Fréttatíminn - 13.02.2015, Qupperneq 18
www.rekstrarland.is Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olís og er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf.
Samsettir fjáröflunarpakkar eða sérsniðnir eftir óskum hópsins
Öflug fjáröflun
fyrir hópinn
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
43
14
1
Hafðu samband við sérfræðinga okkar í Rekstrarlandi
í síma 515 1100 eða næsta útibú Olís og leitið tilboða.
Haukur trúverðugur og Fjaðrir óvæntur smellur
Næst voru sérfræðingarnir spurðir um uppáhaldslag í keppninni í ár. Svörin voru
eins misjöfn og þau voru mörg.
„Milljón augnablik. Líklega það besta sem
Kalli Olgeirs hefur gert. Þegar Haukur
syngur eitthvað þá trúir maður honum
líka bara. Mann langar bara til að vera
ástfanginn eða vera aðalleikarinn í karl-
kynsútgáfunni af Frozen.“
„Fjaðrir. Ekki kannski af því að mér finnist
það endilega neitt ódauðlegt listaverk, en
það er svo mikið antí-júró að mig langar
að knúsa það. Kom eins óvænt og reggí-
hljómsveit á Ku-Kux Klan árshátíð, og ég er
hrifinn af krökkunum.“
„Piltur og stúlka, bara út af Birni Jörundi.“
Niðurstaða: Mat dómnefndar var mjög
fjölbreytt. Flestir eru þó með Friðrik Dór,
Maríu Ólafs og Björn Jörund í uppáhaldi.
Kynnarnir
í gylltum
búningum
Kynnarnir þrír voru í
svörtum búningum á
fyrra undanúrslita-
kvöldinu en rauðum á því
síðara. Upp á hverju taka
þessar hressu stelpur á
úrslitakvöldinu?
„Það verður Fram-
sóknargrænn litur. Engin
spurning.“
„Kynnarnir verða nú flottar
í hverju sem er, en mitt gisk
er gylltur litur fyrir úrslitin.“
„Það er fátt sem mun
koma í veg fyrir dúndrandi
gyllingu á klæðum kynna
á úrslitakvöldi. Allir aðrir
litir eru taktlausir í þeirri
stígandi sem hefur einkennt
klæðaburð þeirra. Ef ekki
gyllt þá væri afskaplega
huggulegt að sjá þær marra
í túrkislituðum kvöldfatnaði.
Túrkisinn er nefnilega koma
nefnilega sterkur inn.“
Niðurstaða dómnefndar:
Gyllt.
Framlag Íslands í Eurovision verður valið um helgina þegar úrslitin fara
fram í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Sjö lög taka þátt og eru margir búnir
að mynda sér skoðun á því hvaða lag muni vinna. Við leituðum til nokk-
urra aðila sem hafa látið skoðanir sínar í ljós á samfélagsmiðlum sem
og hafa sterkar skoðanir á tónlist. Þau eru flest sannfærð um hvaða lag
muni vinna, þó það sé ekki endilega það lag sem þeim líkar hvað best við.
María Ólafs og
Friðrik Dór keppa
um sigurinn
Álitsgjafar fréttatímans
Friðrik Ómar söngvari.
Þorkell Máni Pétursson útvarpsmaður.
Dr. Gunni tónlistarmaður.
Gunnar Sigurðarson hraðfréttamaður.
Elsa Serenho Eurovision félagi í FÁSES.
Védís Hervör Árnadóttir söngkona.
Örn Úlfar Sævarsson auglýsingamógúll.
Margrét Erla Maack fjöllistakona.
Pétur Jónsson upptökustjóri.
Atli Fannar Bjarkason ritstjóri Nú-
tímans.
Rúnar Róbertsson útvarpsmaður.
Guðrún Gunnarsdóttir söng- og út-
varpskona.
StopWaitGo-bræður sigurstranglegir
Fyrsta spurningin sem lögð var fyrir sérfræðinga Fréttatímans var auðvitað
hvaða lag muni vinna á laugardagskvöldið. Af áliti þeirra að dæma geta strák-
arnir í StopWaitGo farið að pakka ofan í tösku og að líkindum fer María Ólafs-
dóttir með þeim.
„Það er morgunljóst að bræðurnir í
StopWaitGo eru að fara í ferðalag til
Austurríkis. Af þeim tveimur sem koma til
greina þá er líklegra að Friðrik Dór ferðist
með þeim. Það er ekki bara tyrkneskt
útlit á söngvarans sem lætur púbblikkinn
dæla smáskilaboðum til stuðnings laginu
heldur býr drengurinn yfir dásamlegri
rödd og fyrirmyndar sviðsframkomu.“
„Lítil skref eftir StopWaitGo. Snarpur
krókur í þessu og afbragðsvel flutt. „Cur-
rent“ hljóðheimur sem sómir sér vel á
erlendri grundu. Þetta ber keim af „Let it
go“ áhrifunum en vonum að enski textinn
verði ekki eins einsleitur og sá íslenski.“
„Lítil skref. Það hefur bæði Röslönu-ber-
fætta-frumkraftinn og Frozen-elementið
sem fær alla sem eiga börn til að láta
undan og lána þeim símann til kosningar.“
„Lítil skref vinnur þetta, það er grípandi
og hún segir „Lítil skref“ yfir 13.000
sinnum í laginu og það virkar í Eurovision.
Svo er hún eins og álfur og það er mjög
íslenskt og sætt.“
Niðurstaða: Lítil skref með Maríu Ólafs-
dóttur, eftir þá StopWaitGo drengi, er að
fara til Austurríkis sem framlag Íslands, ef
marka má sérfræðinga Fréttatímans.
18 úttekt Helgin 13.-15. febrúar 2015