Fréttatíminn - 13.03.2015, Qupperneq 46
46 crossfit Helgin 13.-15. mars 2015
HARPA 29. MARS
HEIÐURSTÓNLEIKAR Í TILEFNI AF
70 ÁRA AFMÆLI GUNNARS ÞÓRÐARSONAR
MIÐASALA Á MIÐI.IS, HARPA.IS,
Í MIÐASÖLU HÖRPU OG SÍMA 528-5050.
SÖNGVARAR
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON
EGILL ÓLAFSSON
EYÞÓR INGI
PÁLL ÓSKAR
SIGRÍÐUR THORLACIUS
STEFÁN JAKOBSSON
UNA STEF
ÞÚ OG ÉG
HELGA MÖLLER
JÓHANN HELGASON
SÉRSTAKIR GESTIR
BERGÞÓR PÁLSSON
ELMAR GILBERTSSON
ÞÓRA EINARSDÓTTIR
HRYNSVEIT
EYÞÓR GUNNARSSON HLJÓMBORÐ FRIÐRIK KARLSSON GÍTAR
GUÐMUNDUR PÉTURSSON GÍTAR GUNNLAUGUR BRIEM TROMMUR
JÓHANN ÁSMUNDSSON BASSI PÉTUR GRÉTARSSON SLAGVERK
SIGURÐUR FLOSASON SAXÓFÓNN SNORRI SIGFÚS BIRGISSON PÍANÓ
ÞÓRIR ÚLFARSSON HLJÓMBORÐ
REYKJAVIK SESSION ORCHESTRA UNDIR STJÓRN ROLAND HARTWELL
GOSPELKÓR ÓSKARS EINARSSONAR
GRADUALEKÓR LANGHOLTSKIRKJU UNDIR STJÓRN JÓNS STEFÁNSSONAR
HLJÓMSVEITARSTJÓRI ÞÓRIR ÚLFARSSON
KYNNIR JÓNAS R JÓNSSON
LEIKSTJÓRI EGILL EÐVARÐSSON
HEIÐURSGESTUR GUNNAR ÞÓRÐARSON
ÞAÐ STYTTIST Í GLÆSILEGUSTU TÓNLISTARVEISLU ÁRSINS
ÖRFÁIR MIÐAR EFTIR Á AUKATÓNLEIKANA!
S amtökin hafa það hlutverk að standa að hagsmunagæslu fyrir CrossFit á Íslandi, koma
að árlegu Íslandsmóti í CrossFit,
bæði einstaklinga og liða, og stuðla
að eflingu CrossFit á Íslandi,“ seg-
ir Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir,
stjórnarformaður CrossFit sam-
bands Íslands.
Ein heimsleikaæfing á viku
CFSÍ stóð nýlega fyrir fyrsta við-
burði ársins, sem var haldinn í
tengslum við forkeppni heimsleik-
anna í CrossFit. Forkeppnin hófst
formlega föstudaginn 27. febrúar
og kallast sú keppni „The Open“.
Skipulag þeirrar keppni er að yfir
fimm vikna tímabil gefur CrossFit
í Bandaríkjunum út eina æfingu
á viku sem keppendur þurfa að
framkvæma eftir fyrirfram settum
reglum. „Það sem gerir þessa for-
keppni skemmtilega er að allir sem
eru iðkendur í CrossFit stöð, hvar
sem er í heiminum, geta verið með
og þannig tekið þátt í heimsmeist-
aramótinu og keppt við þau bestu
í heiminum sem og aðra iðkendur,“
segir Svanhildur. Eftir þessar fimm
vikur taka svo við svæðiskeppnir og
að lokum heimsleikarnir í CrossFit
sem fara fram í Carson, Los Ange-
les ár hvert og er sama keppni sem
Annie Mist Þórisdóttir hefur tvisvar
sinnum náð að sigra í.
CrossFit veisla af bestu gerð
Það var sannkölluð CrossFit veisla
þegar að CFSÍ bauð bestu Cross-
Fit-urum landsins, í unglingaflokki,
opnum flokki og flokki 40 ára og
eldri, að koma saman og fram-
kvæma fyrstu æfinguna í Open,
sem kallast 15.1. Æfingin sem fyrst
var birt var í tveimur hlutum 15.1
og 15.1a og voru það Ragnheiður
Sara Sigmundsdóttir (CrossFit Suð-
urnes) og Þuríður Erla Helgadótt-
ir (CrossFit Sport) sem voru með
hæsta skorið í þessum æfingum af
íslensku konunum og Björgvin Karl
Guðmundsson (CrossFit Hengli)
var með besta skorið af íslensku
körlunum.
Tveir karlar og sex konur
meðal tíu efstu í heiminum
Staðan í forkeppninni „The Open“
eftir að 2 vikum er lokið af 5 vikum
lítur vel út fyrir CrossFit á Íslandi en
í fyrsta sæti í karlaflokki í Evrópu er
Björgvin Karl Guðmundsson og í 6.
sæti er Sigurður Hafsteinn Jónsson
(CrossFit XY) og í kvennaflokki er
Annie Mist Þórisdóttir (CrossFit
Reykjavík) í fyrsta sæti, Ragnheiður
Sara Sigmundsdóttir er í öðru sæti
og í þriðja er Katrín Tanja Davíðs-
dóttir (CrossFit Reykjavík), fast á
hæla þeirra koma þær Björk Óðins-
dóttir (CrossFit Nordic), Þuríður
Erla Helgadóttir (CrossFit Sport)
og Hjördís Óskarsdóttir (CrossFit
Stöðin) en þær eru allar í topp 10 í
Evrópu. „Það verður gaman að fylgj-
ast áfram með þessum keppendum
og fylgja þeim svo eftir í Evrópu-
keppnina en það eru 30 keppendur
í kvenna- og karlaflokki sem kom-
ast áfram í þá keppni,“ segir Svan-
hildur.
Íslendingar keppast
við að komast á
heimsleikana í Crossfit
CrossFit samband Íslands
(CFSÍ) eru samtök CrossFit
iðkenda og CrossFitstöðva á
Íslandi. Samtökin sjá meðal
annars um að halda utan um
forkeppni heimsleikanna í
Crossfit, en fyrsti liður hennar
fór fram nýlega og náðu ís-
lenskir Crossfit iðkendur mjög
góðum árangri.
Svanhildur Vigfúsdóttir, stjórnarformaður í CrossFit sambandi Íslands. Mynd/Hari
CrossFit samband Íslands stóð nýlega að fyrstu forkeppninni af nokkrum fyrir heimsleikana í Crossfit. Mynd/Thomas Fleckenstein