Bæjarins besta - 10.01.2013, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013
Dóra – Hönnuður
Anna Bína - klæðskeri
Saumanámskeið í Klæðakoti
Anna Jakobína Hinriks-
dóttir og Halldóra og Hall-
dóra B. Norðdahl eigendur
Klæðakots halda skemmti-
leg námskeið fyrir unga sem
aldna.
Hvernig námskeið eruð
þið að halda?
Við höldum námskeið yfir-
leitt í leggingsgerð, einfaldri
peysu og kjólagerð. Þetta er
það eina sem við höfum tekið
fyrir hingað til, með frábær-
um móttökum. Við komum
bara fjórum að í einu svo
það er fámennt en góð-
mennt, alltaf rosalega skemmti-
legt, myndast góð stemming
hérna.
Hvert er markmið nám-
skeiðanna
Markmið námskeiðanna er
að efla sjálfstraust viðkom-
andi og sýna þeim að þetta
er ekkert mál. Sýna þeim að
það er gaman og auðvelt
að sauma.
Úr hvernig efnum er verið
að vinna?
Það er mikið saumað út úr
jersey efni sem er teygjanlegt
efni svo saumaskapurinn er
mikið auðveldari, þá þarf
enga rennilása og svona,
það er voða mikið inn í dag.
Ekkert vesen. Einnig notum
við satin efni og chiffon.
Eruð þið með aðstöðuna í
Klæðakoti?
Já, hér er góð aðstaða.
Við erum með saumavélar,
bæði heimilisvélar og over-
lock vélar, sem eru vélar sem
við leyfum þeim sem eiga
svoleiðis að nota hér. Því við
viljum ekki að fólk læri á vél
hér og komi svo heim til sín
og geti ekki gert það sama
og það lærði hér. Anna Bína
er einnig með verkstæði hér,
hún sér um viðgerðir og
breytingar á fötum, ásamt
nýsaum og saum á glugga-
tjöldum. Hún sér einnig um
að sauma þjóðbúninga.
En hvernig er það ef fólk
vill læra betur á sína sauma-
vél?
Við bjóðum fólki líka að
koma með sína vél. Við höf-
um líka verið að gera við
vélar sem fólk hefur haldið
að væru bilaðar. Dóra er al-
veg sérfræðingur í því að
laga þær. Það eru allir að
kvarta yfir því að vélarnar
séu bilaðar, svo tekur fimm
mínútur að laga þær.
Hvað kostar svo að sauma
sér flík, tekur það langan
tíma?
Það kostar sirka þrjú- til sex
þúsund í einfalda flík. Legg-
ings tekur ekki nema sirka
hálfan til einn tíma fyrir þá
sem eru vanir. Peysan kann-
ski tvo tíma og kjóllin þrjá til
fjóra tíma.
Hvernig ber fólk sig að ef
það vill koma á námskeið?
Við erum með gjafabréf á
námskeið sem er sniðugt í
jólapakkann. Einnig erum við
með skráningarkerfi fyrir
námskeiðið inni á heimasíð-
unni www. klaedakot.weekly.com.