Bæjarins besta - 10.01.2013, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013
Útgefandi: Gúttó ehf., kt. 680501-2620
Afgreiðsla og ritstjórn: Silfurgötu 1, Ísafirði, sími 456 4560
Ritstjóri BB og bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson, 892 5362, bb@bb.is
Ábyrgðarmenn: Halldór Sveinbjörnsson, 894 6125, halldor@bb.is
Sigurjón J. Sigurðsson
Blaðamenn: Guðmundur B. Þorbjörnsson, gudmundur@bb.is
Hörður Andri Steingrímsson, hordur@bb.is
Auglýsingar: Halldór Sveinbjörnsson, 894 6125, halldor@bb.is
Prentvinnsla: Litróf ehf.
Upplag: 2.200 eintök
Dreifing: Íslandspóstur. Dreift án endurgjalds inn á öll heimili
á norðanverðum Vestfjörðum
Stafræn útgáfa: www.bb.is / facebook.com/pages/bbis
Önnur útgáfa: Á ferð um Vestfirði
ISSN 1670-021X
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið bb@bb.is.
Auglýsingar þurfa að berast fyrir kl. 17 á mánudögum
fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum.
Ritstjórnargrein
Tímamót
Spurning vikunnar
Hvernig leggst árið 2013 í þig?
Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur
látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér.
Alls svöruðu 416.
Vel sögðu 341 eða 82%
Illa sögðu 75 eða 18%
Bæjarins besta verður fram-
vegis dreift ókeypis til lesenda á
norðanverðum Vestfjörðum.
Hringiðan, vikulegt blað sem
Gúttó ehf., útgefandi BB, hefur
gefið út og dreift ókeypis frá því
í byrjun nóvember, hefur verið
sameinað Bæjarins besta, en með
því ætti líftími blaðsins að lengj-
ast til muna. Ástæða breyting-
anna er breytt landslag í útgáfu
en samkvæmt nýjustu könnunum
hefur sala og áskrift dagblaða,
tímarita og héraðsfréttablað,
minnkað töluvert frá hruninu árið
2008.
Frá stofnun Bæjarins besta, 14.
nóvember 1984 og fram til
haustsins 1992 var blaðinu dreift
ókeypis. Þá var svo komið að
auglýsingatekjurnar stóðu ekki
undir rekstrinum. Þá var aðeins
og tvennt að ræða, að hætta út-
gáfu eða selja afurðina. Síðari
kosturinn var valinn og er það
því lesendum blaðsins að þakka
að þrítugasti árgangurinn fer að
líta dagsins ljós.
BB var fyrsta blað landsins
sem notendur netsins gátu séð í
heild sinni á netinu, þ.e. eins og
pappírsútgáfan leit út. Vefsíða
Bæjarins besta, bb.is, hefur frá
upphafi verið á meðal mest sóttu
vefsíðna landsins, samkvæmt
mælingum Modernus. Að jafnaði
sækja 14-16 þúsund notendur
vefsíðuna í viku hverri. Frá upp-
hafi hafa útgefendur Bæjarins
besta og bb.is, fylgst vel með
nýjungum í vefmálum og jafnan
kappkostað að vera með það
nýjasta hverju sinni. Á þessu ári
verður einnig ráðist í umfangs-
miklar breytingar á vefsíðu bb.is,
neytendum til hagsbóta.
Eins og að framan greinir, hef-
ur Bæjarins besta verið sölublað
frá haustinu 1992 eða í ríflega
tvo áratugi. Við þessi tímamót
vilja útgefendur þakka áskrifend-
um fyrir stuðninginn í gegnum
árin. Þeir áskrifendur sem búa
utan Vestfjarða, geta fengið blað-
ið sent heim gegn greiðslu burð-
argjalds. Blaðið verður hins
vegar ekki sent til áskrifenda utan
Vestfjarða í næstu viku fyrr en
staðfesting hefur borist. Hægt er
að staðfesta áframhaldandi áskrift
á netfanginu bb@bb.is. Blaðið
verður jafnframt aðgengilegt á
pdf-formi á bb.is.
BB orðið fríblað að nýju
Mikið var um dýrðir í Mennta-
skólanum á Ísafirði á föstudag
þegar nýsköpunarsmiðjan Fab
Lab var formlega opnuð. Smiðjan
mun bera nafnið Guðmundar-
smiðja, eftir Guðmundi Þór
Kristjánssyni vélstjóra og vél-
stjórnarkennara við Menntaskól-
ann á Ísafirði. Guðmundur var
frumkvöðull að stofnun Fab Lab
smiðju á Ísafirði, en hann lést
árið 2010 langt fyrir aldur fram.
Katrín Jakobsdóttir mennta- og
menningarmálaráðherra ávarpaði
samkomuna í gegnum samskipta-
forritið Skype, og lýsti hún yfir
ánægju sinni með stofnun smiðj-
unnar, sem hún telur vera fram-
tíðina í kennslu- og frumkvöðla-
starfi. Berglind Hallgrímsdóttir,
framkvæmdastjóri Nýsköpunar-
miðstöðvar hélt einnig ræðu og
yfir mikilvægi þess að smiðja
sem þessi væri komin á laggirnar
á Ísafirði.
