Fréttatíminn - 13.02.2015, Page 22
É g hitti Barða Jóhannsson tónlistar-mann á heimili hans í Reykjavík þar sem hann vinnur sína vinnu.
Bæði sem tónlistarmaður og nú sinn
eiginn útgefandi hjá fyrirtækinu Bang
ehf. „Ég hef alltaf passað að halda útgáfu-
réttinum að minni músík hér heima og
síðan leigt hann til fyrirtækja erlendis,
en þetta er í fyrsta sinn sem ég er að
gera allt alveg sjálfur núna,“ segir Barði.
„Í gegnum árin hef ég kynnst mörgum
í mússíkbransanum og við ákváðum að
„díla“ beint við dreifingaraðila úti. Þetta
er nokkuð flókið þar sem platan mun
koma út um allan heim, flestu er samt
dreift frá Þýskalandi og Frakklandi. Þetta
er mikil umsýsla en mig langaði alltaf að
prófa þetta og finnst þetta spennandi,“
segir Barði. „Ég hef alltaf verið fastur í
einhverjum samningum, annað hvort höf-
undarsamningum við EMI og Universal
eða með útgáfuréttinn leigðan á önnur
fyrirtæki. Nú í fyrsta sinn er ég frjáls til
að gera það sem mér sýnist. Ég hef ekkert
á móti útgáfufyrirtækjum, en Sena gefur
út Bang Gang hérna heima og finnast þau
frábær. Ég hef bara mikinn áhuga á að
reyna ný og krefjandi verkefni erlendis.
Þetta er stór áskorun og mjög spennandi
verkefni að þurfa að vera listrænn eina
mínútuna og praktískur hina.“
„Það er búið að segja listamönnum
mjög mikið að þeir geti ekki allskonar
og þess vegna finnst mér mjög gaman að
gera allskonar. Ég er engan veginn hinn
týpíski listamaður, þó ég drekki kaffi og
eigi trefil, en ég er alveg laus við kaffi-
húsahangs, uppgerða tilvistarkreppu og
almennt væl. Bransinn hefur breyst svo
svakalega síðan maður byrjaði í þessu að
það er allt hægt í dag,“ segir Barði. „Það
situr líka alltaf eftir í mér setning sem var
sögð við mig í upphafi ferilsins, þá sagði
LEIKFÖNGIN
FÆRÐU HJÁ
KRUMMA
/krumma.is www.krumma.is
Gylfaflöt 7 112 Reykjavík 587 8700
Ég hef aldrei búið í Frakklandi
Tónlistarmaðurinn
Barði Jóhannsson,
sem oft er kenndur
við hljómsveitina
Bang Gang, gefur út
nýja plötu undir nafni
sveitarinnar í apríl.
Það er fyrsta plata
Bang Gang í 7 ár með
nýju efni síðan platan
Ghosts From The Past
kom út árið 2008.
Barði hefur þó ekki
setið auðum höndum
því hann hefur m.a.
samið tónlist við
kvikmyndirnar Would
You Rather og hina
frönsku Des Toutes
Nos Forces sem dró
um 700 þúsund manns
í bíó í fyrra. Skrifað
óperu með söng-
konunni Keren Ann og
unnið tónlistarmann-
inum JB Dunckel úr
hljómsveitinni Air.
íslenskur útgefandi við mig með hæðnistón. „Heldur
þú að þú getir sjálfur farið til útlanda og komið heim
með plötusamning?“ Ég tók hann á orðinu, fór út
og kom heim með samning við stærsta forleggjara í
heimi á þeim tíma, EMI.
Nýjasta plata Bang Gang kemur út á næstu mán-
uðum og er það fyrsta plata Barða undir nafni sveitar-
innar í 7 ár. Best of Bang Gang kom þó út 2010. Barði
hefur þó verið mjög iðinn við önnur verkefni síðan
2008. „Ég gerði óperuna Red Waters með Lady & Bird
sem var sýnd í Frakklandi í fjórum óperuhúsum og
það eru kvikmyndaframleiðendur byrjaðir að vinna
handrit að teiknimynd úr óperunni,“ segir
Barði. „Ég og Keren Ann, sem er með
mér í Lady & Bird, höfum alltaf verið með
teiknimyndablæti og þessi ópera er kjörin
í það form. Svo hef ég verið að gera mikið
af kvikmyndatónlist sem er eitthvað sem
ég get hugsað mér að gera meira af, sem
og verkefni mitt og JB Dunckel úr Air,
Starwalker, við erum tilbúnir með plötu
sem kemur út síðar á þessu ári,“ segir
Barði.
„Nýja Bang Gang platan er sambland
af lögum síðustu ára sem voru kláruð á
þessu ári, Elsta lagið er margra ára gam-
alt, það er ofur dramatískt lag sem ég náði
ekki að klára fyrir plötuna Ghosts From
the Past. Ég hef þó bara verið að gera svo
margt að undanförnu að það hefur ekki
gefist tími fyrir að klára nýju Bang Gang
plötu fyrr en nú,“ segir Barði, sem er sam-
hliða þessu öllu að vinna að klassísku
verki verður flutt síðar á árinu.
