Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Blaðsíða 25
MisMunandi
DV Helgarblað
Atkins-kúrinn
Hvenær vinsæll? Dr. Robert Atkins stofnaði fyrirtæki
sitt í kringum Atkins-megrunarkúrinn árið 1989. Það
varð gjaldþrota árið 2005 tveimur árum eftir dauða
hans og var stofnað aftur árið 2006. Vinsældum kúrs-
ins hefur hrakað verulega eftir neikvæða gagnrýni og
rannsóknir.
Hvernig virkar hann? Í grófum dráttum snýst kúrinn
um að minnka kolvetnainntöku þannig að líkam-
inn fái orku úr niðurbroti líkamsfitu frekar en að fá
orku frá kolvetnum. Þetta á að gerast þó að mataræð-
ið samanstandi aðallega af fitu. Þannig á kolvetna-
brennsla að skiptast yfir í fitubrennslu og bygg-
ist kúrinn á miklu magni af próteinum, fitu og litlu
magni af kolvetnum.
Kostir: Þú mátt drekka áfengi og borða hnetur
á kúrnum.
Gallar: Kúrinn getur haft mjög neikvæð áhrif
á heilsu fólks. Við mikla neyslu á
rauðu kjöti og öðrum kjötvörum er líklegra að minna
verði um neyslu á trefjum og eykur það líkur á ristil-
krabbameini. Aukin neysla á mettuðum fitusýrum og
kólesteróli eykur líkurnar á hjarta- og æðasjúkdóm-
um. Hátt hlutfall af próteini í mataræði getur haft
neikvæð áhrif á virkni nýrna og líkurnar á því að kalk
tapist úr beinum aukast. Aðrir fylgikvillar Atkins-
kúrsins eru hægðatregða, niðurgangur, einbeitingar-
leysi, andfýla og skortur á næringarefnum.
Megrunarkúrar
scArsdAle-
kúrinn
Hvenær vinsæll? Herman
Tarnower læknir gaf út
bókina The Complete
Scarsdale Medical Diet
árið 1979. Bókin sló í
gegn árið 1980, sama ár
og Tarnower var myrtur
af unnustu sinni.
Hvernig virkar hann? Kúrinn
byggist á inntöku lítils magns
kolvetna og kaloría. Nákvæmum mat-
seðli þarf að fylgja fyrstu 14 dagana en
svo slaknar á kröfunum. Hálft greip-
aldin hvern morgun á að veita þau
ensími sem eru nauðsynleg til að
brenna þeim 700 kaloríum sem
maður á að brenna á dag á kúrn-
um. Gervisykur er notaður í stað
alvörusykurs.
Kostir: Þú grennist alveg örugglega.
Gallar: Mikið og fljótt þyngdartap á
kúrnum má hins vegar rekja til vatnstaps
líkamans og gagnrýnisraddir segja að kúr-
inn sé of yfirdrifinn til að vera hollur.
HerbAlife
Hvenær vinsæll? Herbalife er eitt af þekktustu
grenningarfæðubótaefnum heims og var það
Mark Hughes sem byrjaði að selja vöruna árið
1980. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Los Ang-
eles, en um 3.500 fyrirtæki eru um allan heim.
Hvernig virkar hann? Þau næringarefni sem
líkaminn þarfnast eru sett saman í pillur og
duft. Kúrinn gengur út á að innbyrða orku-
drykki í stað máltíðar. Einnig selur Herbalife
vítamín, steinefni og aloe vera sem taka á
samfara orkudrykknum.
Kostir: Ef þú hefur ekki tíma fyrir venjulegan mat
getur verið handhægt að skella í sig einum drykk og
nokkrum pillum.
Gallar: Ekki er æskilegt ef fæðubótarefni komi algjör-
lega í staðinn fyrir næringarefni sem líkaminn þarfn-
ast, til dæmis í ávöxtum og grænmeti sem eru góð
vörn við krabbameini.
Þekkt er þegar inntaka fæðubótarefna hefur verið
langvarandi og hún stöðvast skyndilega getur ein-
staklingurinn þyngst á ný.
Komin í Kilju
„Fantaskemmtileg“
- Sigurður G. Tómasson,
Útvarp Saga
„Sjaldgæf
nautn að lesa
þessa bók“
- Þráinn Bertelsson,
Fréttablaðið
„Við eigum öll að
lesa þessa bók.“
- Guðfríður Lilja Grétarsdóttir,
varaþingmaður
Ferðamálaskóli Íslands • www.menntun.is • Sími 567 1466
Meðal námsefnis:
• Mannleg samskipti.
• Helstu áfangastaðir
erlendis í máli og
myndum.
• Mismunandi
trúarbrögð.
• Saga landsins,
menning og listir.
• Frumbyggjar og saga
staðarins.
• Þjóðlegir siðir og hefðir.
• Leiðsögutækni og ræðumennska.
Ferðalandafræði: Evrópa, Asía, Africa, Ameríka og Eyjaálfan.
Námið fer fram í formi fyrirlestra og reynslu fararstjóra
í leiðsögn á erlendri grund.
Leiðbeinendur eru: Kjartan Trausti Sigurðsson, Pétur Björnsson, Jóhanna
Kristjónsdóttir, Höskuldur Frímannsson, Sigurður A. Magnússon, Magnús
Björnsson, Pétur Óli Pétursson, Bjarni Randver Sigurvinsson, Bjarni Karlsson.
Fararstjórn erlendis