Fréttatíminn - 13.02.2015, Qupperneq 6
www.betrabak.is Leggur grunn að góðum degi
Upplifðu tilfinninguna
að svífa í þyngdarleysi
Komdu til okkar í Betra Bak og upplifðu
óviðjafnanlega hvíldartilfinningu. Hið einstaka
TEMPUR® efni í heilsudýnum og koddum aðlagast
líkama þínum og gefur þér þá tilfinningu að þér
finnst þú svífa.
Hafðu það stillanlegt og þægilegt!
Eitt mest úrval landsins af stillanlegum heilsurúmum.
25% afsláttur af öllum
TEMPUR® koddum
í febrúar
25% afsláttur af
stillanlegum rúmum
í febrúar
25% AFSLÁTTUR
af TEMPUR®
í febrúar
Alls seldi
Íbúðalánasjóður
29 eignir í
síðasta mánuði.
Tvær eignir
voru seldar í 101
Reykjavík, svo
dæmi sé tekið.
Ljósmynd/Nor-
dicPhotos/Getty
Fasteignamarkaður Íbúðalánasjóður seldi 29 eignir
Seldu íbúðir fyrir 459 milljónir í janúar
„Þetta var nú ósköp
eðlilegur mánuður.
Þetta er um það bil ein
sala á dag, þetta er oft
meira en það,“ segir
Sigurður Erlingsson,
forstjóri Íbúðalána-
sjóðs.
Íbúðalánasjóður
seldi 29 fasteignir
í nýliðnum janúar.
Söluvirði þeirra var
rétt rúmlega 459 millj-
ónir króna. Fasteign-
irnar voru um allt land,
frá 101 Reykjavík til
Langanesbyggðar. Sú
dýrasta var í Hafnar-
firði og fékk sjóðurinn
30 milljónir króna fyrir
hana. Sú ódýrasta var
á Langanesi, þrjár
milljónir króna.
Íbúðalánasjóður á nú
um 1.900 fasteignir. Í
október í fyrra voru sjö
eignasöfn sjóðsins sett
á sölu en salan í janúar
er þeim óviðkomandi.
Bindandi kauptilboð
bárust í öll eignasöfnin
en í þeim eru um 400
íbúðir. Fasteignamat
þeirra er um 6,5 millj-
arðar króna.
Sigurður segir að
söluferli eignasafn-
anna gangi samkvæmt
áætlun. „Þetta er
langt komið og sumt
er alveg á lokametr-
unum. Það er heilmikil
umsýsla og frágangur
við þetta,“ segir hann.
-hdm
á rið 2012 voru útgefin hér á landi 170 hljóðrit (geisladiskar og hljóm-plötur) með tónlist. Undanfarin ár
hefur útgefnum hljóðritum með flutningi
tónlistar fækkað talsvert frá því að fjöldi
útgáfa var hæstur árið 2006, eða 292. Með
tilkomu geisladiskanna undir lok níunda
áratugar síðustu aldar hljóp verulegur
vöxtur í útgáfu hljóðrita. Á árinu 1995 voru
ríflega tvöfalt fleiri hljóðrit gefin út hér á
landi miðað við árið 1990. Eftir nær sam-
fellda aukningu í fjölda útgefinna titla frá
1990 og fram til ársins 2006, hefur útgáfan
dregist nær samfellt saman, eða um 42 af
hundraði.
„Þetta hefur vissulega verið stöðugt
áhyggjuefni í nokkur ár,“ segir Eiður
Arnarsson, formaður félags hljómplötuút-
gefenda. „Hins vegar hefur þetta komið
mest niður á sölu erlendra titla, á meðan
íslenskir titlar hafi verið að sækja í sig
veðrið,“ segir Eiður. „Árin 2012 og 2013
voru t.d. á pari við árið 2006, sem var met-
söluár, þó síðasta ár hafi kannski ekki verið
merkilegt.“
Heildar söluverðmæti hljóðrita og staf-
rænna skráa frá útgefendum nam árið 2013
466 milljónum króna, þar af nam sala hljóð-
rita (diska og platna) hátt í 407 milljónum
á móti um 60 milljónum af sölu tónlistar í
niðurhali og streymi. „Streymið er komið
til að vera tel ég, og það þýðir lítið að reyna
að vinna gegn því,“ segir Eiður. „Neyslan
hefur færst til og það er eðlilegt að þetta
minnki. Spotify er með rúmlega 16 þúsund
virka notendur á Íslandi og áskriftartekj-
urnar af því eru um 300 milljónir. Svo það
er auðvelt að sjá hvert peningarnir eru að
fara,“ segir Eiður.
„Stafræn útgáfa stendur þó ekki undir
sölutölum þar sem fjármögnun á hljóm-
plötuframleiðslu er orðin afar erfið. Ég er
á því að ef þetta á ekki að fjara út þá eigi
stjórnvöld að grípa inn í,“ segir Eiður. „Í
hljómplötuútgáfu eru gríðarleg menn-
ingarleg verðmæti sem hverfa ef ekkert er
að gert. Á móti gætu íslenskir listamenn
nýtt sér stafrænu miðlana betur og þannig
fundið jafnvægi þarna á milli, sem er eitt-
hvað sem ung kynslóð tónlistarfólks er
alltaf að gera meira og meira af,“ segir
Eiður Arnarsson, formaður félags hljóm-
plötuútgefanda.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
tónlist útgáFa og dreiFing á geisladiskum Í hættu
Stjórnvöld grípi inn í
útgáfu á hljómplötum
Hagstofa Íslands birti í gær, fimmtudag, úttekt á útgáfu hljóðrita á Íslandi allt frá árinu 1979. Þar
kemur fram að á undanförnum 10 árum hefur sala á geisladiskum minnkað mikið og ekki sér fyrir
endann á þróuninni. Frá því um miðjan síðasta áratug hefur útgáfa á hverja 1000 íbúa lækkað úr
0,9 í 0,5 hljóðrit. Eiður Arnarsson, formaður félags hljómplötuútgefenda, segir þetta ekki nýjar
fréttir og að einhverjar breytingar þurfi að gera. Aftur á móti segir hann einnig þetta vera part af
þróuninni og ekki gangi að berja hausnum í steininn.
Mjög hefur dregið úr sölu geisladiska á síðari árum og nýliðið ár var ekki merkilegt í þeim efnum. Tiltölulega stutt er þó síðan
Mugison metseldi plötu sína, Haglél.
Streymið
er komið
til að vera
tel ég,
og það
þýðir lítið
að reyna
að vinna
gegn því.
6 fréttir Helgin 13.-15. febrúar 2015