Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Blaðsíða 47
DV Helgarblað föstudagur 13. júní 2008 47
bak.“ Í dag á Fjölnir og rekur vefsíð-
una www.hestafrettir.is en síðan er
stærsti fréttamiðill hestamanna hér
á landi í dag. „Ég hef mjög gaman af
þessari vinnu enda er ég vanur að
velja mér störf sem mér líður vel í.
Ég er með gott samstarfsfólk sem
hjálpar mér að láta hlutina ganga
upp. Vefurinn er ekki allt sem Fjöln-
ir hefst við því einnig stundar hann
hrossarækt og tamningar. „Frá því
að ég byrjaði í hestunum aftur er ég
búinn að fara í gegnum utanskóla-
nám félags tamningamanna FT
ásamt að vera orðinn gæðingadóm-
ari og svo er ég auðvitað að fara að
vinna í því að verða Íslandsmeist-
ari í hestaíþróttinni,“ segir Fjölnir og
skellir upp úr.
Fjölnir verður pabbi
Fyrir rúmlega tveimur árum er
óhætt að segja að líf Fjölnis hafi
breyst til frambúðar. Hann eignaðist
son ásamt þáverandi sambýliskonu
sinnar, Mailinn Solér. „Það er ekk-
ert í lífinu sem toppar þessa tilfinn-
ingu,“ segir Fjölnir um fæðingu son-
ar síns. Sonurinn fékk nafnið Oliver
Erik Solér Fjölnisson og er það í höf-
uðið á besta vini Fjölnis til margra
ára. „Ég ákvað að tryggja syni mín-
um góðar afmælis- og jólagjafir með
því að skíra í höfuðið á vini mín-
um,“ segir Fjölnir í gamansömum
tón. Barnsmóðir Fjölnis er norsk en
þau eru skilin í dag. Lengi vel bjuggu
þau saman í Hveragerði en eins og
gengur tókst þeim ekki að láta saO-
bandið ganga upp. „Við erum mjög
ólík og á endanum skildi leiðir þrátt
fyrir að hafa reynt allt til að bjarga
sambandinu. „Hún fluttist til Noregs
með Oliver og þar er hans heimili í
dag. Oliver kemur þó öðru hvoru til
Íslands og eyðir tíma með mér hérna
í Hveragerði.“ Þeim feðgunum líður
vel í sveitinni og njóta þess að fara
saman á hestbak og í sund en að
sögn Fjölnis veit Oliver fátt skemmti-
legra en að fara í sund.
Berst fyrir rétti sínum
Fjölnir segir það enga óskastöðu
að vera fráskilinn með barn, sér-
staklega þegar það býr í öðru landi.
„Þetta er búið að vera mjög erfitt en
við erum að reyna að vinna úr mál-
unum. Ég hef hins vegar ekki verið
alveg sáttur við hversu lítinn tíma ég
hef fengið með litla manninum, það
er vissulega erfiðara þar sem hann er
í Noregi og hef ég því miður þurft að
leyta réttar míns. Ósk mín er sú að
ég fái sameiginlegt forræði, þá er ég
ekki bara að hugsa um tímann með
honum heldur einnig lagalegan rétt
minn. Ég horfði upp á bróður minn
deyja frá litlu barni og svona hluti vil
ég bara hafa á hreinu. Tökum sem
dæmi að ef barnsmóðir mín félli frá
ætti sambýlismaður hennar meiri
rétt en ég sjálfur og ég gæti endað í
forræðisdeilu við hann. Mig hryllir
við þeirri tilhugsun.“ Það er auðheyrt
að Oliver á hug hans allan og segist
Fjölnir einnig vera að skoða þann
möguleika að flytjast til Skandinavíu
með rekstur sinn. „Með því myndi ég
slá tvær flugur í einu höggi, vera nær
syni mínum og vinna við það sem
mér þykir skemmtilegt. Oliver skiptir
mig einfaldlega öllu máli.
Skotinn á ný
Þrátt fyrir skilnaðinn við norsku
barnsmóðurina er Fjölnir ekki einn
í sveitinni. Hann kynntist nýlega
hinni sænsku Johanna Göransson.
„Við kynntumst í gegnum hestana og
erum búin að vera saman í nokkra
mánuði. Hún er reyndar svolítið
yngri en ég , en það hefur engin áhrif
á okkur,“ segir Fjölnir en sextán ára
aldursmunur er á parinu. Er það til-
viljun ein að Johanna sé önnur konan
í lífi Fjölnis á stuttum tíma frá Skand-
inavíu eða eru íslenskar konur ekki
eins spennandi og þær erlendu að
hans mati. „Við skulum orða það sem
svo að íslenskar konur eru ekki nógu
miklir heimsborgarar fyrir mig,“ segir
Fjölnir og glottir út í annað.
Myndi breyta mörgu en sé ekki
eftir neinu
Fjölnir hefur gengið í gegn-
um margt í lífinu, bæði gott og
slæmt. Þegar hann er beðinn um
að staldra við, líta yfir farinn veg
og velta því fyrir sér hvort hann
myndi fara öðru- vísi að hlutunum
í dag segir hann svo vera. „Auð-
vitað er fullt sem ég myndi vilja
gera öðruvísi, kannski þá helst í
viðskiptum. Ekki misskilja mig og
halda að ég sjái eftir því sem ég
hef gert í lífinu. Það er ekki svo. Ég
hef lært af mistökunum og tel mig
heppinn að öllu leyti. Ég hugsa að
fáir hafi lifað jafn skemmtilegu lífi
og ég sjálfur,“ segir þessi lífsglaði
maður að lokum.
„Ósk mín er sú að ég fái sameiginlegt forræði,
þá er ég ekki bara að hugsa um tímann með
honum heldur einnig lagalegan rétt minn.
ég horfði upp á brÓður minn deyja frá litlu
barni og svona hluti vil ég bara hafa á hreinu.
tökum sem dæmi að ef barnsmÓðir mín félli
frá ætti sambýlismaður hennar meiri rétt en
ég sjálfur og ég gæti endað í forræðisdeilu
við hann. mig hryllir við þeirri tilhugsun.“
Fínir Feðgar
fjölnir og sonur hans
Oliver á góðum degi.
SaMan í Sveitinni
fjölnir og johanna göransson
kynntust í gegnum hestana
og búa nú saman í Hveragerði.
Við getum bætt við okkur verkefnum.
Bjóðum upp á alhliða þjónustu í byggingariðnaði nýsmíði
og viðhaldsverkefni. Má þar nefna uppslátt, uppsteypu
húsa og annara mannvirkja, endurnýjun þaka, viðgerðir
utanhúss og klæðningar, endurnýjun glugga og hurða,
smíði innveggja, uppsetning lofta, smíði sólpalla og fl.
Gerum föst verðtilboð.
Áratuga reynsla meistara og fagmanna.
Sími: Gunnar Þór 891 6591 og 891 6590
Fyrirspurnir má einnig senda á
netfangið alhlida@yahoo.com
Húseigendur –
Húsbyggjendur