Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.01.2013, Side 16

Bæjarins besta - 10.01.2013, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013 Lætur af störfum eftir hálfa öld sem verslun- armaður Þeir eru ekki margir Ísfirð- ingarnir sem kannast ekki við Finn Magnússon, eða Finn í Bókhlöðunni, eins og hann er gjarnan kallaður. Finnur er án efa einn reyndasti versl- unarmaður landsins en hann hefur starfað við verslun og þjónustu frá árinu 1962. Finn- ur hefur starfað í bókabúðinni á Ísafirði, sem nú heitir Penn- inn-Eymundsson og hét áður Bókaverslun Jónasar Tómas- sonar, frá árinu 1995. Hann lætur nú af störfum og snýr sér að öðrum verkefnum þrátt fyrir að vera einungis 64 ára gamall. Finnur settist niður með blaðamanni Bæjarins besta og ræddu þeir um lífs- og starfsferil Finns, golfið og Tæland. Finnur er fæddur á Ísafirði árið 1948 og er sannkallaður Eyrarpúki. „Ég er fæddur í húsi sem ekki stendur lengur en þar er gamla Norður- tangahúsið nú. Þaðan fluttu foreldrar mínir í hús í Skipa- götu og þaðan í Hafnarstræti þar sem nú stendur Stjórn- sýsluhúsið. Einnig bjó ég í Aðalstræti 24, við hliðina á grunnskólanum, og það hús brann,“ segir Finnur og skellir upp úr við þá tilhugsun að öll hús bernskuáranna séu horf- in. „Það eru í raun engin merki um að ég hafi búið hérna sem barn,“ segir Finnur, en nú býr hann Sundstræti. „Mér líður best á Eyrinni enda hef ég aldrei verið skíða- maður. Þegar maður ólst upp þá fóru bara efribæjarpúkar á skíði enda stutt fyrir þá að fara á skíði upp í Stórurð,“ segir Finnur, en þar lá bæjar- brekkan. Finnur hóf feril sinn sem verslunarmaður á Ísafirði árið 1962. Finnur hefur unnið í bóka- búinni frá árinu 1995 en hann hefur verslunarmaður síðan árið 1962. „Ég hóf þá feril minn sem verslunarmaður í Björnsbúð á Ísafirði. Í vor sem leið átti ég 50 ára afmæli sem verslunarmaður,“ segir Jónas, en hann var einungis 14 ára gamall þegar hann byrjaði að vinna. Að loknu grunnskólaprófi hóf hann að vinna fullt starf sem verslun- armaður í verslun Jóns Ö. Bárðarsonar. Eftir það lá leiðin til Keflavík- ur þar sem Finnur starfaði í Kaupfélagi Suðurnesja. Árið 1973 flutti hann til Reykjavíkur og hóf störf í Hagabúðinni á Hjarðarhaga. Tveimur árum síðar stofnaði hann sína eigin kjörbúð. „Hún hét Finnsbúð og var á horninu á Bergstaða- stæti og Baldursgötu. Þá búð rak ég til ársins 1981 en seldi hana og keypti húsgagna- verslunina Hreiðrið í Kópa- vogi og fór að selja hús- gögn,“ segir Finnur og hefur greinilega marga fjöruna sopið í sínum verslunarrekstri. „Þetta var vissulega nýtt fyrir mér og mikil breyting, en ég rak þessa verslun frá 1981 til 1990,“ segir Finnur, sem þá vatt kvæði sínu í kross einu sinni enn og keypti billj- ardsstofu í Faxafeni sem hann rak til ársins 1993. „Á þessum árum var mikill upp- gangur í bæði billjard og snóker og sat ég m.a. í stjórn Billjard- og Snókersambands Íslands á þessum árum. Við fengum til okkar marga þekkta erlenda spilara og þetta var skemmtilegt,“ segir Finnur. Finnur hafði þó ekki lokið afskiptum sínum af verslunar- rekstri því árið 1993 réðist hann sem útibússtjóri Kaupfé- lags Stöðfirðinga á Breiðdals- vík, og starfaði þar til ársins 1995, eða þar til hann fluttist aftur til Ísafjarðar. „Þetta var ágætur tími á Breiðdalsvík en mikil vinna. Þetta var á þeim tíma sem við vorum að innleiða tölvurnar í búðar- reksturinn og þurfti að huga að mörgu,“ segir Finnur. Hann flutti þó aftur til Ísafjarð- ar frá Breiðdalsvík með það í huga að staldra einungis stutt við. „Ég ætlaði aldrei að vera lengi. Faðir minn var orðinn háaldraður og var það fyrst og fremst ástæðan fyrir því að ég vildi koma heim. Einnig var atvinnuástandið í Reykja- vík ekki gott og ég taldi meiri möguleika á því að fá vinnu hér þótt það væri bara til skamms tíma. Ég frétti svo af því að Jónas væri að leita að starfskrafti og sló til.“ Árin urðu þó sautján talsins í bókabúðinni og segist Finnur alltaf hafa haft nóg að gera. „Upphaflega var ég í ljósmyndavörudeildinni og tók á móti filmum. Yfir sum- artímann tókum við stundum á móti yfir 100 filmum á dag sem er meira en framköllun- arþjónustur gera á ársgrund- Guðrún Svava Guðmundsdóttir, verslunarstjóri Pennans Eymundsson færir Finni gjöf við starfslokin.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.