Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Side 21
Dagurinn í dag, föstudagurinn 27.
júni, er 178undi dagur ársins og rík-
isstjórnin okkar er svo sem ekkert að
bylta sér í bólinu vegna hins fárveika
efnahagsástands á heimilum lands-
manna. Enda er hún í kærkomnu
fríi og þar sem hún dólar sér heldur
hún kannski að á einum þeirra 187
daga sem eftir lifa ársins hljóti henni
að detta í hug áhrifamikil töfralausn
sem eyðir vandarhöggunum sem
dynja á botni hins almenna manns.
Auðvitað vitum við öll að ríkis-
stjórnin sem við kusum vegna þess
að við trúðum á loforð flokkanna sem
skipa hana, dinglar ráðalaus með
fallandi krónu og veit ekkert hvað
hún á að taka til bragðs. En við hljót-
um að vona að hún hysji upp um sig
buxurnar, dusti rykið af baráttuand-
anum og hætti að flýja undan þeim
herjum sem að henni sækja.
Við höfum sýnt ríkisstjórninni
ótrúlegt umburðarlyndi; við höfum
verið þolinmóð og þögul en nú er mál
að linni. En þar sem ljóst er að ríkis-
stjórnin sér ekki leið til að ná árangri
er ekki úr vegi að benda henni á ár-
angur Samtaka 78 síðastliðin þrjátíu
ár. Samtökin eiga einmitt þrjátíu ára
afmæli í dag, en vegna óbilandi trú-
ar þeirra á jafnrétti og réttlæti hafa
þau gjörbylt stöðnuðu hugarfari og
fordómum. Og víst er að það er mun
vandasamara verk að breyta árþús-
unda kúgun og óréttlæti en að finna
leið til að leiðrétta kjör almennings í
landi sem þrátt fyrir allt hefur yfir að
ráða fúlgum fjár; málið er að tortíma
þeirri vanahugsun að peningarnir og
lífsgæðin séu fyrir fáa og taka um leið
undir orð baráttukonunnar Emmu
Goldman, hún fæddist reyndar 27.
júní fyrir 140 árum, sem sagði ást-
ina vera afl sem bryti öll lögmál og
allar hefðir vegna þess að hún væri
frjálsasti og kraftmesti áhrifavaldur
mannlegrar tilveru.
Þetta hefur hvað eftir annað
sannað sig enda vitum við að til þess
að brjóta hlekki úreltra hugmynda
þarf ástríðu og það þarf ást og það
þarf sköpunarkraft; en kannski er
það einmitt þetta þrennt sem ríkis-
stjórnina vantar. Hún er að minnsta
kosti eitthvað svo sorglega vanmátt-
ug og þyngslaleg að hún minnir mest
á Morrann í Múmíndalnum hennar
Tove Janson, en Tove kvaddi einmitt
í dag fyrir sjö árum.
Morrinn er einmana, leiður og
vinalaus; hann er kalinn á hjarta,
frystir allt í kringum sig og allt sem
hann kemur nálægt visnar og deyr.
Lesendur Múmínálfanna finna samt
til með Morranum undir niðri, rétt
einsog við finnum til með okkar flóð-
hestalegu og ráðlausu ríkisstjórn. En
þótt við finnum til höfum við ekki
endalaust umburðarlyndi; við viljum
að hún hætti að Morrast þetta, breyti
hugsanagangi sínum, vinni fyrir þá
sem kusu hana, standi við loforð sín,
kveiki eld í kulnuðum ástríðum sín-
um og hætti að vinna fyrir hina fáu
efnuðu – við viljum ekki sjá hana í
líki Hughs Grant sem var tekinn ber-
rrassaður á felutottinu 27. júní fyrir 9
árum; við viljum enga tottara og ekk-
ert tott.
Við viljum ástríðufulla ríkis-
stjórn sem skammast sín ekki fyrir
að elska.
Sandkassinn
Um þessar mundir er undirritað-
ur háskólanemi að flytja á milli
tveggja fokdýrra
íbúða í Reykja-
vík.Í þessari
borg mennta og
æðri tilgangs er
nefnilega fýsi-
legast að búa,
hér er fólkið
töff og laust við
minnimáttar-
kennd við stóra
bróður. Einhver hlýtur skýringin
í það minnsta að vera á því hvers
vegna það er svona dýrt að búa
hér. Þriggja herbergja íbúð leigist
á litlar 130.000 krónur á tímum
verðbólgu og lánastíflu bankanna.
Ef þú átt ekki góðhjartaða frænku
sem á kjallaraíbúð í Vesturbæn-
um og fæddist hreint ekki með
silfurskeið í munni er þetta það
sem þú þarft að sætta þig við.
Par í háskólanámi sem þarf að
hafa aukaherbergi sleppur ekki
með mikið minna en þessa upp-
hæð. Fullt
námslán frá
Lánasjóði ís-
lenskra náms-
manna er
94.000 krónur
á mánuði svo
samanlagðar
tekjur parsins
eru 188.000
krónur. Það á
jú að vera full vinna að vera í há-
skólanámi. Háskólaneminn hefur
hins vegar þann möguleika að
reyna að komast á stúdentagarða,
já, eða ætti að hafa það. Það er
hins vegar jafnerfitt og að finna
íbúð á 70.000 krónur, gangi þér
vel, félagi.
íbúðamál í bland við hækkandi
matar- og bensínverð gerir það að
verkum að háskólaneminn þarf
aukatekjulind. Hann vinnur því
eins og brjálæðingur í allt sumar
og líka samfara háskólanáminu.
Þannig fá skólarnir þreyttari stúd-
enta sem eyða minni tíma og orku
í námið en ella. Það hlýtur svo
að skila minni árangri í námi og
slakara vinnu-
afli út í þjóðfé-
lagið. Ég vil að
íslenska ríkið
taki sig saman
í andlitinu og
tengi námslánin
við vísitölu, svo
lengi sem það er
hagstætt.
Lilju Guðmundsdóttur finnst hart að
vera háskólanemi
Ekkert tott, takk
DV Umræða föstudagur 27. júní 2008 21
Mannránum mótmælt Leikarar settu á svið handtöku manns til að mótmæla því hvernig bandaríska leyniþjónustan hefur rænt grunuðum
hryðjuverkamönnum og framselt þá til ríkja sem stunda pyntingar. athöfnin fyrir framan þing Evrópusambandsins var hluti af baráttudegi amnesty
International gegn hryðjuverkum. Mynd AFP
myndin
P
lús
eð
a m
ínu
s
Spurningin
„Ég hef meiri áhyggjur af sauðfé á
ísbjarnarslóðum heldur en með
tannskemmdir,“ segir gísli Einarsson,
fréttamaður á rúV og sveitamaður
mikill. flúor frá iðnaðarsvæðinu á
grundartanga veldur tannskemmd-
um hjá sauðfé.
Hefur þú áHyggjur
af sauðfé með tann-
skemmdir?
Plúsinn fær Sigurveig Sara
Björnsdóttir, starfsmaður hjá
Íshestum. Hún er orðin þreytt á
of háu bensínverði og fer því á
hesti í vinnuna.
viGdís
GríMsdóttir
rithöfundur skrifar
„Málið er að tortíma
þeirri vanahugsun að
peningarnir og lífsgæð-
in séu fyrir fáa.“
-hvað er að frétta?