Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2008, Side 12
mánudagur 30. júní 200812 Fréttir DV
Aukin umsvif TAlíbAnA
Yfirvöld Norður-Kóreu hafa nú
sprengt upp helsta tákn kjarnorku-
áætlunar sinnar; risavaxinn kæli-
turn við stærsta kjarnorkuver lands-
ins. Með þessum aðgerðum vilja
ráðamenn landsins sýna endanlega
fram á að þeim sé alvara með að
hætta við þróun kjarnorku í hvers
konar mynd.
Þessar umfangsmiklu breytingar
á stefnu yfirvalda má rekja til samn-
ingsumleitana margra helstu þjóð-
arleiðtoga heims. Kínverjar, Rússar,
Japanir, Bandaríkjamenn og Suður-
Kóreubúar hafa allir lofað að koma
Norður-Kóreu til aðstoðar um orku,
fjármagn og önnur fríðindi í sam-
skiptum við þjóðina í kjölfar stefnu-
breytinganna.
Mörgum hefur staðið stuggur af
Norður-Kóreubúum vegna ótta um
að þeir hyggist koma sér upp kjarn-
orkuvopnum. Nú eru hins vegar all-
ar horfur á að sú ógnaröld sé liðin
tíð.
Utanríkisráðherrar G8-ríkjanna
eru þó ekki of fljótir á sér að fagna,
þó ánægja ríki vissulega með að-
gerðir Norður-Kóreu. Koumura
Masahiko, utanríkisráðherra Jap-
ans, segir mikilvægt að sjá til þess
að yfirvöld standi við gefin loforð.
Hann bætir við að G8-ríkin komi til
með að halda uppi ströngu eftirliti
til að tryggja að svo verði.
Cho Seong-ryeol, sérfræðingur
við alþjóðaöryggisstofnunina í Se-
oul, telur að með því að sprengja
upp kæliturninn séu Norður-Kór-
eumenn að senda skilaboð. Þeir
vilji stíga út úr einangrun sinni og
verða þátttakendur í alþjóðasamfé-
laginu á ný.
Gagnrýnendur hafa þó bent á
að Yongbyon-orkuverið hafi fyrir
löngu verið orðið úr sér gengið og
því hefði átt að rífa það hvort sem
yfirvöld hygðust halda áfram kjarn-
orkurannsóknum eður ei.
hafsteinng@dv.is
Norður-Kóreumenn sýna vilja til að hætta kjarnorkurannsóknum:
Sprengdu upp kæliturn
Þessa dagana þurfa Talí-
banar ekki lengur að fela
sig uppi í fjöllum, þeir
vaða inn í borgina hvenær
dags sem er, keyrandi um
á pallbílum og vopnaðir
Kalishnikov-rifflum.
Fylgismaður Talíbana
Sífellt fleira fólk í norðvest-
urhluta landsins er farið að
styðja við Talíbana.
Dr. Pepper styrkir brúðkaup
Hárgreiðslukonan Kelly Gray í
Virginia Beach reyndi að safna
peningum fyrir brúðkaupinu sínu
á eBay. Hún hét því að sú sem
myndi greiða henni mestan pen-
ing fengi boðskort í veisluna henn-
ar. Kelly bjóst við því að það myndi
verða kona sem væri spennt fyrir
brúðkaupum sem myndi hreppa
verðlaunin. Það kom henni þess
vegna mikið á óvart þegar hún
sá hæsta boðið að það var ekki
áhugasöm kona heldur gos-
drykkjafyrirtækið Dr. Pepper sem
gaf henni 10.000 dollara.
Bang! Kæliturninn var
sprengdur í loft upp.