Sigurlaug Kristjánsdóttir stýrði
viðburðinum, en hún er verk-
efnisstjóri hjá Nýsköpunarmið-
stöðinni á Ísafirði og er einnig
fulltrúi í skólanefnd Menntaskól-
ans á Ísafirði. Jón Reynir Sigur-
vinsson skólameistari MÍ flutti
stutt ávarp og afhjúpaði minning-
arskjöld um Guðmund, sem
prýða mun vegg smiðjunnar. Þór-
ir Guðmundsson, sonur Guð-
mundar, afhjúpaði skjöldinn
ásamt Jóni Reyni en skjöldurinn
er gerður úr Plexi-gleri, í Fab
Lab smiðjunni.
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir
er verkefnastjóri smiðjunnar.
„Við höfum fengið frábærar við-
tökur hingað til en smiðjan hefur
verið opin frá því fyrir jól, þó
formleg opnun hafi ekki verið
fyrr en í dag,“ segir Albertína, en
hún hvetur jafnt reynda sem
óreynda að kíkja við í Guðmund-
arsmiðju og spreyta sig í nýsköp-
un. „Við hvetjum alla til að koma
og prófa og óskum sérstaklega
eftir því að fara í samstarf við frum-
kvöðla.“
Smiðjan verður opin seinni
part dags, en opnunartímar verða
opinberaðir í þessari viku.
– gudmundur@bb.is
Guðmundarsmiðja opnuð
Þórir Guðmundsson, sonur Guðmundar Þórs Kristjánssonar, afhjúpaði
skjöldinn ásamt Jóni Reyni Sigurvinssyni skólameistara Menntaskólans á Ísafirði.
Fjölmargir gestir voru við opnunina.
Viðburðarríku ári er lokið. Fyrstu dagar nýja ársins benda til að lítið
hafi dregið úr sundurlyndisfjandanum, sem tröllriðið hefur samfélaginu
um langt skeið og litlar því líkurnar því á að hann lognist út af úr ein-
manaleik líkt og kýrin hans Gísla sáluga á Uppsölum forðum!
Undir lok ársins vorum við óþyrmilega minnt á hnattstöðu landsins:
vetrarríkið í öllu sínu veldi. Þótt sitthvað færi úrskeiðis var ekki hoggið
skarð í raðir mannfólks. Það skiptir öllu. Annað fæst bætt.
Rafmagnsleysið sem óveðrið olli undirstrikaði hver staða Vestfirð-
inga er í orkumálum. Örlað hefur á óánægju hvernig til tókst með að
koma rafmagni til notenda í óveðurskaflanum. Hér á eflaust við hið
fornkveðna, að hægara er um að tala en í að komast. Ekki skal dregið
í efa að allir þeir sem að úrlausnum unnu hafi lagt sig alla fram, og gott
betur. Bilanir í varakerfi bættu ekki úr skák. Til frambúðar horft er
tvennt sem leggja verður áherslu á: Hverfaskipting svæðisins - við
skömmtun raforku - verður að vera íbúunum ljós, sem nokkur er kost-
ur, þannig að orkuskammtanir nýtist til fulls, hverju sinni. Þá þarf stöð-
ugt upplýsingaflæði, um ríkjandi stöðu og horfur, að vera með besta
mögulegum hætti. Óvissunni er síst á bætandi. Fyrirhuguð díselrafstöð
í Bolungarvík kann að vera þörf viðbót við ,,varakerfið“, en leysir í
engu úr ófremdarástandinu, sem ríkir í rafmangsmálum fjórðungsins,
og stendur klárlega í vegi fyrir framvindu í atvinnumálum; kemur í veg
fyrir að orkufrek fyrirtæki líti til Vestfjarða, svo sem kunnugt er. Hvað
það varðar verður að horfa til langrar framtíðar með virkjunum og
flutningslínum inn á svæðið.
Frá og með árinu 2001 hefur BB átt aðild að vali á Vestfirðingi árs-
ins. Fyrstur hlaut nafnbótina Guðmundur Halldórsson, sjómaður í Bol-
ungarvík. Aðrir, sem fetað hafa slóð aldna sjóarans, hafa komið úr hin-
um ýmsu stéttum samfélagins. Að þessu sinni er Vestfirðingur ársins
fyrrum sóknarprestur Bolvíkinga, sr. Agnes M Sigurðardóttir, sem
rauf múr karlaveldis íslensku þjóðkirkjunnar er hún var kjörinn biskup
Íslands, fyrst kvenna. Bæjarins besta færir frú Agnesi heilla- og ham-
ingjuóskir af tilefninu og velfarnaðar í biskupsstarfinu. Öðrum, sem
tilnefnd voru í kjörinu, eru færðar kveðjur og heillaóskir.
Bæjarins besta er á tímamótum. Það er aftur orðið fríblað. Fyrir
þessu er gerð nánari grein í blaðinu. Það er einlæg von útgefenda að
hægt verði að ná til fyrrum áskrifenda, utan norðan verðra Vestfjarða,
með þeim leiðum sem í boði eru og greint er frá í blaðinu. Tímarnir
breytast og mennirnir með. Svo er einnig um flest mannanna verk. Við
það verður að horfast í augu. s.h.