Bæjarins besta - 10.01.2013, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013
„Mér þykir afskaplega vænt
um Vestfirði og Vestfirðinga, enda
liggja þar rætur mínar langt aftur
í ættir og þar mótaðist ég sem
manneskja, í faðmi fallra blárra
og svo í Víkinni,“ segir Agnes
M. Sigurðardóttir er Vestfirðing-
ur ársins 2012 að mati lesenda
bb.is. 30% greiddra atkvæða féll
Agnesi í hlut, en hún hefur verið
mikið í umræðunni á árinu eftir
að hún var kjörinn biskup Íslands,
fyrst kvenna. Agnes er borinn og
barnfæddur Ísfirðingur, en hún
hafði þjónað sem sóknarprestur í
Hólsprestakalli í Bolungarvík frá
1994 áður en hún tók við embætti
biskups.
Í samtali við blaðamann Bæj-
arins besta segir Agnes að henni
þyki einnig einkar vænt um við-
urkenninguna. Að hennar sögn
hafa fyrstu mánuðirnir í starfi
biskups verið þroskandi, erilsam-
ir og skemmtilegir, allt í senn.
„Það er alltaf gaman að takast á
við ný verkefni og tökum á þeim,“
segir Agnes, en hún tók við starfi
biskups af Karli Sigurbjörnssyni,
sem gegnt hafði því embætti frá
árinu 1997. Agnes tekur við em-
bætti biskups á tímum mikils nið-
urskurðar hjá kirkjunni og óhætt
er að segja að hún hafi þurft að
taka ýmsar erfiðar ákvarðanir það
sem af er hennar biskupstíð,
þ.m.t. sameiningu prestakalla.
Verkefni biskups á nýju ári eru
einnig mörg og fjölbreytt.
„Tíminn líður ansi hratt þessa
daganna. Verkefnin eru mörg og
oft ólík, t.d. viðtöl við fólk með
ólík erindi, prédikanir í kirkjum,
erindi á fundum, ákvarðanatökur
sem vinnast þurfa fljót, tölvu-
póstar og samskipti við kirkj-
unnar fólk og fjölmiðla,“ segir
hún, en stefnumótandi ákvarðanir
og lausnir mála eru mikilvægur
þáttur í starfi biskups.
En hvernig skyldu vistaskiptin
til höfuðborgarinnar hafa farið í
nýja biskupinn?
„Ég hef átt lögheimili á Vest-
fjörðum í um 40 ár ævi minnar.
Fyrst bjó ég á Ísafirði í 23 ár og
svo í Bolungarvík í 18 ár. Það
verður að segjast eins og er að ég
finn að lífstakturinn er allt annar
í höfuðborginni en fyrir vestan,“
segir Agnes og bætir því við að
venjur hins daglega lífs séu öðru-
vísi fyrir sunnan. „Að sumu leyti
er lífið rólegra fyrir vestan og að
öðru leyti ekki. Ég fer sjaldan
inn á vefsíður eins og vedur.is,
belgingur.is eða vegagerdin.is
eins og ég gerði svo oft fyrir
vestan. En sannast sagna hefur
mér þótt erfitt að flytja sjálfa mig
suður af heilum huga. Hugur
minn er enn fyrir vestan og hugs-
unarhátturinn í takt við það.“
Agnes telur að sú reynsla sem
hún öðlaðist sem prestur í litlju
sjávarplássi úti á landi, nýtist
henni til góða í starfi hennar sem
biskup. „Tvímælalaust. Sú mikla
nánd sem skapast á milli prests
og safnaðar er bæði lærdómsrík
og þroskandi. Að deila kjörum
með sóknarbörnum mínum er
reynsla sem ég flyt með mér og
úfæri á þjóðina alla. Sú reynsla
sem ég fékk sem prófastur Vest-
firðinga nýtist mér einnig vel í
starfi sem biskups,“ segir Agnes.
Agnes ítrekar þakklæti sitt fyrir
útnefninguna við Vestfirðinga.
„Hin mikla nánd við náttúruna
sem við búum við og ölumst upp
við fyrir vestan mótar og þroskar.
Ég bið þess að Guðs blessun hvíli
yfir Vestfirðingum og Vestfjörð-
um,“ segir Agnes M. Sigurðar-
dóttir, biskup Íslands og Vestfirð-
ingur ársins 2012.
Agnes fæddist á Ísafirði 19.
október 1954. Faðir hennar var
Sigurður Kristjánsson (d. 1980)
sóknarprestur á Ísafirði og pró-
fastur Ísafjarðarprófastsdæmis.
Móðir Agnesar er Margrét Haga-
línsdóttir ljósmóðir. Agnes var
gift Hannesi Baldurssyni tónlist-
armanni og eiga þau saman þrjú
börn. Agnes lauk kandídatsprófi
í guðfræði frá Háskóla Íslands
árið 1981 og vígðist til prests-
þjónustu sama ár. Hún þjónaði
sem sóknarprestur í Hvanneyrar-
prestakalli 1986-1994 en hefur
síðan þjónað í Bolungarvík. Hún
varð prófastur Ísafjarðarprófasts-
dæmis árið 1999 og hefur verið
prófastur Vestfjarðaprófasts-
dæmis frá 2005.
– gudmundur@bb.is
Ljósm: Spessi.
„Hugurinn er
enn fyrir vestan“