Frjáls verslun - 01.05.2011, Blaðsíða 32
32 FRJÁLS VERSLUN 5.tbl.2011
„Heiðrún var ákaflega rólegt barn,“ segir
faðir hennar, Jón Gestsson. „Hún var orðin
læs fimm ára, eiginlega áður en nokkur vissi
af því.
Hún var yfirleitt í sveit á sumrin og svo
hélt hún sig mikið inni í herberginu sínu og
las þegar hún var heima. Þetta entist þar til
hún var níu eða tíu ára gömul. Eftir það fór
hún meira út að leika sér.“
Jón segir að Heiðrún hafi snemma orðið
sjálfstæð; hún fór t.d. fimmtán ára gömul
ein til Englands til að fara á enskunámskeið.
Hann segir hana hafa verið góðan náms
mann sem þurfti ekki að hafa mikið fyrir
náminu. „Hún var yfirleitt að lesa einhverja
reyfara fram á prófdag en tók ævinlega góð
próf eftir sem áður.
Mér finnst vera stutt í léttlyndið og hrekk
ina í henni. Hún var á vissum aldri mjög
hrekkjótt og maður vissi aldrei á hverju
maður gat átt von. Það er mikil „aksjón“ á
henni en hún vinnur mikið. Ég myndi segja
að hún væri dugleg og svo er hún mjög
ábyrg; hún vill yfirleitt geta staðið við það
sem hún segir.“
(Heiðrún er stjórnarformaður Norðlenska matarborðs
ins hf. á Akureyri, hún er stjórnarmaður í GILDI
lífeyrissjóði og í endurskoðunarnefnd og í stjórn
Samtaka verslunar og þjónustu.)
rólegur dugn
aðarforkur
Heiðrún Jónsdóttir, fram
kvæmdastjóri lögfræði
sviðs Eimskips
Jón Gestsson, faðir Heiðrúnar.
„Ég kynntist Hafdísi árið 1989 þegar ég byrjaði að
æfa í World Class,“ segir Jóhann Ingi Gunnarsson
sálfræðingur. „Þá upp götvaði ég þessa lífsgleði sem mér
finnst einkenna hana. Hún gaf mikið af sér í tímum,
það var alltaf troðið og þótt maður væri misjafnlega
fyrirkallaður náði hún alltaf að virkja þá sem voru í
tímum. Við karlarnir vorum yfirleitt aftast og okkur
fannst hún svo hvetjandi og skemmtileg að við vorum
alltaf að komast framar; hún hvatti okkur til dáða.
Hún gefur mikið af sér, hún er hvetjandi og það er sú
upplifun sem ég hef haft af henni alla tíð.“
Jóhann Ingi hefur haldið námskeið og fyrirlestra hjá
World Class og segir að það sé sama hvað hann biðji
um eða hvaða samstarfi hann óski eftir; Hafdís sé til í
að prófa nýja hluti. „Það er mikill kostur. Hún er að frá
morgni til kvölds; mér finnst vinnu semi og dugnaður
einkenna hana.“
(Hafdís er í stjórn Lauga Spa, formaður FKA, Félags kvenna í
atvinnurekstri, hún er í stjórn fjárfestingarfélagsins Naskar, í stjórn
styrktarsjóðs Umhyggju, sem er félag til stuðnings langveikum
börnum, og í stjórn RÍH sem er rannsóknarstofa í íþrótta og
heilsufræðum.)
vinnusemi og dugnaður
Hafdís Jónsdóttir, fram kvæmdastjóri Lauga Spa
Jóhann Ingi Gunnarsson
sálfræðingur.
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Velkomin í
Eignastýringu
Landsbankans
Sigurður B. Stefánsson Eyrún Anna Einarsdóttir
Heimsæktu ráðgjafa Eignastýringar í Austurstræti 11, hringdu í 410 4040
eða sendu okkur póst á fjarmalaradgjof@landsbankinn.is.
Eignastýring Landsbankans er sérhæfð fjármálaþjónusta
fyrir viðskiptavini sem vilja byggja upp öflugt eignasafn
og njóta sérfræðiráðgjafar á öllum sviðum bankaþjónustu.