Kvikmyndatónlistin hentar vel
Barði hefur gert tónlist kvikmyndir og
segir það henta sér vel. Hann er tilnefndur
til Eddunnar í ár fyrir tónlist sína í frönsku
kvikmyndinni Des toutes nos forces. „Ég
er búinn að gera tónlist við tvær erlendar
myndir,“ segir Barði. „Eina hryllingsmynd og aðra
fallegri og mér fannst hvort tveggja skemmtilegt. Það
kemur sér betur ef 700 þúsund manns sjá myndina,
eins og með Des toutes nos forces,“ segir hann. „Það
var samt mjög gaman að gera tónlist í hrylli-tryllinn
Would You Rather. Við sömdum tónlistina saman, ég
og Daniel Hunt úr Ladytron. Svo fannst mér líka mjög
gaman að vinna með Óskari Jónassyni í Reykjavík-
Rotterdam. Mér finnst alveg líklegt að ég endi á þessu
sviði,“ segir Barði sem hefur haslað sér völl í Frakk-
landi.
„Ég er nú ekki einhver metsölu listamaður en það
hefur gengið ágætlega þar. Mín stærstu svæði eru
Frakkland og Bandaríkin,“ segir Barði. „Svo hef ég
farið svolítið til Kína. Ég er kannski ekki mjög þekkt-
ur í þessum löndum en þarna býr bara svo margt fólk,
svo þetta er stór markaður. Það er ótrúlega gaman
að sjá þegar maður ferðast um heiminn hvað íslensk
tónlist hefur verið stór þáttur í kynningu landsins.
Mér finnst löngu kominn tími til að við Íslendingar
fáum styttu af Björk. Það getur enginn neitað því að
jákvæð kynning hennar á landinu og í gegnum árin er
ómetanleg. Hún hefur líka opnað ótal dyr fyrir aðra ís-
lenska listamenn sem hafa fylgt á eftir.
Reynir að hafa þetta skemmtilegt
Barði mun fylgja plötunni eftir eins og hann er vanur,
en er þó ekki búinn að ákveða neitt í því samhengi.
„Það er verið að ræða ýmislegt,“ segir hann. „Mig
langar að gera eitthvað skemmtilegt til að kynna
plötuna. Það verða alla vega veglegir útgáfutónleikar
hérna heima og svo tónleikaferð úti í lok sumars, eða
í haust.“ Það hafa margir haldið í gegnum tíðina að
Barði búi erlendis þar sem hann heldur sig yfirleitt til
hlés þegar kemur að sviðsljósi fjölmiðlana
en hann segir það mikinn misskilning.
„Það er kannski ágætt að nota þetta viðtal
til þess að leiðrétta þennan misskilning
fyrir fullt og allt,“ segir Barði. „Ég bý ekki
í Frakklandi og hef aldrei búið þar. Ég er
spurður að því á hverjum degi hvort ég sé
fluttur heim, ég hef aldrei flutt út. Þetta
er alltaf í umræðunni,“ segir Barði með
glotti. „Það getur vel verið að eitthvert
blað hafi skrifað það án þess að spyrja mig
og fólk gefi sér það bara. Ég hef lengst
verið í Frakklandi í tvo mánuði, ef það
telst sem flutningur þá hef ég flutt út. Það
er það lengsta sem ég hef verið erlendis í
einu á ævinni. Ég bara sést ekkert,“ segir
Barði.
„Ég er bara hér heima í Reykjavík að
vinna, svo þarf ég að fara í stuttar vinnu-
ferðir út, oft er skilyrði fyrir verkefnum að
þau séu unnin úti. T.d. fjármagnaði bærinn
Orleans í Frakklandi skrifin á óperunni,
gegn því skilyrði að við myndum dvelja
þar við að skrifa og semja. Annars er
nær öll Bang Gang platan er tekin upp og
samin hér heima, mér finnst það best,“
segir Barði og bætir við: „Við eigum svo
ótrúlega mikið af hæfileikaríku tónlistar-
fólki hérna heima. Það hefur verið ótrúleg
framför í bransanum hérna. Snillingar á hverju strái.“
Barði hefur oft á tíðum þótt undarlegur í framkomu
en hann segir það yfirleitt hafa verið vegna þess að
fólk sé „óvant að tala við vampírur.“
Hvað meinarðu með því?
„Ég skil ekki spurninguna.“
Ertu erfiður í samstarfi?
„Nei, það held ég ekki, en ég get verið mjög harður
við sjálfan mig og sýni mér enga vægð,“ segir Barði.
„En maður verður að vera ánægður með það sem
maður skilar frá sér og gera alltaf sitt besta. Ég á
auðvelt að vinna með fólki sem talið er erfitt að vinna
með, oftar en ekki er þetta „erfiða“ fólk með mikinn
metnað eða djúpan annarar gráðu húmor sem getur
misskilist, ef ekki hvort tveggja,“ segir Barði Jóhanns-
son tónlistarmaður.
Hægt er að fylgjast með Barða og Bang Gang á
https://www.facebook.com/banggangband og http://
instagram.com/banggangband/
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Erfiðleikar
eru yfir-
leitt mis-
skilningur
á húmor
og ég er
með mjög
misskilinn
húmor.
Nýjasta plata Bang Gang kemur út á næstu mánuðum og er það fyrsta plata Barða undir nafni sveitarinnar í 7 ár.
Lj
ós
m
yn
d/
N
ic
ol
as
G
ue
ri
n.
22 viðtal Helgin 13.-15. febrúar 2015