Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2008, Page 7
Starfsmenn Ölgerðar Egils Skalla-
grímssonar fengu ansi óvænta
sendingu fyrir helgi. Þá barst þeim
hálfur kassi af óopnuðu Spur ásamt
gömlum flöskum af Egils Appelsíni
í gleri. Spur Cola var vinsæll drykk-
ur fyrir nokkrum áratugum en hef-
ur í seinni tíð orðið safngripur.
Fæstir luma á óopnuðum flöskum
af drykknum og kom það því mjög
á óvart þegar hálfur kassi af honum
barst Ölgerðinni.
Katrín Eva Björgvinsdóttir, sem
hefur umsjón með söfnun gamalla
muna hjá Ölgerðinni, segir að kass-
inn hafi verið hluti af dánarbúi og
þeir sem tóku við því hafi sent Öl-
gerðinni hann. Ýmislegt fleira hef-
ur ratað til Ölgerðarinnar á síðustu
árum. „Við erum með þetta sem var
sent frá dánarbúinu og svo erum
við með nokkra kassa fulla af göml-
um munum í geymslu,“ segir Katr-
ín.
Byggir upp safn
Ölgerðin hefur safnað göml-
um munum úr sögu sinni. Meðal
þess sem hefur safnast eru flöskur,
kassar og límmiðar sem koma frá
drykkjum sem Ölgerðin framleiddi
í eina tíð en er nú hætt að framleiða.
Flöskur undan Spur Cola og Polar
Beer, gamlar maltflöskur og Ísvatn
eru allt hluti af munum sem ratað
hafa í safnið. Til stendur að koma
upp safni með þessum hlutum í
nýju byggingu Ölgerðarinnar sem
verður opnuð í byrjun næsta árs. Á
safninu verða munir frá 95 ára sögu
Ölgerðar Egils Skallagrímssonar.
Á þeim tíma hefur Ölgerðin boð-
ið upp á margvíslega drykki, sumir
eru enn í framleiðslu en aðrir heyra
sögunni til.“
Fólk er hjálpsamt
„Mér finnst alveg ótrúlegt hvað
fólk leggur mikla hjálp í verkefn-
ið og hvað það er áhugasamt, það
sendir okkur heilu einkasöfnin sín,“
segir Katrín. „Þetta er lítill hluti af
safninu enn sem komið er og nú í
vikunni er að koma stórt einkasafn
frá Keflavík, sem verður gaman að
fá. Svo sendir fólk alls staðar að af
landinu okkur muni.“ Hún kveðst
þó ekki geta sagt til um hver sé
elsti munurinn sem Ölgerðin hefur
fengið með þessum hætti. Það ætti
þó að liggja fyrir þegar safnið verð-
ur opnað á næsta ári.
Ölgerðin þiggur alla muni sem
tengjast henni í gegnum þessi 95
ár. Katrín biður þá sem eru til í að
leggja Ölgerðinni lið um að hafa
samband í gegnum netfangið gaml-
irmunir@olgerdin.is.
DV Fréttir þriðjudagur 24. júní 2008 7
Fengu Spur Cola
úr dánarbúi
óli valur pétursson
blaðamaður skrifar olivalur@dv.is
Talsvert safn gamalla muna byggist nú upp hjá Ölgerð Egils Skallagrímssonar. Á dögunum bættist hálf-
ur kassi af óopnuðum Spur-flöskum í safnið en slíkar flöskur eru orðnar afar sjaldgæfar.
„Mér finnst alveg ótrúlegt
hvað fólk leggur mikla hjálp
í verkefnið og hvað það er
áhugasamt, það sendir okk-
ur heilu einkasöfnin sín.“
sjaldséð flaska
Spur var áður algeng
sjón í verslunum
landsins en finnst nú
aðeins hjá söfnurum.
Gömlu flöskurnar Margir munir
sem tengjast sögu Ölgerðarinnar
verða á safninu sem opnað verður
á næsta ári. þar á meðal þessar
gömlu Spur-flöskur.
sjaldséð flaska Spur var áður algeng sjón í verslunum landsins en finnst nú
aðeins hjá söfnurum.