Bæjarins besta - 10.01.2013, Síða 15
FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013 15
Áttræð
Fríða Ólafsdóttir, Stakka-
nesi 4 á Ísafirði, verður áttræð
á morgun, 11. janúar. Fríða af-
þakkar afmælisgjafir. Hún er
stödd í snjóhúsi - enginn veg-
vísir.
„Fyrst og fremst er þetta gríð-
arlega mikil fjölgun farþega en
einnig eru fleiri stór skip að
koma,“ segir Guðmundur M.
Kristjánsson hafnarstjóri Ísa-
fjarðarhafna. Ísafjarðarbær hefur
nú gefið út lista yfir þau skemmti-
ferðarskip sem munu leggja leið
sína til Ísafjarðar næsta sumar,
en skipunum fjölgar um sex og
fara úr 32 í 38. Að sögn hafnar-
stjóra mun þetta skila sér í aukn-
um tekjum fyrir Ísafjarðarbæ.
Helsta breytingin frá síðasta
ári tvíþætt. Talið er að yfir 40
þúsund farþegar muni stíga á land
næsta sumar á Ísafirði, en þeir
voru rúmlega 30 þúsund síðasta
sumar. Einnig eru skipin stærri
og þyngri, sem felur í sér auknar
tekjur af hafnargjöldum. Samn-
ingar náðust einnig við eitt stær-
sta skipafyrirtæki í Evrópu, Aida
Crusies, en skipafélagið á þrjú
skemmtiferðaskip sem koma til
Ísafjarðar í sumar.
„Tekjurnar munu aukast veru-
lega. Tekjur hafnarinnar markast
helst af stærð skipanna og skipa-
félögin eru rukkuð eftir stærð
þeirra. Á milli ára, 2012 og 2013
förum við rúmlega milljón tonn-
um í heildarstærð skipa yfir í
eina milljón og 400 þúsund tonn,“
segir Guðmundur.
Tekjur hafnarsjóðs af skemmti-
ferðaskipum af síðasta sumri
námu 32 milljónum króna, sem
gerir um eina milljón króna á
hvert skip. Guðmundur telur þó
að tekjurnar nái yfir 40 milljónir
á næsta ári, þar sem skipin eru
stærri.
– gudmundur@bb.is
Yfir 40 þúsund farþegar væntan-
legir til Ísafjarðar næsta sumar
Skemmtiferðaskipið Costa Pacifica við minni Skutulsfjarðar í sumar. Áætlað er að skipið sæki Skutulsfjörðinn aftur heim næsta sumar.