.