Frjáls verslun - 01.05.2011, Blaðsíða 63
FRJÁLS VERSLUN 5.tbl.2011 63
„Ég kynntist Lóu þegar
við fórum saman sem
skiptinemar á vegum AFS
til Ekvadors árið 1984,“
segir Þorvaldur Birgis
son, forstöðumaður hjá
Sjóvá. „Við vorum líka
í Fjölbrauta skólanum í
Breiðholti þar sem við
vorum m.a. saman í stjórn
nemendafélagsins eitt
árið. Við höfum ferðast þó
nokkuð saman í gegnum
tíðina og er hún frábær
ferðafélagi. Þar er hún á
heimavelli þar sem hún býr
að því að hafa starfað sem
leiðsögumaður.
Lóa er mikil fjölskyldukona
og vinur vina sinna. Það
er allt af gaman í kringum
hana því hún er glaðvær
og skemmtileg að eðlisfari.
Hún á einstaklega gott með
samskipti við fólk og það
er ein af hennar sterkustu
hliðum.“
Þorvaldur segir að
Þór dís Lóa sé heilsteypt,
metn aðarfull og hugrökk
og óhrædd við að takast á
við nýja hluti. „Hún veit
hvað hún vill, tekur fljótt
forystu í hópum og nær vel
til fólks.“
(Þórdís Lóa er stjórnarformaður
Finnskíslenska viðskiptaráðsins,
Naskur ehf., Aladin Invest ehf. og
hún situr í stjórn Freska ehf.)
Heilsteypt og metn
aðarfull
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, eigandi
og framkvæmda stjóri Pizza Hut
á Íslandi og í Finnlandi
Þorvaldur Birgisson, forstöðumaður
hjá Sjóvá.
„Hún á einstaklega gott með
samskipti við fólk og það
er ein af hennar sterkustu
hliðum.“
Gunnlaugur segir að Tinna sé vinnu söm, ákveðin og hlý; sé hörð
út á við en mjúk og hlý inn við beinið. „Hún á það til að taka hluti
inn á sig sem stundum væri betra að leiða hjá sér.“
„Sigríður Margrét er hörkudugleg og fjölhæf.
Hún er hugmyndarík og það er gaman að
vinna með henni,“ segir Brynjólfur Bjarnason,
forstjóri Icelandic. „Hún er fyrst og fremst
rekstrarmanneskja; hún heldur vel utan um
rekstur og ég hef upplifað hana þannig að
hún er óhrædd við að taka ákvarðanir þótt
þær séu óþægilegar. Hún er virk og kemst vel
af með sitt fólk en hún er líka mjög ákveðin.
Hún hugsar oft töluvert langt fram í tímann og
veltir mikið fyrir sér stefnu einingarinnar eða
fyrirtækisins. Það er mikill kostur.“
Brynjólfur segir að Sigríður Margrét geti
stundum verið fljótfær en hann segist halda að
hún sé búin að læra dálítið af því.
„Hún er afar lífleg og brosmild og lífgar upp á
hópinn þar sem hún kemur. Það er kostur.“
(Sigríður Margrét situr í stjórnum Samtaka verslunar og
þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.)
Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já
Hörkudugleg og hugmyndarík
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri
Icelandic.